Frjáls verslun - 01.06.1987, Page 47
ækur
„íslensk fyrirtæki” í átjánda sinn:
„Áfram áreiðanlegt og
ómissandi uppsláttarrit
— segir Halldóra J. Rafnar nýráðinn ritstjóri
Texti: Ragnheiður Davíðsdóttir
Myndir: Grímur Bjarnason
Undanfarin sautján ár hefur
Frjálst framtak gefið úr bókina
„íslensk fyrirtæki". Um þessar
mundir er verið að vinna að
átjándu útgáfunni sem kemur
út í janúar á næsta ári. Með
hverju árinu hefur bókin stækk-
að og orðið ítarlegri og segja má
að „íslensk fyrirtæki“ sé ómiss-
andi uppsláttarrit fyrir alla sem
viðskipti stunda. Þann 17.
ágúst s.l. tók Halldóra J. Rafnar
við ritstjóm bókarinnar. Hall-
dóra er með B.A. próf í ensku og
sagnfræði og starfaði áður sem
blaðamaður á Morgunblaðinu.
Að sögn Halldóru er í bókinni
„íslensk fyrirtæki" skrá og upplýsing-
ar um öll starfandi fyrirtæki á íslandi
en þau munu vera rúmlega tíu þús-
und talsins. Þá eru í bókinni ýmsar
aðrar hagnýtar upplýsingar s.s. skrá
yfir útflytjendur, ítarleg skipaskrá,
umboðaskrá og vöru- og þjónustu-
skrá. I ár verður að auki það nýmæli
að nú fylgir kennitalan sem taka á
við af nafnnúmerinu um næstu ára-
mót. Fyrirtækjaskráin er fyrirferða-
mesti kafli bókarinnar og getur sá
sem kaupir þar skráningu komið þar
fyrir öllum þeim upplýsingum sem
hann vill. Þá getur hann látið birta
merki og myndir án þess að greiða
aukalega fyrir það. Fyrirtækin geta
einnig látið skrá þá þjónustu og þær
vörur sem þau hafa á boðstólum í
eins marga af flokkunum 1500 sem í
vöru- og þjónustuskráinni eru. Ef
engin þeirra hentar er jafnvel hægt
að láta búa til nýja flokka. Hið sama
gildir um umboðaskrána. I hana geta
fyrirtækin skráð umboð sín án þess
að greiða sérstaklega fyrir það.
Skráningin kostar kr. 7.970 og þeir
sem kaupa hana fá bókina sér að
kostnaðarlausu. Við staðgreiðslu er
veittur 1.000 kr. afsláttur. Að sögn
Halldóru hafa nokkur fyrirtæki lýst
yfir áhuga á að fá eingöngu skrán-
ingu í vöru- og þjónustuskrána og
verður það gert nú í fyrsta sinn og
kostar sú skráning kr. 2.960.
Það kom einnig fram í samtali við
Halldóru að gífurleg vinna liggur að
baki útgáfu sem þessarar. Undirbún-
ingur hefst í rauninni í janúar, ári
áður en næsta bók kemur út. Mikil
áhersla hefur alla tíð verið lögð á að
upplýsingar bókarinnar séu réttar og
áreiðanlegar en breytingar milli ára
eru ótrúlega miklar. Þar af leiðir að
árlega þarf að hafa samband við
hvert einasta fyrirtæki og athuga
með hugsanlegar breytingar frá
fyrra ári og eru starfsmenn Frjáls
framtaks einmitt á ferðinni í þeim
erindum þessa dagana.
Halldóra segir nýja starfið leggjast
vel í sig og kveðst hlakka til að tak-
ast á við nýtt og spennandi verkefni.
Undanfarnar vikur hafi aðallega far-
ið í að kynna sér málin og komast
inn í þetta viðamikla verk. Hvað
varðar breytingar á bókinni segist
hún vera að velta fyrir sér ýmsu
varðandi uppsetningu og fl. Sjálfsagt
sé að nýta betur þá miklu möguleika
sem nútíma tækni býður upp á en
aðalatriðið væri þó að „íslensk fyrir-
tæki“ verði áfram áreiðanlegt og
ómissandi uppsláttarrit.
47