Frjáls verslun - 01.06.1987, Page 35
Á framkvæmdastjórnarfundi. Talið frá vinstri: Lilja Ólafsdóttir framkvæmdastjóri notendaráðgjafarsviðs, Stefán
Kjærnested framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs, Jón Þór, Viðar Ágústsson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Karl
Ólafsson yfirkerfisforritari og Þorsteinn Garðarsson framkvæmdastjóri rekstrarráðgjafar- og hugbúnaðarsviðs.
Karl Ólafsson sat fundinn í forföllum Doglas Brotchie framkvæmdastjóri tæknisviðs.
upplýsingar þarf að sækja annars
staðar og hvað á að vinna úr þessum
upplýsingum. Með því að nálgast
verkefnið á þennan hátt verður
tölvuvæðingin afleiðing af raunveru-
legri þörf og menn velja vélbúnað og
hugbúnað samkvæmt því.
Hjá SKÝRR eru varðveittar ýmsar
mikilvægar upplýsingar svo sem
þjóðskrá, bifreiðaskrá, fasteignaskrá,
skipaskrá og lagasafnið. Færst hefur
í vöxt að einkaaðilar sýni þessum
upplýsingum áhuga og ef þeir, sem
eiga þessar upplýsingar, gefa leyfi
geta menn fengið aðgang að þeim.
Tryggingafélög og bifreiðaumboð
geta fengið aðgang að bifreiða-
skránni. Fyrirtæki í þessum greinum
geta tengst SKÝRR beint og kallað
upplýsingar frá okkur upp á skjá hjá
sér jafnóðum og þau þurfa á þeim að
halda. Af þessu er augljóst hagræði.
Það er hlutverk okkar að gera að-
gang að þessum upplýsingum ein-
faldan til þess að auka notagildi
þeirra. Við þurfum jafnframt að gæta
fyllsta öryggis þannig að enginn
óviðkomandi komist í þær upplýs-
ingar sem við höfum.“
— Getur ekki verið tvíbent að gefa
upplýsingar um einstaklinga svo
sem bifreiðaeign, fasteignir og jafn-
vel veðsetningu eigna?
„Það kann að vera en þessar upp-
lýsingar standa til boða annars stað-
ar. Við bjóðum aðeins þægilegri og
aðgengilegri miðil. Við verðum líka
að gera greinarmun á því hvort verið
er að veita einfaldar upplýsingar um
afmarkaðan þátt eða hvort verið er
að skrá upplýsingar um persónulega
hagi manna með skipulegum hætti
þar sem upplýsingar úr mörgum
skrám eru lesnar saman. Lögin um
skipulega skráningu upplýsinga
veita einstaklingum vemd gegn því
að einhverjir aðilar í þjóðfélaginu
geti aflað ítarlegra upplýsinga um
persónulega hagi þeirra."
Gínum ekki yf ir mark-
aðnum
— Nú er SKÝRR í eigu opinberra
aðila. Má ekki hugsa sér annað
rekstrarform á fyrirtækinu?
„Vissulega má velta því fyrir sér.
Ég er þó ekki viss um að ríki og borg
muni vilja fela einkafyrirtæki að
varðveita þær viðkvæmu upplýsing-
ar sem við geymum hér innan dyra.
Þær em þess eðlis að þær mega ekki
komast í hendur ókunnugra. Á hitt
ber að líta að við höfum ekki einka-
rétt á því að vinna fyrir opinþera
aðila. Það er ekkert sem segir að fyr-
irtæki og stofnanir í eigu ríkis og
Reykjavíkurborgar þurfi að skipta
við okkur. Þau geta þess vegna snúið
sér annað ef þau em ekki ánægð
með þjónustu okkar.“
— Þá vaknar spuming um rétt-
mæta samkeppni. Standa einkafyrir-
tæki á upplýsingasviðinu jafnfætis
ykkur í samkeppninni?
„Það er rétt að við emm í sam-
keppni við einkafyrirtæki og höfum
kannski betri aðstöðu en þau að
vissu leyti. En við viljum ekki gína
yfir markaðnum enda eigum við gott
samstarf við mörg einkafyrirtæki.
Við höfum sérhæft okkur í stærri
verkefnum og stærð okkar hefur leitt
til þess að íslendingar hafa getað
tekið upp ýmsar tækninýjungar fyrr
en ella. Hagkvæmni stærðarinnar
hefur hjálpað okkur. Menn frá okkur
35