Frjáls verslun - 01.09.1985, Page 48
FJÖLMIÐLUN
Tekjur stöövarinnar fara
eingöngu eftir vinsældum
Texti: Ólafur Jóhannsson.
NÚ UM áramótin taka gildi
lög sem heimila rekstur frjálsra
útvarpsstööva meö ákveðnum
skilyröum. Hafa fá mál hin síö-
ari ár vakiö jafn miklar deifur
meðal stjórnmálamanna og er
Ijóst aö enn eru mjög skiptar
skoöanir um þessi mál. En eitt
er víst aö meö vorinu fá ríkis-
fjölmiölarnir, sjónvarp og
hljóðvarp samkeppni og hlýtur
þaö aö vera af hinu góöa.
Eitt er þaö fyrirtæki sem
mjög hefur veriö rætt um aö
fara muni af staö meö rekstur
sjónvarpsstöðvar og útvarps-
stöövar, en þaö er ísfilm sem er
sameign nokkurra aðila. Þeirra
á meöal eru „risarnir" í ís-
lenskri fjölmiðlum, Árvakur hf.
útgáfufélag Morgunblaösins og
Frjáls fjölmiðlun sem gefur út
DV. Þaö er því ekki óeðlilegt aö
búist sé viö samkeppni frá
þessu fyrirtæki af hálfu Ríkisút-
varpsins.
Til þess aö fá upplýsingar um
það hvaö væri á döfinni hjá ís-
film, ræddi Frjáls verslun við
Hjörleif B. Kvaran, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins og var hann
spurður að þvi hvað væri í far-
vatninu af hálfu ísfilm.
„Lögin um frjálsan útvarps-
rekstur taka gildi þann 1. janúar
næstkomandi. Samkvæmt lög-
unum á að kjósa útvarpsréttar-
nefnd sem veitir leyfi til útvarps-
rekstrar. Þann 1. janúar er þing-
iö i jólaleyfi, þannig að ekki verð-
ur úr kosningu nefndarinnar fyrr
en að afloknu jólaleyfi, en það
verður 15.—20. janúar. Ég veit
ekki hvað þetta tekur langan
tima af hálfu Alþingis, en það
byggist siðan allt á vinnubrögð-
um nefndarinnar hvenær hægt
verður að fara af stað.
Samkvæmt lögunum á
menntamálaráðherra að setja
reglugerð um framkvæmd
ákveðinna greina i lögunum, en
það er Ijóst að það verður ekki
Hjörleifur B. Kvaran
48