Frjáls verslun - 01.03.1980, Qupperneq 8
STIKLAÐ A STORU...
Tækniaðstoð við
sælgætisiðnað
Iðntæknistofnun fslands hefur
hug á að auka tækniþjónustu við
sælgætisiðnað. Hefur stofnunin
leitað til bresks sérfræðings, John
Weekes að nafni, til að vera henni
til ráðuneytis við skipulagningu og
uppbyggingu slíkrar tækniþjón-
ustu. Mr. Weekes hefur að baki
áratuga starf í sælgætisiðnaði, en
vinnur nú sem ráðgjafi á vegum
British Executive Services
Overseas. Hann dvaldist hér á landi
í janúar s.l. og heimsótti þá flest ís-
lensk sælgætisfyrirtæki. Kynnti
hann sér rekstur fyrirtækjanna og
framleiðslu þeirra og kannaði þarfir
þeirra fyrir sérfræðiaðstoð á sviði
rekstrar- og framleiðslustjórnunar.
Hann mun skila tillögum sínum til
Iðntæknistofnunar innan skamms.
Heimsókn Mr. Weekes var skipu-
lögð í samvinnu við Félag íslenskra
iðnrekenda.
Norræn menningar-
kynning vestanhafs
Haustið 1982 er fyrirhugað aö
fram fari norræn menningarkynn-
ing í Bandaríkjunum og mun hún
bera heitið „Scandinavia Today".
Einn þáttur í þessari kynningu mun
fjalla um iönhönnun og þátt hennar
í umhverfismótun. Iðnaðarráðu-
neytið hefur nú skipað nefnd til að
undirbúa þátttöku íslands í sýning-
unni og jafnframt til að kanna, með
hvaða hætti slík þátttaka gæti orðið
til framdráttar útflutningi íslenskrar
iðnaðarvöru á þessum markaði. I
nefndinni eiga sæti fulltrúar frá
eftirtöldum aðilum: Útflutningsmið-
stöð iðnaðarins, Félagi íslenskra
iðnrekenda, Félaginu Listiðn, Iðn-
tæknistofnun og Landssambandi
iðnaðarmanna. Auk þess situr
Stefán Snæbjörnsson innanhúss-
arkitekt, í nefndinni og er hann
jafnframt starfsmaður hennar.
Hönnun flugstöðvar
í Keflavík
Byggingarnefnd Flugstöðvar á
Keflavíkurflugvelli óskaði eftir við
Almennu verkfræðistofuna h.f.,
Fjarhitun h.f. og Rafhönnun h.f. að
þessar verkfræðistofur gengju til
samninga um verkfræðihönnun
flugstöðvarbyggingarinnar og
tengdra mannvirkja.
Fóru fulltrúar þessara fyrirtækja
til Bandaríkjanna í janúarlok til að
kynna sér fyrirhugaða mannvirkja-
gerð og hefja samninga um hönn-
unina við byggingarnefnd og þá
ameríska aðila, sem fyrir bygging-
unni munu standa.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum er talið aö um 30% hönnun
sé lokið.
Islensku fyrirtækin ásamt Húsa-
meistara ríkisins, sem annast mun
arkitektahönnun byggingarinnar í
samstarfi við ameríska arkitekta-
fyrirtækið Shriver & Holland, gerðu
kröfu um að þeim yrði í sameiningu
falin 60—65% af þeirri hönnun sem
eftir er og varð um það samkomu-
lag með aðilum.
Jafnframt varð samkomulag um
að íslensku ráðgjafarnir færu yfir
og endurskoðuðu 30% hönnun
amerísku fyrirtækjanna með tilliti til
íslenskra byggingarvenja, staðla
og reglugerða.
Verkefnaskipting milli hönnuða
er ákveðin svo og fyrirkomulag
stjórnunar og samræmingar hönn-
unarinnar.
Stefnt er að því að Ijúka samn-
ingagerð um hönnunina um miðjan
mars, en þá skal endurskoðun ís-
lensku hönnuðanna lokið.
Aðstoð við kaup,
sölu eða skipti
notaðra véia og tækja
Landssamband iðnaðarmanna
hefur nú nýlega ákveðið að bjóða
félögum sínum að birta tilkynningar
endurgjaldslaust í Fréttabréfi
Landssambandsins vilji þeir kaupa,
selja eða skipta á notuðum tækjum
og/eða vélum. Ætlunin er, að
Fréttabréfið komi út u.þ.b. einu
sinni í mánuði, og að þessar til-
kynningar verði fastur liöur meðal
efnis þess, auðvitað þó með þeim
fyrirvara, að félagarnir vilji notfæra
sér þjónustuna.
Um nánara fyrirkomulag er það
að segja, aö þeir, sem vilja kaupa
eða selja hafi samband símleiðis
eða bréflega við Hlöðver örn Óla-
son, tæknifræðing, starfsmann
Landssambands iðnaöarmanna,
og gefi honum sem greinarbesta
lýsingu á því tæki, sem viðkomandi
vill kaupa eða selja, verðhugmynd-
ir, greiðslukjör o.s.frv. Jafnframt
taki þeir fram, hvort einhvers konar
skipta sé óskað. Starfsmaður
Landssambandsins mun leitast við
eftir föngum að aðstoða menn við
verölagningu tækjanna, verði eftir
því leitað. Lýsing þeirra véla og
tækja, sem félagar vilja kaupa eða
selja, verður síðan birt í Fréttabréf-
inu. Nöfn aðila verður ekki birt sé
þess sérstaklega óskaö. Vilji les-
endur svo sýna kaup- og sölutll-
boðum frekari áhuga, þá snúi þeir
sér til starfsmanns Landssam-
bandsins um frekari upplýsing-
ar eða eftir atvikum beint til aug-
lýsendanna sjálfra.
8