Frjáls verslun - 01.02.1986, Side 40
„Þjóðviljinn lítur á málin út frá og Frjáls verslun. Sennilega er ég sá
þröngu pólitísku sjónarmiði, svipað eini sem rætt hefur verið við þar sem
er ekki hægra megin við miðju. Við
erum ekki í aðstöðu til þess í verka-
lýðshreyfingunni að horfa á heiminn
í gegnum lituð gleraugu. Við verðum
að taka mið af þeirri aðstöðu sem við
búum við á hverjum tíma. Við verð-
um að vinna út frá þeim forsendum
sem við stöndum frammi fyrir og
verðum að ná því besta út úr hverri
stöðu Það er alveg ljóst að það sem
gerist er ekki alltaf í samræmi við
óskir þeirra sem ráða stefnunni á
Þjóðviljanum."
Ráðum ekki öllu
— Þér hefur verið lýst sem rök-
föstum og faglegum en hreyfinguna
vanti samt pólitískan leiðtoga. Hvað
viltu segja um þessa palladóma?
„Ég held að það sé eðlilegra að
gefa öðrum kost á að meta það
hvaða áhrif ég hef á aðra. Hins vegar
er það mitt mat að mér hafi tekist
mjög vel að fylkja okkar hópi saman
þannig að mér hafi bæði tekist að ná
til samstarfsmanna minna og ná til
fólksins í hreyfingunni."
— Hvað telur þú ráða velgengni
einstaklinga í starfi út frá reynslu
þinni sem stjórnanda í stórri hreyf-
ingu?
„Nú er orðið stjórnandi ekki rök-
rétt í þessu samhengi vegna þess að
verkalýðshreyfingin er ekki eins og
her þar sem þeir sem kjörnir hafa
verið til æðstu forystu geti gefið
skipanir að vild sinni. Ég hef satt að
segja á tilfinningunni að við séum oft
í sömu aðstöðu og kóngurinn í sög-
unni um litla prinsinn. Þar segir frá
SalaOgLeiga
0
A
Atvinnuhúsnæði
Verðmat og sala
fyrirtækja. Aðstoð
við eignaskipti á
fyrirtækjum.
40^^621600
| Borgartún 29
mmump
Ragnar Tómasson hdl
því að litli prinsinn kemur á stjömu
þar sem kóngur situr í hásæti sínu.
Kóngurinn segir: „Sestu“, en litli
prinsinn segir: „Nei ég vil standa“.
Þá segir kóngur: „Stattu, því ég vil
að mér sé hlítt." Ég held stundum að
við séum í sömu stöðu og kóngurinn
í þessari sögu. Við getum ekki alltaf
ráðið því hvað gerist.
Hins vegar er alveg ljóst að það
fellur í okkar hlut sem emm í æðstu
forystu að eiga frumkvæði að mál-
um. Við verðum að leggja meginlínur
og til þess að geta gert það af ein-
hverju viti verðum við að hafa víð-
tækt samráð við fólk í hreyfingunni,
vita hvaða sjónarmið em ríkjandi á
hverjum tíma. Við verðum að hafa
gott stöðumat og hafa traust til þess
að fólk sé tilbúið að fylgja þeim vilja
sem við reynum að fá hreyfinguna til
að sameinast um. Þannig að við lend-
um ekki í sömu aðstöðu og kóngur-
inn í sögunni. Þegar við segjum
stattu verði sest.“
Þingframboð?
— Hefðir þú áhuga á því að beita
þér fyrir hagsmunum verkalýðs-
hreyfingarinnar innan sala Alþingis?
„Ég er ekki viss um að það væri
skynsamlegt. Starf forseta Alþýðu-
sambandsins er mjög mikið og tíma-
frekt starf. Hins vegar vil ég ekki
heldur útiloka að það gæti komið til
greina. Það geta verið því ýmsir kost-
ir samfara því að hafa aðgang að söl-
um Alþingis til þess að hafa frum-
kvæði að umræðum um mál og
koma sjónarmiðum á framfæri. En
málið hefur ekki verið til umræðu á
þeim forsendum."
Þú boigaralltaf sama gjaldið,
hvort sem þú ert einn eða með fleirum í bílnum!
Hreyfill bvður sætaferðir til Keflavíkur
Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt aö fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíl.
Hringdu í okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluöum flugtíma. Við vekjum þig
með hressilegri símhringingu, óskir þú þess.
UREVfíU.
68 55 22
40