Frjáls verslun - 01.03.1980, Side 36
sérefni
HVAÐ KOSTAR AD BYGGJA
EINBÝLISHÚS ?
Við ætlum að koma upp einbýlishúsi á þessum
síðustu og verstu tímum. Við þurfum hús með fjórum
svefnherbergjum, vinnuaðstöðu fyrir húsbóndann og
það verður að vera hægt að koma nokkuð stórum
vefstói fyrir á hentugum stað. Við þurfum bílskúr og
sæmilegar geymslur. Og hvernig hús ætlum við að
byggja?
Fyrir valinu hefur oröið hús sem er á einum fleti 140
fermetrar ásamt 50 fermetra bílskúr. Nettóíbúðarflöt-
ur fellur innan þess ramma sem leyfir hámarkslán frá
Húsnæðismálastofnun ríkisins. Samið hefur verið um
kaup á tréeiningahúsi sem er þannig útfært að hugs-
anlega má bæta við það útbyggingu án mikillar fyrir-
hafnar síðar meir. Sú viðbygging yrði um 50 fermetr-
ar. Og þá byrjar ballið. Þar sem heppnin var með tókst
að fá lóð í Garðabæ. Hún er um 900 fermetrar. Lóðin
er á sléttlendi þannig að ekki fer mikill peningur í að
breyta henni. Niöur á fast er um 1 metri. Ákveðið var
aö hafa fljótandi plötu, en það þýðir að fyrst eru
sökklarnir steyptir og húsinu komið fyrir á þeim en
platan steypt og vélpússuð í heilu lagi áður en inn-
veggir eru settir upp. Okkur reiknast að við spöruðum
um 400 þúsund krónur á þennan hátt.
Lóð, gatnagerðargjald, heimtaugar kr. 9.200.000
Allarteikningar af húsinu kr. 1.250.000
Samtals 1. áfangi kr. 10.450.000
Einingahúsaframleiðandi gerði fast tilboð eftir
teikningunni og það reyndist vera:
Allar einingar og annar búnaður þannig að húsið er
tilbúið að öðru leyti en því að eldhúsinnréttingu,
skápa, sólbekki, hreinlætistæki og lagnir, ofna og
heimilistæki vantar.
Fast verð með söluskatti kr. 19.130.000
Uppsetning kr. 5.300.000
Grunnur og sökklar kr. 5.800.000
Samtals 2. áfangi kr. 30.230.000
Nú erum við komin í 39,4 miljónir tæpar. Það sem
eftir er er hitakerfi, innréttingar, hreinlætistæki,
platan, frágangur á lóð og málning, flísar o.fl.
Okkur er sagt af nágrönnum að það sé fremur
sjaldgæft að sleppa jafn ódýrt og við gerðum með
grunninn og sökklana. Náunginn hinum megin göt-
unnar er langt kominn með einingahús sem byggt er á
tveimur pöllum þannig að gengið er niður í stofuhlut-
ann. Hann hafði lent á verktaka sem stóð ekki við neitt
af því sem samið hafði veriö um, seinkun hafði orðið á
fjórða mánuð og honum reiknaðist svo til að grunn-
urinn, sökklarnir og platan væri komið á áttundu
miljón hjá sér. Á hinn bóginn festi hann kaup á
einingahúsinu sínu í júní 1979 og greiddi þá um 14
miljónir fyrir það án uppsetningar, en sú vinna kostaði
hann um 4 miljónir, húsið hans kostaði því 18 miljónir
uppkomið fyrir utan grunn og sökkla, lóð og gatna-
gerðargjöld.
f Garðabæ er hitaveita og því ekki um marga kosti
að velja í sambandi við upphitunina sem betur fer,
liggur manni við að segja.
Ofnateikning var með í teikningapakkanum. Með
hana fórum við í nokkrar ofnasölur og báöum um
tilboð. Það kom í Ijós að verulegur verðmunur er á
miðstöðvarofnum og án efa er einnig gæðamunur á
þeim eins og öðrum vörum. En nú var alvarlega farið
aö grynnka í buddunni svo að ekki var um annað að
velja en þá ódýrustu á markaðinum. Þegar til átti aö
taka kom hinsvegar í Ijós að ódýrustu ofnarnir pöss-
uðu okkur ekki þar sem engin þeirra gerða sem boðin
var reyndist nógu iág til þess að komast fyrir undir
stofuglugganum sem nær svo að segja niður í gólf,
aðeins 15 cm bekkur er fyrir neðan gluggann. Það
varð því úr að við völdum dýrari ofna, en stofuofninn
er lágur og langur með s.k. flatarauka. Allir ofnarnir
kostuðu samanlagt með söluskatti kr. 930.000
Annað efni og vinna við ofna kr. 810.000
Neysluvatnslagnir kr. 685.000
Samtals 3. áfangi kr. 2.425.000
36