Frjáls verslun - 01.06.1985, Page 5
□
frjáls
verzlun
INNLENT
SALA ríkisfyrirtækja hefur verið talsvert til umræðu á siðustu mánuð-
um og misserum. Ráðherrar hafa hver i kapp við annan keppst við að
gefa yfirlýsingar um væntanlegar sölur. Minna hefur hins vegar orðið
um efndir, nema hjá Sverri Hermannssyni iðnaðarráðherra, sem hefur
m.a. selt Landssmiðjuna starfsmönnum og selt hlutabréf ríkisins i Iðn-
aðarbankanum svo eitthvað sé nefnt. Frjáls verzlun sótti Landssmiöj-
una hf. heim á dögunum og kom þá i Ijós að gagngerar breytingar höfðu
verið gerðar þar á rekstri eftir að starfsmenn tóku við. Töluverðum tap-
rekstri hefur verið snúið i hagnað og mikið markaðsátak er framundan.
Siguröur Danielsson framkvæmdastjóri segir að þessi breyting hefði
verið með öllu óframkvæmanleg undir rikissforsjá.
BANKAR
NÝTT bankafrumvarp var samþykkt á síðasta Alþingi eftir liðlega fjög-
urra ára undirbúningsvinnu. Þykir mörgum sem eftirtekjan sé rýr svo
ekki sé kveðið fastar að orði. Frjáls verzlun kannaði þetta mál og
ræddi ennfremur við Matthias Á. Mathiesen viöskiptaráðherra, sem
segir heildarendurskoðun enn ekki lokið.
HAGSTOFAN
NÝR hagstofustjóri tók við á dögunum, en það er Hallgrimur Snorrason
hagfræðingur sem tók við af Klemenz Tryggvasyni, sem setið hafði i
stólnum um árabil. Hallgrimurvartekinn tali og beðinn að lýsa því sem
helst væri á döfinni hjá Hagstofunni. I samtalinu kom fram að ýmislegt
erádöfinni.
FERÐAÞJÓNUSTA
FÓLK hefur almennt ekki gert sér grein fyrir mikilvægi ferðamanna-
þjónustu á Íslandi. Hefur verið litið á atvinnugreinina sem heldur litla og
ómerkilega. Þegar betur er að gáð kemur hins vegar i Ijós, að alls starfa
um 6.000 manns allt árið um kring að meðaltali við þessa atvinnugrein
sem skilar hundruðum milljóna króna árlega.
GREINAR OG VIÐTÖL
SAMTIÐARMAÐUR Frjálsrar verzlunar að þessu sinni er Ragnar S.
Halldórsson forstjóri islenska álfélagsins hf. og formaður Verzlunar-
ráðs íslands, en hann er án efa einn litrikasti athafnamaður á íslandi
síðustu áratugi. Ragnar kemur viöa við í samtalinu og lýsir meðal ann-
ars hvernig þvi hagaði til að hann réðst til ÍSAL og sögunni næstu tvö
áratugina.
VERÐBRÉF
MIKLAR breytingar hafa orðið á verðbréfamarkaði hér á landi á liðnum
misserum og er nú svo komið, að markaöurinn annar varla eftirspurn.
Það er af sem áður var. Er ánægjulegt til þess að vita að hér á landi er
að skapast „alvöru“ verðbréfamarkaöur.
FASTIR LIÐIR
— Leiðari — Hagtölur
— Fréttir — Bréf frá útgefanda
— Hagkróníka
5