Frjáls verslun - 01.09.1985, Page 24
variö notkun dýrara lyfsins ef
þeim sýnist svo. Hugsanlegt er
aö erlent lyf fari betur i einn sjukl-
ing og þaö islenska hæfi öðrum
sjúklingi betur.
Persónuleg kynning
En hvernig eru lyfin kynnt?
Þar eru nokkrar leiöir og allt miö-
ar aö þvi aö ná athygli læknisins.
Áhrifarikasta leiöin eru persónu-
leg samtöl. Starfsmenn lyfjafyr-
irtækjanna, heildsala eöa is-
lenskra framleiðenda, sem eru
lyfjafræöingar heimsækja lækn-
ana og ræöa viö þá um kosti og
galla lyfsins. Sýna þeir erlendar
greinar úr timaritum lækna, vis-
indagreinar og niðurstöður at-
hugana og láta þeim i té sýnis-
horn til aö reyna á sjúklingum
sinum. Athuga ber aö þetta geta
þeir fyrst gert þegar lyfiö hefur
veriö skráö, þá fyrst er almenn
notkun þess leyfileg.
Annar möguleiki eru ýmis kon-
ar fundir og ráðstefnur lækna.
Þá hafa hin erlendu lyfjafyrirtæki
iöulega boðiö á fundinn erlend-
um sérfræöingi sinum, lækni eöa
lyfjafræðingi og hann sýnir fram
á ágæti framleiðslunnar. Oft fara
slikir fundir fram hérlendis og oft
er læknum lika boöiö aö sækja
fundi og ráðstefnur ytra á kostn-
aö erlendu lyfjafyrirtækjanna.
Bent er á að svo ört komi ný lyf
fram aö læknar verói aö fá tæki-
færi til aö kanna hvaö nýtt er á
feröinni og hvers viröi þaö sé.
Þriöji möguleikinn eru auglýs-
ingar. Þær eru takmarkaðar en
aö vissu leyti markvissar þvi
lyfjaauglýsingar eru aöeins
leyfðar i timaritum lækna og
tannlækna t.d. Læknablaöinu,
Læknanemanum og Harðjaxli.
Aörir hafa litið meö lyfjaauglýs-
ingar aö gera og talið er víst aö
þessar auglýsingar hafi mikið aö
segja i aö viðhalda minni lækna
aö undangengnum fyrri kynning-
um.
Erlend framleiðsla á
íslandi?
En kæmi aö því aö hinir er-
lendu framleiöendur myndu vilja
setja hér upp útibú til aö pakka
lyfjum eöa annast hluta fram-
KAUPÞING HF
leiöslunnar? Þaö er talið ólik-
legt. Þessar hugmyndir eru þó til
umræöu og athugunar hjá sum-
um innflytjendum. Á þaö er aö
líta aö markaöur er litill og vafa-
samt hversu langt borgar sig aö
ganga í samkeppninni viö is-
lenskar eftirlikingar.
Annaö atriði má aö lokum geta
um en þaö er verðlagning á lyfj-
um til sjúklinga. Af kostnaði viö
erlend lyf greiöa sjúklingar 240
krónur en 120 krónur fyrir is-
lensk lyf. Þessi mismunun er
ekki alls kostar í samræmi viö
EFTA samninga islands en hing-
aö til hefur ekki verið hreyft við
þessu af ööru aðildarlandi. Er
taliö aö slíkt svari vart kostnaöi
og sé ekki áhættunnar viröi
enda gætu íslendingar þá tekiö
til ýmis dæmi um mismunun er-
lendis þegar t.d. fiskútflutningur
héöan á i hlut.
O 686988
A* allra ve
niulegra
arfa pá:
i f asteignastar f a
— Metum við mismunandi tilboð þannig að raunvirði þeirra
megi bera saman við hin ýmsu greiðslukjör.
— Reiknum við út kaupgetu með tilliti til eigin fjármagns og
lánamöguleika og sjáum hvernig kjör henta þér best.
— Skoðum og metum eignir, útbúum sérstök verðmöt fyrir
einstaklinga og fyrirtaeki, sem ekki eru í söluhugleiðingum.
Auk alls þessa bjóðum við uppá margskonar aðstoð á sviði
fjárvörslu, skuldabréfa og fjármálaráðgjafar.
Líttu vi3 og sjáSu hvað við getum gert fyrir þig þvi hjá okkur er
þekking og öryggi í fyrirrúmi
KAUPÞING HF
24