Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1986, Síða 50

Frjáls verslun - 01.02.1986, Síða 50
Formannaskipti. Ragnar S. Halldórsson, fráfarandi formaður Verzlunar- ráðsins afhendir nýkjörnum formanni, Jóhanni J. Ólafssyni, fundarhamar ráðsins. athafna. „Þetta voru umbúðalausar og djarfar tillögur sem þá stungu í stúf við orðagjálfur og gervilausnir, sem höfðu einkennt þjóðmálaum- ræðuna um allt of langan tíma. Þess- ar tillögur brutu ísinn og opnuðu augu manna fyrir því að nú yrði ekki lengur vikist undan því að stokka upp efnahagskerfið,“ sagði Ragnar. Hann minnti á hvernig ætlað var að ná niður verðbólgunni með því að rjúfa víxlgengi launa og verðlags og að lækka óbeina skatta og skera nið- ur ríkisútgjöld. Aðhald í ríkisrekstri skortir „Báðar þessar leiðir, a.m.k. að hluta til höfum við séð í framkvæmd. Á árinu 1983 var víxlgengi launa og verðlags rofið. Þessi ráðstöfun var óhjákvæmileg, enda stefndi í að verðbólgan kæmist á svipað stig og í Suður-Ameríku. í stað óðaverðbólgu ársins 1983 varð verðlag nær stöð- ugt upp úr miðju ári 1984. Aðhald í ríkisrekstrinum hefur hins vegar skort. Árið 1984 leiddi halli ríkis- sjóðs til þenslu á vinnumarkaði sem loks kom fram í kjaraátökum hausts- ins með kunnum afleiðingum." sagði Ragnar ennfremur. Þá gat hann nýgerðra kjarasamn- inga og hvemig ætlunin væri að ná niður verðbólgunni og hvatti hann menn til að ná samstöðu um þessi málefni. Sagði hann viðbrögð ríkis- valdsins ráða því hve varanlegur árangurinn verður ef nú tekst að ná markmiðum kjarasamninganna. „Veiki punkturinn er hversu hratt er ekið. Við höfum þegar tekið út all- ar þær kjarabætur sem bætt við- skiptakjör gefa tilefni til. Gengi dollarans gagnvart Evrópumyntum má heldur ekki falla að marki. Veik- asti hlekkurinn er þó hallinn á ríkis- sjóði. Innlend lánsfjáröflun ríkisins leys- ir ekki vandann. Ef ríkissjóður stefn- ir í stórfelldar lántökur á innlendum markaði er ljóst að þær valda þenslu, spenna upp vexti og leiða til aukinn- ar ásóknar annarra á erlenda lána- markaði. Ef ætlunin er að ná varan- legum árangri er ljóst að halla ríkis- sjóðs verður að eyða. Samkvæmt fjárlögum nema áætlaðar afborgan- ir og vextir ríkissjóðs í ár tæplega 22% af tekjum. Á næstu þremur árum stefnir hlutfallið í 27% og þeg- ar við bætast núverandi Iántökuhug- myndir, stefna fjármál ríkissjóðs í algjört óefni. Það verður að ná end- um saman án lántöku," sagði Ragnar S. Halldórsson. Þá vék hann nokkrum orðum að stjómarskránni og því hlutverki hennar að vernda einstaklinga gegn útþenslu og yfirgangi ríkisvaldsins. Minnti hann á hvernig Hæstiréttur hefur nýlega staðfest sjálfstæði sitt í dómum og dregið línur um embætt- istakmörk yfirvalda. Með stofnun Réttarverndarsjóðs árið 1981 vildi Verzlunarráðið leggja sitt að mörk- um til að styrkja félaga gegn mögu- legri valdníðslu. Sagði hann augu manna hafa beinst að þeirri tilhneig- Gunnar M. Hansson, forstjóri IBM á íslandi stjórnaði aöalfundinum. 50

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.