Frjáls verslun - 01.09.1985, Page 7
frjáls
verzlun
FRJÁLS VERZLUN
Sérrit um viöskipta-,
efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI:
Sighvatur Blöndahl
RITNEFND:
Kjartan Stefánssori
Pétur A. Maack
LJÓSMYNDARAR:
Jens Alexandersson
Loftur Ásgeirsson
AUGLÝSINGASTJÓRI
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
ÚTGEFANDI:
Frjálst framtak hf.
Timaritið er gefið út i samvinnu
við Verz lunarmannafélag
Reykjavikur og Verzlunarráð
íslands
SKRIFSTOFA OG
AFGREIÐSLA:
Ármúli 18, simi 82300
Auglýsingasimi 31661
STJÓRNARFORMAÐUR:
Magnús Flreggviðsson
AÐALRITSTJÓRI:
Steinar J. Lúðviksson
SKRIFSTOFUSTJÓRI:
Halldóra Viktorsdóttir
ÁSKRIFTARVERÐ:
795,00 kr./159,00 kr. eintak
LAUSASÖLUVERÐ: 179,00 kr.
SETNING, PRENTUN OG
BÓKBAND:
Prentstofa G. Benediktssonar
LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varöandi efni
og myndir
Ritstjóraspjall
ÍSLENDINGAR hafa í gegnum tíöina veriö framsæknir í
störfum erlendis og hefur hróður þeirra fariö víöa, þrátt fyrir
fámenni þjóðar. Á dögunum bárust þær fréttir hingaö til aö
ungur íslenskur lögfræöingur Magnús Gylfi Þorsteinsson
heföi fyrstur íslendinga náö þeim árangri aö fá full réttindi til
málflutnings í Bandaríkjunum, en Magnús Gylfi starfar nú á
lögfræöiskrifstofu í New York. Eru þetta ánægjuleg tíðindi,
ekki sist með hliðsjón af því, aö auknir möguieikar islenskra
aðila til að sækja mál þar vestra ættu að vera fyrir hendi.
Reyndar segir Magnús Gylfi í samtali við Frjálsa verslun, að
íslendingur, sem þekkir þarfir íslenskra fyrirtækja og ein-
staklinga, geti mun betur þjónað þeim heldur en bandarískir
starfsbræöur hans. Magnús Gylfi starfar nú á mjög virtri lög-
fræðistofu, sem hefur mörg af stærri skipafélögum Banda-
ríkjanna í viöskiptum. Er full ástæða til að óska Magnúsi
Gylfa til hamingju með þennan merka áfanga á starfsferli
hans. í samtali Frjálsrar verzlunar við hinn unga lögfræðing
kemur m.a. fram, að alls hafi 2.400 lögfræöingar þreytt próf
til að fá aö hefja málflutning þar vestra, en aðeins helmingur
þeirra stóðst prófið. Því er það óneitanlega góður árangur
hjá erlendum manni meö menntun frá íslenskum háskóla aö
ná þessum árangri. Fyrir skömmu bárust svo þær fréttir, að
Ingvar Birgir Friðleifsson forstöðumaður háskóla Samein-
uðu þjóðanna hér á landi i jarðfræðum hefði veriö ráöinn
einn aðstoðarbankastjóra Alþjóða bankans. Er þetta mikill
heiöur fyrir Ingvar og ákveöin viðurkenning og kynning fyrir
ísland og landsmenn yfirleitt. Verður ónetanlega fróðlegt að
fylgjast með þessum fulltrúum okkar í framtíðinni.
Á liönum mánuðum hefur mjög þrengt aö atvinnufyrirtækj-
um hér á landi, sem sést glöggt á slæmri stööu margra
þeirra, auk þess sem mikil fjölgun hefur orðið á því aö fyrir-
tæki óski eftir greiðslustöðvun til að koma rekstri sínum á
réttan kjöl. Það virðist því óneitanlega blasa við heldur nöt-
urleg mynd i íslensku atvinnulífi um þessar mundir og reynd-
ar hefur þrengt mjög að einstaklingum á sama tíma. Það er
því Ijóst, að mikil barátta einstaklinga, fyrirtækja og stjórn-
valda er framundan, til að rétta við þann mikla halla sem er
kominn á skútuna. Þar duga engin vettlingatök.
— Sighvatur Blöndahl
7