Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1985, Síða 25

Frjáls verslun - 01.06.1985, Síða 25
VERÐBRÉF Aukin eftirspurn, lækkandi vextir og minnkandi ávöxtun einkenna veröbréfamarkaðinn Texti: Ólafur Jóhannsson. UNDANFARNAR vikur hefur sú sérkennilega staöa verið á veröbréfamarkaðinum hér á landi að eftirspurn eftir skuldabréfum hefur verið mjög mikil og hefur það haft það í för meö sér að afföll af bréfunum hafa lækkað og þar með ávöxtunin. Með aukinni eftir- spurn eftir skuldabréfum og aukinni sölu á þessum markaði eykst veltan og má kannski segja aö nú fyrst sé verðbréfa- markaðuninn á íslandi að festa sig í sessi. Frjáls verzlun ræddi við Pétur Blöndal, fram- kvæmdastjóra Kaupþings og leitaði álits hans á stöðunni á verðbréfamarkaðium um þessar mundir. Fyrsti vísirinn 1967 “Islenski fjármagnsmarkaður- inn hefur verið meö þeim ósköp- um brenndur að sparifjáreig- endurtöpuðu peningum á meðan skuldararnir græddu og með þeim hætti hefur sparnaður minnkað hér og nú er svo komið aö fólk kann ekki að spara. Áður var ástandið þannig að fólk lagði meira inn i bankakerfið en það tók út en samt rýrnarði sparnaður sparifjáreigenda þegar á heildina er litið. Árið 1967 fór ríkisstjórnin að gefa út spariskirteini sem gátu verndað fjármuni fólks. Sumir sparifjáreigendur fjárfestu i þess- um bréfum og má segja að þarna hafi myndast fyrsti vísirinn af veröbréfamarkaði hér á landi," sagði Pétur. -Nú er verðbréfa- markaðurinn orðinn staðreynd, en átt þú von á því að langt veröi i hlutabréfamarkað hérá landi? Langt í hlutabréfamark- að “Það mun líða langur tími áður en slíkur markaður verður að veruleika," sagði Pétur, “og það er vegna þess að fyrirtækin hér gefa svo litinn arð. Þess vegna stjórnast kaup á hlutabréfum ekki af arðsemissjónarmiðum eins og eðlilegt væri, heldur af baktjaldamakki allskonar, þar sem menn eru að kaupa sér að- stöðu, en ekki að ávaxta fjármuni sína. Þegar ávöxtun skuldarbréfa er jafn há og raun ber vitni, fjárfestir fólk ekki i hlutabréfum fyrirtækja, þar sem ávöxtunun er miklum mun lægri en á skuldar- bréfamarkaöinum. Þegar Kaupþing hóf starfssemi sina var fjármagnsmarkaðurinn enn nokkuð vanþróaður vegna skorts á samkeppni á markaðin- um og má ef til vill skýra það með þvi að aðeins einn aðili stundaði viöskipti með skuldarþréf. Þegar Kaupþing kom til skjalanna var 25

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.