Frjáls verslun - 01.02.1986, Blaðsíða 20
Erfitt er að segja til um hvernig
tryggingamarkaðurinn skiptist milli
einstaklinga og fyrirtækja. Ljóst er
þó að um verulegar fjárhæðir er að
tefla á fyrirtækjamarkaðnum og talið
er að mörg fyrirtæki séu vantryggð.
Iðgjaldatekjur tryggingafélaganna á
árinu 1984 voru um 2.8 milljarðar
króna að endurtryggingum meðtöld-
um. Breytilegt er hve fyrirtækja-
tryggingar vega þungt í rekstri ein-
stakra tryggingafélaga. Sum eru nær
eingöngu með fyrirtæki en önnur
nær eingöngu með einstaklinga og
allt þar á milli. Hjá Sjóvátrygginga-
félagi íslands er þessi skipting
þannig að 45% af iðgjöldunum koma
frá fyrirtækjum og 55% frá einstakl-
ingum, að sögn Sigurjóns Pétursson-
ar, aðstoðarframkvæmdastjóra Sjó-
vá.
Það var Reykvísk endurtrygging
hf. sem reið á vaðið með samsettar
tryggingar fyrir fyrirtæki haustið
1983. Settar voru saman nokkrar
tryggingar sem fyrirtæki tóku á eitt
skírteini með einum gjalddaga. Næst
á eftir kemur Brunabótafélagið með
svonefnda verslunartryggingu árið
1984 eftir að Kaupmannasamtök Is-
lands höfðu óskað eftir tilboðum í
tryggingar fyrir verslanir félags-
manna. „Við sinntum kalli sem önn-
ur tryggingafélög hirtu ekki um“,
sagði Hilmar Pálsson, aðstoðarfor-
stjóri Brunabótafélagsins.
Almennar tryggingar voru þó þá
þegar farin að undirbúa samsettar
atvinnurekstrartryggingar og komu
með þær á markaðinn í apríl 1985.
Skilmálar þeirra voru um margt full-
komnari en það sem fyrir var á
markaðnum. „Tryggingarnar frá
Brunabót ýttu undir okkur að flýta
þeirri vinnu sem við vorum byrjaðir
á“, sagði Sigfús Sigurhjartarson, for-
stöðumaður atvinnurekstrartrygg-
inga hjá Almennum tryggingum.
„Við tókum þá stefnu að vanda skil-
mála okkar og auðkenna það sem
ekki var tryggt. „Smáa letrið" er
þannig orðið áberandi. Við lögðum
mikla vinnu í rannsóknir áður en við
settum þær á markaðinn. I allt fóru
ein tvö mannár í rannsóknir. Við vor-
um ekki að hlaupa til þótt við hefðum
fyrirmyndirnar erlendis. Aðalvinnan
var við uppbyggingu á iðgjalda-
skránni. Við sniðum atvinnurekstrar-
trygginguna að þörfum markaðarins
hér innanlands."
Aðdragandinn var líka langur hjá
Sjóvátryggingafélagi Islands. Fyrir
rúmu ári síðan hóf Sjóvá undirbún-
ing á samsettum atvinnurekstrar-
tryggingum og kynnti þær í byrjun
þessa árs.
Of margir gíróseðlar
Samsettar tryggingar eru engin
nýjung á íslandi. Heimilistryggingar
og húseigendatryggingar, sem lengi
hafa verið hér á markaðinum, eru
samsettar tryggingar. En samsettar
tryggingar höfðu ekki verið til gagn-
vart viðskiptalífinu. Fyrirtæki höfðu
oft aðeins tvær grunntryggingar,
bruna- og vatnsskaðatryggingu,
nokkur voru einnig með innbrots-og
þjófnaðartryggingu og í sumum til-
vikum voru menn með slysatrygg-
ingu launþega og frjálsa ábyrgðar-
tryggingu.
„Menn kvörtuðu undan því að fá
gíróseðla tvisvar til þrisvar á ári
þannig að við fórum að velta því fyrir
okkur hvemig mætti bæta úr og nið-
urstaðan varð þessi atvinnurekstrar-
trygging", sagði Sigfús Sigurhjartar-
son hjá Almennum og í sama streng
tók Sigurjón Pétursson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Sjóvá þegar spurt
var um tilurð atvinnurekstrartrygg-
ingarinnar.
„Við fórum út í þetta vegna
reynslu viðskiptamanna okkar. Það
kom oft fyrir að það vantaði upp á
tryggingar hjá mönnum einmitt þar
sem tjónin urðu. Við buðum því sam-
settar tryggingar til að ná utan um
stærsta hlutann af tryggingarþörf-
inni“, sagði Þórður Þórðarson, deild-
arstjóri hjá Brunabót
Það kom fram hjá þeim að fyrir-
myndin að samsettu tryggingunum
væri sótt erlendis til Norðurland-
anna, Englands og meginlands Evr-
ópu. Þeir hjá Almennu tryggingum
lögðu þó áherslu á að þessar trygg-
ingar væru einnig sprottnar upp af
þörf íslenska markaðarins og sniðn-
ar að honum.
Framboðið
Atvinnurekstrartryggingin hjá Al-
mennum og Sjóvá felur í sér tólf
tryggingar og skiptist hún í tvennt,
grunnvernd og viðbótarvernd.
Grunnverndin nær til fimm vátrygg-
ingarþátta. Þessir þættir eru: Bruna-
trygging, innbrotsþjófnaðartrygging,
vatnstjónstrygging, rekstrarstöðvun-
artrygging og ábyrgðartrygging.
Viðbótartryggingin skiptist í sjö
þætti sem sniðnir eru að mismun-
andi þörfum hvers fyrirtækis. Þessir
sjö þættir eru: Slysatrygging laun-
þega, almenn slysatrygging, ferða-
trygging, húseigendatrygging, gler-
trygging, kæli-og frystivörutrygging,
vélatrygging og rafeindatækjatrygg-
ing.
Samsettar tryggingar fyrir at-
vinnureksturinn hjá Brunabót nefn-
ast iðnaðartrygging og verslunar-
trygging en auk þess er Brunabót
með samsettar tryggingar fyrir al-
mennan rekstur. Þessar tryggingar
fela í sér níu til tíu tryggingar. Þær
skiptast í tvennt, kjarna og val. í
kjarnanum eru lausafjártrygging,
TRYGGIUMPIG
Á FERÐ OG FLUGI HÉR.ÞAR OG ALLSSTAÐAR
tVmWelil
Laugavegi 178
Sími 621110