Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1987, Side 23

Frjáls verslun - 01.06.1987, Side 23
ilar 20% þjóðarinnar lifir af bílum mmm. .«1 t L i\ ■'\ Að meöaltali voru fluttir til landsins 7700 bílar síðustu tíu árin fyrir tollalækkun en nú stefnir í innflutning 13000 bila að meðaltali til ársins 1991, samkvæmt upplýsingum frá þjóöhagsstofnun. Texti: Þorsteinn G. Gunnarsson Myndir: Gunnar Gunnarsson o.fl. Það hefur aldrei þótt góð lat- ína að henda brúkhæfum hlut- um hér á landi enda ekki ýkja mörg ár liðin síðan þjóðin hafði rétt í sig og á. Heldni okkar á ónýtanlega hluti hefur oft verið með ólíkindum og fáir hafa lýst henni betur en nóbelsskáldið okkar í Islandsklukkunni þar sem segir af ömmu Jóns Hregg- viðssonar og gömlu skinnpjötl- unum. Skinnin voru blöð úr Skáldu, bókinni sem Arnas Amæus hafði leitað að I heil sjö ár. Kerling hafði eitt sinn bleytt upp eitt blaðið og reyndi að bæta brók Jóns síns en blaðið var þá vita ónýtt og hélt ekki þræði. En það hafði aldrei verið siður að henda nokkru nýtilegu hvorki þar í sveit né annars staðar á landinu og það var verulega slæm skinnpjatla sem ekki var til einhvers nýt í hörðu ári. „Ólukkans rifrildið“ lenti því í rúmbotni kerlingar og var þar þangað til silfurspesían og Arne Arnæus komu til sögunn- ar. Kerling hefði vissulega fengið meira fyrir skinnblöðin á opinberum bóka- markaði en við Rein á Akranesi var tæpast hægt að láta markaðinn ráða verðlagingu skinnpjatlanna. Kerling fékk því ekki raunvirði fyrir skinnin en hafði engu að síður silfurspesíu fyrir ómakið við að geyma pjötlurnar sem sannarlega nýttust henni að lok- um og það var vel. Nýtnishugsjón kerlingar er rík í okkur íslendingum, útúrfullir kjall- arar, fullar geymslur og hlaðin háa- 23

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.