Frjáls verslun - 01.06.1985, Síða 50
Misjafnt hlutfall
Fjöldi gistinátta á hótelum og
sumarhótelum er 212 þúsund og
þar af eiga Islendingar 69 þúsund
gistinætur eöa 32.5%. Séu
aðeins tekin heilsárshótel er
fjöldinn alls 133 þúsund og er
fjöldi íslendinga i þeim um 36
þúsund eða 27.3%. Hlutfall ein-
stakra þjoða er misjafnt en segja
má að Bandaríkin, Bretland og
Vestur-Þýskaland eigi þar
stærstan þátt eða kringum 10 til
15% af heildinni hver þjóð. Dan-
mörk, Noregur og Sviþjóð eru
með svipað hlutfall eða 4 til 5,5%
hver þjóö en Finnland mun minna
eða 2 til 2,5% eftirþvi hvort litið er
einungis á heilsárshótel eða
sumarhótelin talin með.
Ef litið er á fjölda gistinátta á
tjaldstæðum og skálum, þ.e.
svefnpokaplássum sem eru alls
154 þúsund, kemur í Ijós að þar er
hlutdeild Bandaríkjamanna mjög
lítil eða um 1,1% en Vestur-Þjóð-
verja hæst eða 17%, Frakka næst
eða 10.4% og Breta 6.9%. Hlut-
fall islendinga er 47.1% í þessum
flokki og hlutfall Norðurlanda-
þjóðanna er 0,3 til 1,9%.
Heildarfjöldi gistinátta allra
gististaða var mánuðina júní til
ágúst í fyrra 367 þúsund og áttu
Islendingar 38% af þeim fjölda
eöa 142 þúsund gistinætur. Vest-
ur-Þjóðverjar áttu næst stærstan
hlut eða 14.4%, Bretar 9.7% og
Bandarikjamenn 7.2%. Þó voru
bandariskir feröamenn miklu fjöl-
mennari á landinu en Bretar og
Vestur-Þjóöverjar þessar mánuði
eða yfir 13 þusund á móti 7 þús-
und Þjóðverjum og nærri 6 þús-
und Bretum. Ljóst er þvi að bresk-
ir og þýskir ferðamenn eru því
liklega „verðmætari" hvað varðar
eyðslu í gistingar. Slikur er
einmitt tilgangur skráningar sem
þessarar að kanna hvernig er-
lendir ferðamenn verja tima sín-
um á Islandi og reyna að finna út
hvernig best se að sinna þeim.
Einnig getur þetta verið ábending
til aðila í ferðaþjónustu um hvar i
útlandinu þeir ættu helst að verja
fjármunum i landkynningu.
SMIÐJUVEGI 9E - KÓPAVOGI SIMI 45044
RETTINGAR
BLETTANIR
ALLÖKKUN
RÚÐUÍSETNING
— Ftjót og góð þjónusta —
6erum föst tilboð i öll verk.
50