Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1986, Side 22

Frjáls verslun - 01.02.1986, Side 22
0 reikninginn að skilmálar hafa verið víkkaðir út og athuga þarf til dæmis hvort sjálfsábyrgð sé jafn há í öllum tilvikum. Þegar á heildina er litið er hagkvæmnin við samsettu trygging- arnar fyrst og fremst fólgin í víðtæk- ari vernd en áður fyrir svipuð eða lægri iðgjöld. Forsvarsmenn tryggingafélag- anna þriggja vísa því á bug að verið sé að selja fyrirtækjum meiri trygg- ingar en þau þurfa. Þvert á móti. „Reynsla okkar er sú að íslensk fyrir- tæki séu frekar vantryggð en hitt. Okkur hefur komið mest á óvart hvað fyrirtækin vita lítið um trygg- ingamál sín og þau telja sig vera bet- ur tryggð en þau eru í reynd“, sagði Ólafur Ingólfsson, deildarstjóri markaðsdeildar hjá Almennum tryggingum. „í sumum tilvikum hafa fyrirtæki tryggt sig miðað við ákveðna stærð og umsvif eins og þau voru fyrir mörgum árum. Trygg- ingin hefur síðan tekið breytingum miðað við vísitölu en oft gleymist alveg að taka vöxt fyririrtækisins með í reikninginn." Góðar viðtökur „Það sem háir okkur ef til vill er að við höfum ekki nógu marga sölu- menn til að anna eftirspurninni“, sagði Sigurjón Pétursson hjá Sjóvá. Svo góðar undirtektir hafa þessar tryggingar fengið. „Við byrjuðum á því að bjóða viðskiptavinum okkar þessar tryggingar og undantekning- arlítið hafa þeir viljað þær fremur en þær tryggingar sem þeir höfðu áður“, sagði Ólafur Ingólfsson hjá Almennum tryggingum. Viðtökurnar eru góðar en er það framtíðin að tryggingar fyririrtækja færist í þetta horf? „Áreiðanlega. Það sem þegar er komið á markaðinn má vafalaust líta á sem fyrsta skrefið inn í framtíð- ina“, sagði Sigurjón Pétursson hjá Sjóvá. „Þetta er miklu stórkostlegri hlutur en menn gera sér almennt grein fyrir við fyrstu sýn. Þetta færir fyrirtækin nær því marki að vera rétt tryggð. Með samsettum tryggingum eru minni líkur á að eitthvað verði út undan.“ „Þetta er framtíðin og samfara þessu hefur orðið sú ánægjulega BBC Master Enn á ný kemur Acorn Computers meö tölvu á markað sem uppfyllir kröfur þeirra vandlátu. Tölva sem er kjörin fyrir: ★ Tölvugrúskara ★ Skóla ★ Fyrirtæki BBC Master128 með skjá og drifi Grunntölvan, Master 128 er með 65C12 CMOS 8 bita örtölvu sem gengur á 2MHz, 128kb, RAM, 128kb ROM, með sérstakt talnalyklaborð, innbyggðri ri- tvinnslu, áætlanagerðarforriti, sam- skiptaforriti, teikniforriti, BBC basic, stýrikerfi og tveimur diskstýrikerfum, með 12" grænum skjá og 650kb disk- stöð. Kr. 42.900.- BBC Master 512 MSDOS Master 128 er stækkanlegur og fyrir aðeins kr. 29.900,- ertu kominn með Master 512 MSDOS 80186 16 bita ört- ölvu sem gengur á 8MHz, með 512kb RAM minni og allt að 256kb ROM. Innifaliðert.d. a. Dos+ diskstýrikerfi sem gefur sam- ræmanleika við MSDOS 2,1 og CP/M86 b. Acorn mús. c. GEM hugbúnaður: GEM Desk Top, GEM Paint, GEM Write. Forrit: Fjárhags- og viðskiptamannaforrit. Lager- og verðútreikningar, tollaforrit. Yfir 16 þúsund kennsluforrit ásamt fjölda íslenskra kennsluforrita. Fyrsta flokks forritunarþjónusta. Forritunarmál: íslenskt LOGO, PASCAL, PROLOG, LISP, FORTRAIN 77, BASIC (innbyggt), PCPL. */ V Hafnarstræti 5, - sími 19630 - 29072. 22

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.