Frjáls verslun - 01.09.1985, Page 37
bænum og ég trúi því að stór-
markaöur af þvi tagi eigi framtíð
fyrir sér hér á islandi. Ef ekki hér,
hvar þá?
Þetta fyrirtæki öðlaðist ekki
styrk sinn á skömmum tíma. Það
er árangur þrotlausrar vinnu og
það var ekki fyrr en eftir 6-7 ár
að það var farið að standa
sæmilega styrkum fótum. Fyrir-
tækið á eignir; húsnæðið sem
það er hér i ásamt hlutanum i
Hagkaupshúsinu. Nefna má aö
við leigjum aðstöðu i húsi i
Grjótaþorpinu, þar sem er skrif-
stofa, saumaverkstæði og lag-
er.“
— Hver var velta fyrirtækisins
siðastliðið ár?
„Veltan hjá mér i fyrra var
um 40 milljónir króna og í ár
má gera ráð fyrir að hún verði
60-75 milljónir, þannig að um
aukningu verður að ræða á þil-
inu 50%-85%,“ sagði Garðar.
- Nú má segja að reksturinn
hafi gengið vel hjá þér og ekki sé
þar mikil lát á. Hverju þakkar þú
það?
„Ég þakka það ástundun og
„Góður
afgreiðslu-
maður er
heiðarlegur
kurteis og
ábyggi-
legur”
áhuga, en einnig aðstoð góðs
afgreiðslufólks.“
— Hvernig er góður af-
greiðslumaður?
Garðar brosir og veltir spurn-
ingunni fyrir sér augnablik, en
segir siðan: „Góður afgreiðslu-
maður er heiðarlegur, kurteis og
ábyggilegur. Þegar nýr af-
greiðslumaður byrjar hjá mér þá
fer fyrsti mánuðurinn hjá honum
algerlega í það að fylgjast með.
Siðan fer hann að gripa inn í
minniháttar afgreiðslur og síðan
þjálfast menn stig af stigi. Hún
er rétt sú skoðun min að það taki
minnst tvö ár að læra þessa hluti
sæmilega. Verslunarskólinn ætti
að senda sitt fólk á námskeið í
svona verslunum, vegna þess
að á þessu þyggjast verslunar-
störf að miklu leyti.
Ég er heppinn með það hvað
mér hefur haldist vel á mann-
skap, enda hef ég þá stefnu að
þorga góðum manni gott kaup
og þess vegna held ég í mitt
starfsfólk sem er mikill kostur.
Ég er þeirrar skoðunar að það
geta engir verið i forstjóraleik á
37