Frjáls verslun - 01.06.1987, Qupperneq 56
Bréf frá útqefanda
Oftrú á tækninni
Tímarnir breytast og mennirnir með. Sagan hefur kennt okkur
sannleiksgildi þessara orða enda erum við öll börn okkar tíma.
Tímarnir setja mark sitt á mennina og sá tími sem við lifum nú
einnkennist af trú á öllu því sem lýtur að tækni og vísindum. Við
höfum til dæmis mikla trú á læknavísindum og erum mörg sann-
færð um að þau verði búin að finna lækningu við flestum þeim
sjúkdómum, sem mannkynið hrjáir, áður en þeir fara að ógna
okkur sjálfum.
Við höfum einnig trúað því að tölvan gæti leyst öll þau flóknu og
vandasömu verkefni, sem við er að glíma i atvinnulífinu, á einfald-
an hátt. Veruleikinn hefur kennt okkur annað. Okkur hefur lærst
að tölvunni eru takmörk sett en einnig höfum við komist að því,
sem skiptir ekki síður máli, að það er miklu erfiðara að tileinka sér
tæknina en við héldum. Viðbrögð okkar við þessari uppgötvun eru
á margan hátt hastarleg því það er eins og menn hafi snúist gegn
tölvunni rétt eins og barn sem hendir frá sér leikfangi sem það er
orðið leitt á.
Þessi neikvæða umræða um tölvuna ber á góma í viðtali við Dr.
Jón Þór Þórhallsson forstjóra Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkur-
borgar hér í Frjálsri verslun. Þar segir Dr. Jón að tölvan hafi verið
ofseld sem einföld aðferð til að leysa allan vanda. „Þarna hefur
farið saman of mikil sölumennska, óskhyggja kaupanda og áhuga-
leysi eða vankunnátta á að nýta tölvuna. Útkoman er vonbrigði og
neikvæð umræða“, segir Jón Þór. Hann varar við því að opinber
umræða um tölvuna sé orðin hættulega neikvæð og leggur áherslu
á að það eru aðferðir okkar við að tölvuvæðast sem skipti miklu
máli um árangurinn. Hann bendir á að við höfum haft oftrú á
tækninni en vanrækt mannlega þáttinn. Það er maðurinn og tækn-
in sem skila árangri en tæknin ein skilar engum árangri. Við þurf-
um því að hrista manninn og tæknina betur saman.
Við þessi orð má svo bæta að landlæg nýjungagirni íslendinga
hefur ýtt undir að margir hafa tölvuvæðst meira af kappi en forsjá.
Mikilvægt er að það bakslag, sem komið er í tölvuumræðuna, verði
ekki til þess að ýta undir fordóma gegn tölvunni heldur verði hún
til þess að við áttum okkur betur á raunverulegum notkunmögu-
leikum hennar og hvernig við eigum að snúa okkur í tölvuvæðing-
unni. Hvort sem tölvan hefur uppfyllt væntingar okkar eða ekki
verður því ekki á móti mælt að hún hefur létt af okkur mörgum
leiðinlegum og tafsömum störfum, sum störf er ekki hægt að vinna
án hennar og rétt tölvuvæðing hefur leytt til hagræðingar sem
stuðlað hefur að bættum lífskjörum. Á þessu sviði hefur tölvan
enn hlutverki að gegna og það veltur á okkur sjálfum hver árang-
urinn verður.
56