Frjáls verslun - 01.06.1987, Page 42
dreifingarfyrirtæki. Við eig-
um okkar eigin verslanir og
póstþjónustu en við hönnum
alla okkar framleiðslu sjálf.
Til samanburðar má taka
heildsöludreifinguna í Svíþjóð
en 85% af þeim fatnaði sem
seldur er í Svíþjóð er fluttur
inn aðallega frá láglaunalönd-
unum.“ — Gætu íslendingar
e.t.v. lært eitthvað af því að
vera undirverktakar hjá
erlendum fyrirtækjum?
„Já það efast ég ekki um.
Okkur hefurgengið vel en fyr-
irtækjunum sem framleiða
fyrir okkur hefur einnig geng-
ið vel. Þeir hafa lært af því að
vinna fyrir okkur og jafnvel
getað bætt sína framleiðslu."
Annt um starfsfólk
Karin Lindgren er markað-
stjóri fyrirtækisins. Sam-
keppnin á þessum markaði er
hörð en eins og þegar hefur
komið fram hjá Tommy
Adamsson er markaðssetning
og dreifing einhver mikilvæg-
asti þátturinn í velgengni
Polarn & Pyret. Karin var því
beðin að gera lítillega grein
fyrir hvernig að þeim málum
væri staðið.
„Þar liggur til grundvallar
sú hugmynd sem fyrirtækið er
byggt á“ segir hún „og þá
hugmynd þurftum við að
markaðssetja. Allt sem við
höfum verið að gera síðastlið-
in tíu til tólf ár er þaulhugsað
og útfært. í fyrsta lagi verður
hugmyndin að vera sýnileg -
það þarf að skapa fyrirtækinu
ákveðna markaðsímynd. Það
gerir maður ekki einungis
með því að auglýsa, gefa út
sölubæklinga og innkaupa-
lista. Við leggjum höfuð-
áherslu á gott og velmenntað
starfsfólk og útlit verslan-
anna.
Okkur er mjög annt um
starfsfólkið og kostum tölu-
verðu til menntunar þess. En
við gerum líka kröfur. Ég er
ábyrg fyrir starfsmenntun
fólksins og ég er mjög ströng
hvað það varðar. Það er ekki
um annað að ræða en að vera
hálfgerður harðstjóri" segir
hún hlæjandi. Það er frekar
óvenjulegt að markaðsstjóri
sé um leið ábyrgur fyrir
starfsfólkinu en ég tel það
mjög mikilvægt. Það sýnir sig
best í því að okkur helst mjög
vel á starfsfólki, öfugt við það
sem annars gerist á þessu
sviði.
Verslanir okkar, sem eru 40
talsins, eru í grundvallaratrið-
um allar eins: Vörurnar sem á
boðstólum eru, innréttingar
og útstillingar. Það er afar
mikilvægt fyrir ímynd fyrir-
tækisins. Okkar vörur eru
aðeins seldar í okkar verslun-
um. Þegar fólk kemur inn í
Polarn & Pyret verslun veit
það hvað það er að kaupa -
nefnilega gæði. Ef viðskipta-
vinurinn vill skila vörunni fær
hann hana að sjálfsögðu end-
urgreidda. Við bjóðum líka
upp á allskyns þjónustu fyrir
viðskiptavinina. Starfsfólkið
er látið þvo og prófa allan
fatnað sem seldur er í verslun-
unum svo það sé fært um að
gefa réttar upplýsingar um
meðferð hans. Einnig seljum
við okkar lit, þ.e.s. samskonar
lit og fötin eru lituð úr.
Þannig má endurlita og
hressa upp á flíkurnar eða
breyta alveg um lit.
Annað atriði sem líka skipt-
ir miklu máli er aðhald og eft-
irlit með verslununum. Við
sendum reglulega eftirlits-
menn eða ráðgjafa sem fara á
milli verslananna og fylgjast
með að þjónustan sé í lagi og
útlit verslananna sé alltaf
ferskt. Allt hefur þetta skilað
miklum árangri ef marka má
hin jákvæðu viðbrögð sem við
fáum frá viðskiptavinum
okkar. I raun er þetta ósköp
einföld sölusálfræði. Gæði,
hagkvæmni og góð þjónusta
gefur ánægða viðskiptavini."
Þú boigar alltaf sama gjaldið,
hvort sem þú ert einn eða með fleirum í bílnum!
Hreyfill býður sætaferðir til Keflavíkur
Ef þú ert á !eið lil útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíl.
Hringdu í okkur með góöum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Við vekjum þig
með hressilegri símhringingu, óskir þú þess.
UREVRLL
68 55 22
42