Frjáls verslun - 01.03.1988, Page 59
Margir karlmenn vel klæddir
Knútur Signarsson.
Þeir eru margir karlmennirn-
ir sem þykja vel klæddir dags
daglega en þeir eru fáir sem
þykja bera af í klæðaburði. Þó
eru alltaf einhverjir sem til-
heyra þeim hópnum. Meðal
þeirra sem hafa orð á sér fyrir
góðan klæðaburð eru menn eins
og Valur Valsson bankastjóri
Iðnaðarbankans, Gísli Baldur
Garðarsson lögfræðingur, Guð-
mundur Örn Jóhannssons útibú-
stjóri, Geir Magnússon banka-
stjóri Samvinnubankans, Páll
Kr. Pálsson forstjóri Iðntækni-
stofnunar, Hjörleifur Guttorms-
son alþingismaður, Kristján S.
Kristjánsson í Hagskipti og
Knútur Signarsson skrifstofu-
stjóri í Odda svo nokkrir séu
nefndir. Við fengum þá tvo síð-
astnefndu í örstutt spjall um
þann fatanð sem þeir klæddust
daglega.
Búðaráp óttalega
leiðinlegt
Knútur Signarsson skrifstofustjóri
í prentsmiðjunni Odda sagðist kaupa
nánast allan sinn fatnað í Þýskalandi.
„Mér finnst mjög gott að versla í
Þýskalandi en vegna starfs míns ferð-
ast ég mikið og fer meðal annars um
það bil tvisvar á ári til Þýskalands.
Þannig er að til eru þrjár samskonar
verslanir í vel flestum borgum Þýska-
lands en í þeim fæ ég allt frá toppi til
táar. Þar sem mér leiðist búðaráp,
fmnst í raun óttalega leiðinlegt að fara
í búðir, þá henta slíkar verslanir mér
ágætlega. Ég nenni ómögulega að
kaupa jakkaföt í einni, skyrtu í annarri
og frakka í þeirri þriðju. Auk þess fæ
ég allt frá sportfatnaði og upp í fín
spariföt í þessum verslunum. Þess
ber þó að geta að það er mikið úrval af
karlmannafatnaði hér á landi og hægt
er að fá nánast hvað sem er.“
Hverju klæðist þú dags daglega?
„Það er misjafnt. Ég er mikið í
jakkafötum og ljósri skyrtu við eða
stökum buxum og jakka. Ég nota
bindi til að lífga upp á fötin og reyni að
eiga ágætt úrval af þeim. Aftur á móti
geng ég mjög gjaman í gallabuxum
59