Frjáls verslun - 01.09.1985, Blaðsíða 15
Bókin heldur velli
Flestir útgefendur eru sam-
mála um aö bókin muni enn um
ókomin ár halda velli sem jóla-
gjöf. Salan hafi dalaö fyrir tveim-
ur árum en sé nú aö ná sér upp
aftur. Segja þeir aö ’lslendingar
muni seint hætta að gefa vand-
aðar bækur i jólagjöf og þvi verði
jafnan erfitt aö gefa þækur út á
öörum árstímum svo nokkru
nemi. Minna má þó á aö bóka-
klúbbarnir gefa út bækur allt áriö
og meira ber á tilraunum nú en
áöur meö aö gefa út kiljur. Er
þeim einkum ætlaö aö vera
farvegur afþreyingarbókmennta
sem menn geti lesið í sumarfri-
inu. En þar er markaöurinn lika
erfiöur þvi þar eru fyrir timaritin.
Bókaútgefendur hafa jafnan
háö haröa samkeppni um mark-
aðinn, hugmyndir og höfunda.
Vissulega er sú samkeppni
áfram fyrir hendi en nú ber einn-
ig meira á ýmsu samstarfi þeirra
í milli. Á bókaþingi á liönu hausti,
hinu fyrsta komu fram fulltrúar
hinna ýmsu aöila og stétta sem
koma nálægt bókum, samningu,
prentun, útgáfu og sölu. Þar voru
flutt erindi um alla þessa þætti
og menn settu sig i hver annars
spor. Eftir bókaþingiö var stofn-
uö nefnd til aö fjalla um sam-
starfsleiðir og er nú i burðarliðn-
um Bókasamband islands. Er þvi
ætlað aö ýta undir og efla sam-
stööu þessara aöila allra er hafa
með bækur aö gera á einn eöa
annan hátt. Aukin samstaða
útgefenda t.d. varöandi sameig-
inlegar auglýsingar hefur þegar
haft nokkurn árangur i för meö
sér aö mati Eyjólfs Sigurössonar
og meö stofnun hins nýja sam-
bands vænta menn enn meiri
festu i þessu samstarfi. Segist
formaöurinn vona aö brátt veröi
hægt að gera eins og viöa er-
lendis að fá hlutlausan aöila til
aö safna upplýsingum frá útgef-
endum um upplag og sölu, allt
um bóksölu og hvert stefni í
þessum málum. Gætu útgefend-
ur síðan notaö þaö i starfi sinu.
Þá segir Eyjólfur þaö breytingu
frá fyrri árum aö nú sé þaö al-
mennt viðurkennt af útgefendum
aö markaðurinn þoli kringum
300 titla þessi árin. Vilji þeir nú
hugsa raunhæfara en áður og
leggi ekki út i blinda samkeppni.
Álag á haustin
Þekktur er sá vandi meöal
allra er fást viö útgáfu aö þar
sem flestar bækur koma út síö-
ustu vikur ársins er mikiö álag á
bókageröarmönnum á siöasta
ársfjóröungnum. Sem dæmi má
nefna aö Þorgeir Baldursson
forstjóri Odda lýsti þvi á bóka-
þinginu aö um 30% innbundinna
bóka væru unnar i Odda á fyrstu
8 mánuðum ársins en 70% árs-
framleiðslunnar fer fram siðustu
4 mánuöi ársins. Minnti hann á
aö hér væri ekkert fyrirtæki i
prentiðnaði er gæti starfaö ein-
göngu viö bókaframleiðslu, þar
yröu aö koma til aörir þættir og
sérhæfing þvi erfiðari. Þaö kæmi
fram i því aö viö vélakaup yröi aö
hafa sem mest i huga fjölþætt
not vélanna fremur en sérhæf-
ingu. Sagói Þorgeir aö bækur
væru um 26% af framleiðslu
Odda i dag en voru áriö 1981 um
33%. Á þessum tima hefur
heildarframleiðsla fyrirtækisins
rúmlega tvöfaldast.
Hagræðingar þörf
Ljóst má vera aö meö aukinni
skipulagningu má koma viö betri
nýtingu og hagræöingu i útgáfu-
starfsemi. Nokkuð er um þaö aö
forlög semji um vinnslu bóka
snemma á árinu gegn greiðslu
siöast á árinu og nái jafnvel
góöu veröi á þann hátt. Prent-
verkið er þá aö nýta annars
dauðan tima og forlagiö fær gott
verö. Þorgeir benti i erindi sinu
einnig á þætti eins og aukna
samvinnslu bóka. Hér væri alltof
mikiö um að hver bók væri unnin
sjálfstætt i staö þess aö staöla
þær meira og væri ótrúlegt hag-
ræöi aö þvi aö geta unniö fleiri
en eina bók í sömu vélastilling-
um. Einnig væri nánast óþekkt
aö útgefendur létu prenta fleiri
en eina bókarkápu samtimis.
15