Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 55
School o.fl. og hafa hingað til aðeins
verið notuð í einstaka námsgreinum, t.d.
í stefnumótun fyrirtækja.
Hins vegar gæti viðskiptadeildin í
auknum mæli annast ráðgjöf og nauð-
synlegar rannsóknir fyrir íslensk fyrir-
tæki er nýttust sem námsefni deildar-
innar og færði skólann þannig nær at-
vinnulífinu. Slík verkefni væru fjár-
mögnuð af viðkomandi fyrirtækjum,
enda þyrfti samhliða að fjölga í kennslu-
liði skólans. Eftir því sem ég best veit
hafa “heimatilbúin" verkefni einkum
verið bundin við ákveðið svið námsefnis
fyrirtækjakjarna, s.s. endurskoðunar-
svið, fjármálasvið o.fl., en mætti án efa
auka til muna. Að vísu setur smæð ís-
lensks atvinnulífs slíkri starfsemi
ákveðnar skorður, sem reynt kennslulið
þjálfast í að yfirstíga með tímanum.
Þessar hugmyndir eru ekki settar fram
sem gagnrýni á viðskiptadeildina, enda
tel ég af fenginni reynslu að nám þaðan
sé fyllilega sambærilegt við erlenda
skóla á sama háskólastigi. Hugmyndir
þessar eru hins vegar innlegg inn í þá
víðtæku umræðu, sem farið hefur fram
um nálgun Háskóla íslands við atvinnu-
lífið, sem án efa styrkir bæði mennta-
kerfið og atvinnustarfsemina.
Unnið aö ráðgjafarverkefni undir handleiðslu prófessors.
ari viðskiptaumhverfi okkar á alþjóða-
markaði þar eð lífskjör okkar og afkoma
er háð samkeppnishæfni okkar á út-
flutningsmörkuðum, jafnframt því sem
við verðum að tileinka okkur nýjungar
og síbreytilega strauma í erlendu við-
skiptalífi ætlum við okkur að viðhalda
sambærilegum lífskjörum og nágranna-
þjóðirnar. IMEDE er kjörinn vettvang-
ur þeirra stjórnenda er vilja opna gáttir
til nýrra viðhorfa og læra af stjórnun og
stefnumótun fyrirtækja á mörkuðum í
kringum okkur. Nú þegar hafa tveir Is-
lendingar lokið rekstrarhagfræðinámi
við IMEDE, þ.e. þeir Lýður Friðjónsson
hjá Vífilfelli hf. og Gunnar Óskarsson
hjá Fjárfestingarfélagi Islands hf. og
miðað við þann fjölda fyrirspurna sem
greinarhöfundur hefur fengið um skól-
ann mun sá hópur stækka á næstu
árum.
I öðru lagi má velta upp þeirri spurn-
ingu á hvern hátt Viðskiptadeild H.í.
gæti nýtt sér þá hugmynd sem starfsemi
IMEDE byggir á, þ.e. að færast í ríkara
mæli en nú er nær hringiðu atvinnulífs-
ins og stjórnun fyrirtækja, einkum á fyr-
irtækjakjarna 3. og 4. árs. Þetta mætti
gera með því að auka hlutfall verkefna
er byggðust á raunverulegum vanda-
málum fyrirtækja. Slík verkefni eru
fáanleg frá mörgum erlendum viðskipta-
háskólum, sem jafnframt stunda rann-
sóknir, s.s. IMEDE, Harvard Business
Nemendur ræða saman að loknum
fyrirlestri.
55