Frjáls verslun - 01.06.1987, Side 49
manns og það nægir varla til þess að
afgreiða þær pantanir sem legið hafa
fyrir. Að vísu hefur drjúgur tími farið
í að afgreiða stórar pantanir eins og
t.d. í Útvarpshúsið en velflest hús-
gögn og skilrúm þar eru frá okkur.“
En varla er öll framleiðslan stöðl-
uð í einungum. Hvað með sérsmíði?
„Jú, vissulega koma oft upp tilfelli
þar sem hinar stöðluðu einingar
passa ekki inn í húsnæðið. Margir
viðskiptavinir biðja einnig um sér-
stök húsgögn og innréttingar og þá
bjóðum við upp á sérsmíði. Við vor-
um t.d. að ljúka við að smíða nýju
stólana í Alþingishúsið. Þeir eru allir
smíðaðir hér á sérsmíðaverkstæð-
inu,“ segir Erlendur og sýnir blaða-
manni þá völundarsmíði sem þar er
að finna. „Ætli það megi ekki segja
að þar sé fagleg þekking í fyrirrúmi,"
bætir Erlendur við segir fyrirtækið
hafa á að skipa miklu ágætis starfs-
fólki og hafa margir starfsmenn
haldið tryggð við fyirtækið um ára-
tugaskeið. Erlendur segir Kristján
Siggeirsson hf. hafa lagt mikla
áherslu á hönnun enda sé sá þáttur
einn viðamesti og mikilvægasti í
framleiðslu sem þessari.
„Við erum að fara af stað með nýja
línu, WOGG, sem er svissnesk hönn-
un sem hlotið hefur fjölda viðurkenn-
inga. Framleiðslurétturinn er okkar
og hyggjumst við framleiða hús-
gögnin hér á landi og flytja þau síðan
út. Þetta er fyrsta tilraun1 okkar til út-
flutnings um langt skeið og við erum
vongóðir um að það gangi vel - enda
er hér um einstaka vöru að ræða,“
segir Erlendur og bætir við að það sé
m.a. eitt af hans störfum að fylgja
þeirri framleiðslu eftir og markaðs-
setja þá framleiðslu sem Kristján
Siggeirsson hf. framleiðir. Að öðru
leyti segir hann starfssvið sitt vera
almenna stjórnun, markaðssetningu,
sölumennsku og starfsmannahald að
Hesthálsi 2 - 4. Hann segir það afar
mikilvægt í slíku starfi að vera í nán-
um tengslum við viðskiptavini fyrir-
tækisins og halda vel utan um alla
starfsemina. Til þess að slíkt megi
takast þarf mikla yfirlegu og það sé
eitt af því sem hann leggj mikla
áherslu á í framtíðinni.
Erlendur er tæplega þrítugur,
kvæntur Aðalheiði Valgeirsdóttur og
eiga þau einn son á fyrsta ári.
Fyrirmynd
hins góða stóls
Bakiö skiptir 5llu máli
Bakinu má halla á 6
mism. vegu - þannig
færöu bakstuöninginn
sem hentar þér best.
Loftþrýstifjöðrun gerir
þaö aö verkum aö hæö
sætisins má stilla meö
því einu aðsnerta
stöngina.
Hnakkaþúði
sem auðvelt
er aö hækka
og lækka.
Armþúðana
mástilla
á hæð og
til hliðanna.
Auövelt aö
losa.
Dýpt setunnar
er stillanleg
um 50 mm.
Sterktáklæði.
Þaö er hægt að stilla halla
setunnará3 mism. vegu.
í setunni er
pólýúretansvampur
- svalt og gott fyrir
þá sem þuria aö sitja
lengi.
Sterkurfótur,
sem þolir stöðuga
notkun allan
sólarhringinn.
GN 814 er sænskur vinnustóll sem er sérstaklega hannaður
meö öll þau smáatriði í huga sem tryggja réttar og þægilegar
vinnustellingar.
Þetta er stóll sem má stilla á ótal mismunandi vegu og hentar
því ólíkum þörfum hvers og eins. Stóllinn er framleiddur úr ein-
ingum sem auðvelt er að skipta um.
GN 814 - Vandaður og sterkur stóll sem stenst ströngustu
gæðakröfur.
Fyrirmynd góðra stóla.
E7
PÉTUR SNÆLAND HF
Skeifan 8
Sími:68 5588