Frjáls verslun - 01.06.1985, Side 57
Fall dollarans gæti orðið
jákvætt til lengri tíma litið
Hlutdeild utanríkisviöskipta í
þjóðarbúskap íslendinga er ein
sú mesta meöal efnahagslegra
þróaðra þjóöa. Aðeins örfáar
þjóðir skáka okkur íslendingum
í þessu sambandi. Þess vegna
hafa allar hræringar í alþjóða-
efnahagsmálum mjög djúptæk
áhrif hérá landi.
Vægi dollarans hefur löngum
verið mikið í utanríkisverslun-
inni. Tæpur þriðjungur af út-
flutningsvörum íslendinga fara
til Bandaríkjanna, auk þess sem
viðskipti við Austur-Evrópu og
Portúgal hafa löngum verið í
dollurum. Innflutningur í dollur-
um er á hinn bóginn hlutfallslega
miklu minni en stór samt, þar
sem allur innflutningur á oliuvör-
um er reiknaður í Bandaríkjadöl-
um. Beinn innflutningur frá
Bandaríkjunum hefur eðlilega
hraðminnkað vegna hins háa
gengis á undanförnum árum
eins og allir vita. Það er því
óhemjumikið í húfi, ef dollarinn
lækkar verulega frá því, sem
hann er skráður, þegar þetta er
ritað um miðjan júlímánuð (1
US$ = 40.70 IKR).
En með gengismálin eins og
með margt í efnahagsmálum er
útkoman eða niðurstaðan ekki
einhlít. Þó má fullyröa, að mikil
lækkun dollarans muni hafa
slæm áhrif til skemmri tíma litið.
Helstu útflutningsvörur okkar
munu lækka í verði en innflutn-
ingurinn, sem mestmegnis er í
Evrópumyntum mundi hækka í
verði. Við þetta myndu svo viö-
skiptakjörin versna. Verðlag inn-
anlands mundi hækka og verð-
bólgan kynni að aukast. Nú er
það fyrirsjáanlegt, að fiskvinnsl-
an getur ekki tekið á sig tekju-
missi vegna gengisfalls dollar-
ans, en megniö af tekjum fisk-
vinnslunnar er í dollurum. Breyta
þyrfti gengi krónunnar, þannig
að íslenska krónan lækkaði í
verði samhliða Bandaríkjadollar
til þess að tryggja rekstrar-
grundvöll fiskvinnslunnar. Slík
gengisbreyting virkar eðlilega
mjög verðbólguhvetjandi.
í þessu efni er rétt að benda á
nýgerða kjarasamninga. Þar er
gert ráð fyrir mjög stífu aðhaldi í
gengismálum, sem erfitt verður
að framkvæma, ef dollarinn tek-
ur dýfu niður á við.
En á móti ofantöldum nei-
kvæðum atriðum, má nefna, að
lækkun dollarans og óhjá-
kvæmileg hækkun Evrópugjald-
miðla mun auðvelda mjög út-
flutning á iönaðar- og sjávar-
afuróum til Evrópulanda. Hækk-
un Evrópumynta mun sennilega
einnig bæta samkeppnisstöðu
okkar með saltfisk á Portúgals-
markaði.
Eins og áður sagði, er olíuinn-
flutningurinn í dollurum. Oliu-
verö mundi lækka í raun með
lækkandi dollaragengi. Kemur
þaö útgerðinni sérstaklega til
góöa.
Milli 55 og 60% af erlendum
skuldum (slendinga eru í dollur-
um. Raunviröi þessara skulda
mun eðlilega lækka við gengis-
fall dollarans til hagsbóta fyrir
allt þjóöarbúið. Þetta kann að
vera sérstaklega mikilvægt fyrir
þann mikla fjölda fyrirtækja,
sem situr uppi með stórar doll-
araskuldir og hafa átt í miklum
erfiðleikum á tímum hágengis
Bandaríkjadollars. En á móti er
aö telja, að aörar erlendar skuld-
ir eru í Evrópumyntum og Yen-
um. Hér skal það sérstaklega
nefnt, að afurðalán sjávarút-
vegsins og útflutningsiðnaðar
eru i SDR, en sú greiöslueining
er þannig samansett, að dollar-
inn er um 55% en ensk pund,
franskir frankar, þýsk mörk og
Yen vega afganginn. Því mun
ekki verða nein stór breyting á
gengi krónunnar gagnvart SDR-
reikningseiningunni nema að til
komi formleg gengisfelling
krónunnar.
Heildarútkoman út úr þessum
bollaleggingum er því sú, að fall
dollarans mun almennt hafa
óheppileg áhrif, þegar til
skemmri tíma er litið. Það má
hins vegar vel vera, að ýmis
jákvæð áhrif af gengisfalli doll-
arans muni verða hinum nei-
kvæðu yfirsterkari, þegar fram í
sækir. Hér skal sérstaklega bent
á aö raunvirði erlendra lang-
tímalána í dollurum, sem verið
hafa þjóöarbúinu mjög þung í
skauti undanfarin ár, mun
lækka. Ennfremur þarf að hafa í
huga, að hærra gengi Evrópu-
mynta bætir samkeppnisstöðu
iðnaðarins bæði heima fyrir og
erlendis.
57