Frjáls verslun - 01.09.1985, Blaðsíða 23
aö framleiða þau hérlendis, sal-
an sé ekki svo mikil. Nefna má
aó sumir framleiðendur ís-
lenskra lyfja eru einnig innflytj-
endur.
Þannig hefur til dæmis Stefán
Thorarensen einnig framleitt lyf
og nú undir vörumerkinu Toro og
er ætlunin að gera það að sér-
stöku sjálfstæöu fyrirtæki. Stef-
án Thorarensen hóf framleiðslu
á lyfjum á árunum fyrir strið,
Pharmaco sem er að mestu i
eigu apótekara rekur dótturfyrir-
tækið Delta sem er stór fram-
leiðandi. Pharmaco hóf fram-
leiöslu kringum 1960 en árið
1983 var dótturfyrirtæki þess
stofnað. Þá hefur Lyfjaverslun
rikisins verið stór framleiðandi
og starfa þar nú um 30 manns
við framleiðsluna sjálfa. Saman-
lagt framleiða þessi fyrirtæki all-
mörg lyf, nokkuð á annað hundr-
að tegundir skráðra sérlyfja.
í samkeppni við sjálfa
sig?
Lenda þessir aðilar þá ekki í
samkeþpni við sjálfa sig? Að
nokkru leyti. Auövitað eru hinir
erlendu framleiðendur sem þeir
eru umboðsmenn fyrir ekkert yfir
sig ánægðir með að þeir skuli
framleiða lyf til sölu hér i sam-
keppni. Hins vegar hugga þeir sig
við það að væri það ekki gert hér-
lendis myndi einhver annar aðili
og þá erlendur kanna markaðinn
hér. Lika má benda á að óliklegt
er að Toro framleiði lyf sem Stef-
án Thorarensen er umboðsmað-
ur fyrir, hann hlýtur að kanna
aðra möguleika áður.
Á sama hátt má segja með
Delta og má rekja dæmi á báða
vegu. Tagamet heitir lyf sem
Stefán Thorarensen flutti inn og
er ætlað til meðferðar á maga-
sárum, skeifugarnarsárum, bólg-
um i vélinda o.fl. Er það einnig
notað til langtimameðferðar til að
koma i veg fyrir að magasár end-
urtaki sig. Hafði það verið hér á
markaði i nærri 3 ár þegar Delta
kynnti nýtt sérlyf Cimetidin, en
virka efnið i Tagamet heitir cimet-
idin. Lyf Delta var nokkru ódýrara
en Tagamet og þannig hrapaði
sala þess allmikið niður þar sem
verkun lyfjanna var talin nánast
hin sama. Þá flutti Pharmaco inn
lyfið Naprosyn, sem inniheldur
naproxen en nokkrum árum siðar
voru bæði Stefán Thorarensen
og Lyfjaverslun rikisins komin
með lyfið Naproxen til að keppa
við Naprosyn.
En skiptir þá verðið öllu máli?
Alls ekki en miklu og vaxandi
máli. Læknar eru meira farnir að
hugsa um hvað lyfin kosta og
velja islenskt lyf ef það er til og
jafngott en vissulega þurfa þeir
þess ekki og geta auðveldlega
Garðs
Apótek
Sogavegi 108 Sími: 33090
Fyrir feröamanninn:
Sjúkrakassar
Snyrtivörur
Sólarvörur
23