Frjáls verslun - 01.02.1980, Blaðsíða 58
verið fremur líflaust á lána-
markaðinuon í Keflavík og er
orsökin sú að útgerðin hefur
farið fremur hægt af stað og
einnig segir það til sín að engin
loðna hefur borist til staóarins.
Aukin samkeppni hefur aukið
verzlunina á svæðinu
Nú hefur það löngum veriö
eitt af vandamálum Keflvíkinga
og annarra Suðurnesjabúa,
hve mikiö fjármagn hefur farið
út af svæðinu vegna innkaupa
t.d. í Reykjavík. Viö spurðum
Helga Hólm hvernig þau mál
hefðu þróast að undanförnu.
Hann sagði að það væri áber-
andi breyting aö eiga sér stað á
þessu sviði og hún ætti eftir að
létta undir með atvinnurekstri
og þjónustu á svæðinu. Vax-
andi samkeppni verzlana á
Suðurnesjum, og þá sérstak-
lega í Keflavík, hefði leitt til
þess að mun meira væri verzl-
að á svæðinu, gagnstætt því
sem einhver kynni að halda.
Samkeppnin hefði ekki orðiö til
þess að drepa fyrirtækin niður,
heldur hefði hún orðið til þess
að auka vöruframboð og þjón-
ustu og það hefði leitt til þess
að Keflvíkingar gætu nú borið
saman framboð verzlana á
staönum og þyrftu ekki inneftir
til Reykjavíkur til þess að fá
samanburð. Helgi sagði að
ágætt dæmi um þetta væri
húsgagnasalan á svæðinu,
hún hefði aukist verulega viö
þaö aö tvær húsgagnaverzl-
anir störfuöu nú í Keflavík.
Annað dæmi nefndi Helgi
sem sýnir hver breyting hefur
orðiö í þessum efnum. Hann
sagðist muna eftir því hér fyrir
nokkrum árum aö við ávísana-
skipti voru ávísanir útgefnar af
Suöurnesjamönnum frá
Reykjavík mun stærri bunki en
þær sem komu inn í Keflavík.
Nú hefði þetta algjörlega snúist
við og það segði sína sögu.
Helgi sagði að það hefði
einnig haft mikil áhrif í rétta átt
þegar fógetaembaéttið flutti til
Keflavíkur frá Hafnarfirði og
fólk þurfti ekki inneftir eftir
ýmsum greiðslum eða til þess
að borga opinber gjöld, — þær
ferðir heföu skiljanlega veriö
nýttar til innkaupa í leiðinni.
Engir heildsalar á svæðinu
Þá sagöi Helgi Hólm að það
hefði óneitanlega áhrif á við-
skiptalífið á Suðurnesjum, að
vörudreifingin væri fram-
kvæmd af fyrirtækjum í
Reykjavík, engir heildsalar
væru á svæðinu. Þótt fullkomin
tollvörugeymsla væri í Keflavík
væri hún ekki fullnýtt af þess-
um sökum og einnig væri því
um að kenna aö ekki fengist
vörum uppskipað í Keflavíkur-
höfn.
Hugsanlega gæti fraktflugið
breytt þessari mynd með tím-
anum en flugfrakt um Keflavík-
urflugvöll hefði farið vaxandi á
síðustu árum og því ekkert
óeðlilegt þótt innflytjendur
sæju sér hag í því að nýta betur
tollvörugeymsluna í því sam-
bandi.
NJARÐVÍKURKAUPSTAÐUR
NJARÐVÍKUR — ört vaxandi framtíðarbær
NJARÐVÍKURKAUPSTAÐUR
56