Frjáls verslun - 01.07.1991, Page 15
FRETTIR
GUÐMUNDUR FRANKLÍN JÓNSSON SKRIFAR FRA WALL STREET:
HVAÐ ER BESTA FJÁRFESTINGIN?
Meðal helstu ástæðna
fyrir styrkri stöðu Banda-
ríkjadollars um þessar
mundir eru uppsveifla í
bandaríska hagkerfinu,
lækkun vaxta í Japan og
tenging ýmissa Evrópu-
mynta við ECU. Þá má
nefna að mikil vandamál
blasa við öðrum efna-
hagsstórveldum, eins og
Þjóðverjum og Japönum.
Sundrung og nánast hrun
efnahagskerfisins í So-
vétríkjunum hefur gert
það að verkum að ýmsir
eru farnir að líta svo á að
einungis sé eftir eitt stór-
veldi í heiminum - auðvit-
að Bandaríkin.
Þetta ástand styrkir
stöðu Bandaríkjadollar-
ans og gerir það að verk-
um að fjárfestar á alþjóð-
legum mörkuðum líta til
hans í auknum mæli.
Flestir fjárfestar þrá ör-
yggi og staðan er þannig
um þessar mundir að ör-
yggi er helst að finna í
Bandaríkjunum.
Hlutabréfamarkaður-
inn hér hefur verið
sveiflukenndur að undan-
förnu. Stafar það m.a. af
yfirvofandi borgarastyrj-
öld í Júgóslavíu og frétt-
um af stórum hneykslis-
málum sem upp hafa
komið í japönsku við-
skiptalífi. Markaðurinn
FJÁRFESTING 20 ÁR 10 ÁR 5 ÁR 1 ÁR
Málverk eftir gömlu
meistarana 12.3% 15.9% 23.4% 6.5%
Hlutabréf 11.6% 16.0% 13.3% 11.8%
Kínverskt postulín ... 11.6% 8.1% 15.1% 3.6%
Gull 11.6% (2.9%) 1.0% (0.7%)
Demantar 10.5% 6.4% 10.2% 0.0%
Frímerki 10.0% (0.7%) (2.4%) (7.7%)
Skuldabréf 9.4% 15.2% 9.7% 13.2%
Olía 8.9% (5.9%) 8.5% 20.7%
Ríkisskuldabréf í USA 8.6% 8.8% 7.0% 7.1%
Húsnæði 7.3% 4.4% 4.6% 4.7%
Land í USA 6.3% (1.8%) 1.3% 2.1%
Silfur 5.0% (9.3%) (4.8%) (18.9%)
hefur engu að síður hald-
ið og góðar fréttir berast
líka inn á milli. En það,
sem mestu hefur skipt, er
að undirstöður í banda-
rísku viðskiptalífi hafa
verið að styrkjast.
Nýlega voru birtar nið-
urstöður könnunar sem
gerð var á vegum stóru
fyrirtækjanna á Wall
Street. Hún sýnir hvaða
fjárfestingar hafa skilað
bestri meðalraunávöxtun
á ári. Þá er litið á tímabil
sem ná yfir 1 ár, 5 ár, 10
ár og 20 ár. Hér á eftir
fara tölur um ávöxtun af
ýmsum fjárfestingum í
þeirri röð sem hún reynd-
ist vera best að meðaltali
á ári í 20 ár.
BONUS
búðuý baiiiÝ
15