Frjáls verslun - 01.02.1986, Blaðsíða 30
Ásmundur er fæddur í Reykjavík
1945. Að loknu stúdentsprófi hélt
hann til Danmerkur og lauk hag-
fræðinámi frá Kaupmannahafnarhá-
skóla 1972. Hann hóf síðan störf hjá
Hagvangi, sem þá var að byrja
starfsemi, en 1974 var hann ráðinn
til Alþýðusambands íslands og hefur
starfað þar síðan að frátöldu einu ári
1978 til 1979 er hann var lektor við
Háskóla íslands. Hann var ráðinn
framkvæmdastjóri Alþýðusam-
bandsins 1979 og kjörinn forseti
þess 1980.
— Hvers vegna valdir þú hag-
fræðinámið?
„Ég valdi það vegna þess að mér
fannst það vera áhugavert. Ég hafði
þó engin sérstök framtíðaráform
með þetta nám. Líklega var það með
mig eins og svo marga sem koma út
úr menntaskólanámi að útilokunar-
aðferðinni er beitt við val á fram-
haldsnámi."
— Hvað kom til að þú réðir þig til
ASÍ?
„Ástæðan fyrir því var ósköp ein-
föld. Ég hafði áhuga fyrir baráttu-
málum verkalýðshreyfingarinnar og
því starfi sem þar var unnið."
— Var það ekki nýtt á þessum
tíma að ASÍ réði til sín hagfræðing?
„Guðmundur Ágústsson, sem var
hér skrifstofustjóri nokkrum árum
áður en ég var ráðinn til ASÍ, er hag-
fræðimenntaður. Engu að síður má
segja að þetta hafi verið nýbreytni.
Starfi hagfræðings var komið á í
kjölfar ákvörðunar um ríkisstyrk.
Upphaflega fluttu Björn Jónsson og
Ólafur Björnsson tillögu á Alþingi
um þennan styrk og var hann síðan
tekinn upp í stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnar Ólafs Jóhannessonar 1971.
Með því fékkst styrkur bæði til ASÍ
og VSÍ. í kjölfar þessa var tekin sú
ákvörðun hjá Alþýðusambandinu að
ráða hagfræðing."
— Heldur þú að það hafi breytt
verkalýsbaráttunni að verkalýðsfé-
lögin fengu menntaða hagfræðinga
til að vinna upplýsingar fyrir forystu-
mennina?
„Þetta er ekki orsök heldur afleið-
ing af breytingum. Það er alveg ljóst
að samningar eru orðnir flóknari og
víðtækari en áður og það hefur kall-
að á breytt vinnubrögð og sérfræði-
aðstoð."
— Eru þetta breytingar til góðs?
„Ég er ekki viss um það. Ég held
að ýmsir þættir í þessu starfi hafi
snúist til hins vera í tímanna rás. Fé-
lagslega eru ýmsir sterkir kostir við
þá einföldu launabaráttu sem háð
var hérna áður. Við getum sagt að þá
hafi verið auðveldara að ná sam-
stöðu og taka á málum.
Hins vegar er augljóst að halda
verður á málum eftir aðstæðum. Til
þess að tryggja afkomu launamanna
í víðtækri merkingu verðum við að
láta til okkar taka á sem flestum
sviðum. Það er að vísu ekki nýtt að
tekið hafi verið á mörgum félagsleg-
um atriðum allt frá upphafi verka-
lýðshreyfingarinnar. Barist hefur
verið fyrir bættum almannatrygging-
um, atvinnuleysistryggingum lífeyr-
SUPERFONE
HT-660-2E
er Japanskur 2ja lína borðsími
af fullkomnustu gerð.
Meðal eiginleika: Handfrjálst val og tal.
Styrkstillir á hátalara.
Tón og púlsvak Fundarstilling.
60 númera hraðval. Jarðhnappar.
Ljósaborð er sýnir valið númer. Klukka með minni.
Endurval á síðasta númeri. Reiknivél o.fl.
Leitið nánari upplýsinga.
Rafeindatæki
Stigahlið 45-47Sími 9131315
30