Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1986, Blaðsíða 34

Frjáls verslun - 01.02.1986, Blaðsíða 34
in en BSRB megin vegna þess að hjá okkur er kerfið þannig að hvert og eitt verkalýðsfélag hefur sjálft allt ákvörðunarvald um samninga. Miðstjórn ASÍ getur ekki tekið ákvarðanir um verkfallsboðun eða endanlegan frágang samninga. Við verðum að leita til verkalýðsfélag- anna með allar slíkar ákvarðanir.“ Veikirí þjóðfélagsumræðunni — Það hefur verið gagnrýnt að verkalýðshreyfingin hafi of mikið vald, sé nokkurs konar ríki í ríkinu, bæði að áhrifum og einnig vegna þess hve miklir fjármunir renni í sjóði verkalýðsfélaganna. „Þetta er gagnrýni sem kemur stundum fram. Rétt er það. Þegar verkalýðsfélög boða til verkfalla er það talin hættuleg aðgerð. Þegar at- vinnurekendur sigla bátum í höfn, stöðva vinnslu eða stoppa steypu- stöðvar er það hins vegar litið svolít- ið öðrum augum af sömu aðilum. Auðvitað er augljóst að stærri fyr- irtæki í atvinnulífi okkar og samtök atvinnrekenda hafa mjög sterkt þjóðfélagslegt vald. Við getum líka bætt því við að samtök atvinnurek- enda hafa byggt sig upp miklu skýr- ar og ákveðnar með það fyrir augum að hafa pólitísk áhrif. Þau hafa kom- ið upp sjálfstæðum pólitískum stofn- unum eins og Verslunarráði Islands. Líku máli gegnir um samtök eins og Félag íslenskra iðnrekenda, Lands- samband iðnaðarmanna, Landssam- band íslenskra útvegsmanna. A vett- vangi samtaka atvinnurekenda hefur verið komið á fót sterkum stofnun- um með mörgum sérfræðingum til þess að vinna upp gögn og undirbúa mál og með því hefur samtökum at- vinnurekenda tekist að búa sér mjög sterkt pólitískt hlutverk. Ég held að vandamálið í dag hvað þetta snertir sé þess vegna þvert á mót að verkalýðsfélögin séu of veik í þjóðfélagsumræðunni. Þau hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að halda uppi stofnunum af því tagi sem samtök atvinnlífsins halda uppi. Því má bæta við að okkar fólk er ekki í sömu aðstöðu til að aðstoða við málefnaundirbúning og forystu- menn í atvinnulífinu. Forstjórar í fyr- irtækjum geta mætt á fundi í vinnu- tíma sínum en ef við ætlum að leita til félagsmanna okkar þarf að biðja um frí úr vinnunni fyrir þá. I öðru lagi hefur starfsfólkið ekki aðgang að sömu upplýsingum og þeir sem sitja í forstjórastólunum." Lokaðir fyrir nýjungum — Á íslandi hefur ríkt stöðnun í yfir áratug og hagvöxtur verið minni en í nágrannalöndunum. Hver er skýringin á þessu að þínum dómi? „Meginskýringin á þessu er sú að við höfum ekki sótt fram með eðlileg- um hætti. Við höfum á undanförnum áratugum fjárfest af of miklu handa- hófi og skipulagsleysi. I flestum til- fellum hefur draumurinn um verð- bólgugróða ráðið meiru en það sjón- armið að auka framleiðni eða afköst. Við höfum með röngum fjárfesting- um bundið okkur bagga sem framtíð- in verður að bera og við stöndum frammi fyrir nú sem erfiðu úrlausn- arefni. Fjárfestingar hafa ekki geng- ið nægilega vel til uppbyggingar. Það sama má segja um stjórnunarhætti í fyrirtækjum. Við erum greinilega langt á eftir nágrannalöndunum í öllu innra skipulagi fyrirtækja og allri almennri stjórnun. Ég held að þessir tveir þættir séu grundvalalrskýringin á því hve illa hefur gengið. Við höfum einnig haft sterka tilhneigingu til að viðhalda því sem er fyrir. Við höfum verið lokuð fyrir nýbreytni, hvort sem um er að ræða nýjar vörur eða nýjan atvinnu- rekstur. Fjárfestingalánasjóðirnir eru bundnir því að lána til hefðbund- inna verkefna. Öll almenn fyrir- greiðsla beinist líka að því sama. Þeir sem eru ábyrgir fyrir ákvarðanatöku úti í atvinnulífinu hafa einnig verið haldnir sömu íhaldsseminni." Engin ein lausn — Hefur þetta ekki verið að breytast nú á síðustu misserum? „Ég held að þetta sé mikið að breytast. Ég held þó að við íslending- ar höfum ákveðna tilhneigingu til þess að grípa eina einfalda lausn á öllu. Það getur gengið í einstaka til- fellum. Við getum tekið uppbygg- ingu togaraflotans sem dæmi um mjög mikilvæga og á sínum tíma rétta ákvörðun þótt síðar hafi verið gengið of langt. Með uppbyggingu togaraflotans á áttunda áratugnum tókst að gjörbreyta atvinnuástandi í kringum landið að vetararlagi þar sem tímabundið atvinnuleysi hafði ríkt og sanna að við íslendingar vær- um þess megnugir að fullnýta fiski- miðin við landið án aðstoðar útlend- inga. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að það er engin ein slík lausn á atvinnuuppbyggingu fram- tíðarinnar. Þættir eins og fiskeldi og loðdýrarækt eru allt hluti af upp- byggingu fyrir framtíðina en ekki eini lykillinn að henni.“ — Hvern þátt á byggðastefnan eins og hún hefur verið rekin í stöðn- un lífskjara? „Byggðastefnan sem slík er í fullu samræmi við almennan pólitískan vilja í landinu. Yfirgnæfandi meiri- hluti þjóðarinnar er reiðubúinn til að kosta þónokkru til að halda uppi öflugri byggðastefnu. Á hinn bóginn hefur byggðastefnan ekki skilað því sem hún átti að skila, fyrst og fremst vegna þess að landshlutarnir hafa ekki haft nægilegt sjálfræði og ákvörðunarvald um hvernig það fjár- magn sem er til ráðstöfunar er nýtt. Forgangsröðin er í reynd handa- hófskennd og ákveðin í Reykjavík í stað þess að hún sé ákveðin af þeim sem hlut eiga að máli úti á lands- byggðinni. Mín skoðun er sú að byggðastefnan eigi að vera rekin af meiri ábyrgð þannig að þeir sem eru úti í landshlutunum viti að þeir hafi úr ákveðnum fé að spila og geti nýtt það eins og þeir telja henta sínum landshluta best.“ Markaðurinn óréttlátur — Það fer vart fram hjá neinum að þið hjá ASÍ hafið gagnrýnt stefn- una í landbúnaðarmálum. Hverju er helst ábótavant þar? „Það geta verið mismunandi sjón- armið innan ASÍ á landbúnaði. Fyrir mitt leyti vil ég segja að landbúnað- arstefnan virðist miða að því að eins margir bændur og hægt er geri eins lítið og hægt er. í reyndinni er stefnt að mjög dýru framleiðslukerfi og ég held satt að segja að þar sé 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.