Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1986, Side 55

Frjáls verslun - 01.02.1986, Side 55
Séö yfir vinnusvæöi ístaks í Færeyjum. Þaö þýöir lítiö aö bjóöa íslendingum upp á skerpukjöt og því síöur hvalspik. Strákarnir hjá ístak eru því með íslenskar matseljur og fá íslenskan mat og engar refjar. 11 þúsund fermetra lóð. Alls á þessi framkvæmd að kosta liðlega 20 mill- jónir danskra króna eða um 100 millj. ísl. kr. Um 20 íslendingar vinna á vegum Istaks hf. við þetta verk og eiga þeir að ljúka við að steypa upp stöðina fyrir næsta haust. Endanleg- um frágangi að síðan að vera lokið vorið 1987. U ndirverktakar — ístak hf. hefur ekki áður verið með verk í eigin nafni erlendis, en þetta verk bauðst okkur þannig að E. Phil & sön leituðu til ístaks hf. Þetta hefur auðvitað mjög mikið að segja fyrir fyrirtækið, vegna ástandsins á verktakamarkaðnum heima á Is- landi. fstak hf. er að vísu með stór- verkefni í gangi, byggingu K-álmu Landsspítalans og nokkur minni verkefni, en ef þetta Færeyjaverkefni hefði ekki komið til, hefðum við þurft að leggja öllum jarðvinnutækjunum, segir Sævar. Og ístak hf. er svo sannarlega með stórvirk tæki í sinni þjónustu. Alls staðar eru stórvirkar ýtur, gröf- ur og grjótflutningsbílar í gangi og Sævar segir að verkið gangi sam- kvæmt áætlun. Við spyrjum hann hvernig það sé að vinna í Færeyjum, miðað við þá vinnu sem hann og fé- lagar hans eru vanir frá íslandi. — Þetta er ósköp svipað. Úthald- ið hér er heldur lengra en við eigum að venjast við virkjanaframkvæmd- irnar heima. Við vinnum fjórar vikur í einu og eigum frí þá fimmtu. Að öðru leyti er þetta eins og sú vinna sem við höfum átt að venjast. Þetta er mikil skorpuvinna og mönnum gefst varla tími til annars en að vinna og sofa, segir Sævar og eftir að hann hefur sagt okkur frá vinnutímanum, er hægt að skilja að frístundirnar eru ekki margar. fstaks-menn vinna nefnilega sex daga vikunnar frá hálf átta á morgnana til klukkan hálf átta á kvöldin. Undantekningin er laugar- dagur en þá er „aðeins“ unnið til hálf fjögur. Vinnuvikan er því 70 tímar, en Sævar segir það svipað því og menn eiga að venjast. — Það er hægt að venjast öllu og sumir vilja vinna enn lengur, segir hann og glottir til strákanna sem heyrðu til hans. Borga skatta á tveim stöðum Það er víst að vinnutíminn er lang- ur á „Veginum langa“, eins og gatan heitir þar sem sorpeyðingarstöðin á að rísa. Kaupið segir Sævar gott í dönskum krónum talið en eini gall- inn er sá að íslendingamir þurfa að greiða skatta á tveim stöðum. Stað- greiðslukerfi er á sköttum í Færeyj- um og þar fer helmingur launanna í skatta og svo þurfa strákarnir hjá fstak hf. auðvitað að gjalda skatt- heimtumönnum á íslandi skatta síð- asta árs. En þetta gengur allt saman og mönnum safnast fé fremur en hitt á þessu fyrsta ári. Menn eru því spenntir fyrir því að vera þarna áfram því möguleikarnir á að leggja fyrir fé aukast verulega þegar aðeins þarf að greiða skatta á einum stað. — Það vantar vinnuafl hér i Fær- eyjum og í sumar reikna ég með því að við verðum með um 30 íslendinga í vinnu. Við vonum auðvitað að það geti orðið framhald á þessari starf- semi hér í Færeyjum. Það virðast vera nóg verkefni framundan hér á eyjunum á sama tíma og allt er í bið- stöðu heima á íslandi. Það reka engir verktakafyrirtæki ef þeir verða að leggja vélunum sökum verkefna- skorts, sagði Sævar Kristbjörnsson. 55

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.