Frjáls verslun - 01.02.1996, Síða 22
FORSÍÐUGREIN
VIÐHORF TIL FORSETAFRAMBOÐS
Jákv. % Neikv. % Hlutlaus %
Davíð Oddsson 14,6 66,1 18,6
Ellert B. Schram 14,1 57,0 27,9
Guðrún Agnarsdóttir 37,1 36,5 25,3
Guðrún Pétursdóttir 51,5 20,6 27,0
Ólafur Ragnar Grímsson 39,1 41,9 18,2
Pálmi Matthíasson 28,7 47,3 23,2
Guðmundur Rafn Geirdal 3,6 71,9 23,5
Steingrímur Hermannsson 8,4 75,1 15,5
myndir þú helst vilja
sjá sem forseta? —
var að Guðrún Pét-
ursdóttir náði fylgi
rúmlega eins af hverj-
um fimm (21%) á
meðan Ólafur Ragnar
Grímsson hefur fylgi
eins af hverjum sjö
(13%) og Guðrún
Agnarsdóttir (13%)
fær svipaðan stuðn-
ing. Séra Pálmi Matt-
híasson hefur stuðn-
ing eins af hveijum tíu
(10%) en þeir Davíð Oddsson og Ellert
B. Schram fá mun minna, eða 4 til 5%.
Hinirtveir, semnefndirvoru, Guð-
mundur Rafn Geirdal nuddari og
Steingrímur Hermannsson seðla-
bankastjóri, fengu aðeins Ktinn stuðn-
ing. Ólafur Egilsson sendiherra var
nefndur af tveimur en aðrir fengu
aðeins eitt atkvæði hver. 68 prósent
spurðra tóku afstöðu. Um 9% neituðu
að svara og 20% voru ekki viss.
Aðeins 3% sögðust engan þessara
vilja. Óvissa er 3-4%.
Samkvæmt þessu hefur Guðrún
Pétursdóttir lífeðlisfræðingur mark-
tækt mest fylgi af þessum hugsanlegu
forsetaefnum. En það ber að hafa í
huga að þegar könnunin var gerð
höfðu aðeins hún og Guðmundur Rafn
Geirdal lýst yfir þeirri ætlan sinni að
bjóða sig fram.
Það er jafnframt rétt að benda á
það hve mikið at-
kvæði dreifast. Það
kemur hugsanlega
mörgum á óvart hve
mikið fylgi Ólafur
Ragnar Grímsson
alþingismaður fær
en hann lendir í öðru
sæti, sjónarmun á
undan Guðrúnu
Agnarsdóttur
lækni. Bæði höfðu
um 13% fylgi. Pálmi
Matthíasson, prest-
ur í Bústaðasókn,
fær um 10%. Pálmi
hafði verið hæstur í
fyrstu könnunum
um forsetakosning-
arnar en lendir nú í
fjórða sæti.
22
FYLGIEFTIR KYNFERÐI
Það er fróðlegt að bera saman fylg-
ið eftir kynferði svarenda. Guðrún-
amar tvær hafa mjög álíka fylgi meðal
beggja kynja og það kemur kannski á
óvart. Ólafur Ragnar hefur heldur
meira fylgi kvenna og séra Pálmi fær
um fjórum prósentum meira fylgi hjá
konum en körlum. Davíð og Ellert
hafa hins vegar meira fylgi karla en
kvenna. Samkvæmt þessu virðast
kjósendur ekki láta kynferði hugsan-
legra frambjóðenda ráða miklu um af-
stöðu sína.
Þegar fylgið er skoðað eftir búsetu
þá sést að Davíð nær mestu fylgi í
Reykjavík en þó aðeins 6%. Guðrún
Agnarsdóttir hefur mest fylgi í
Reykjavík og Reykjaneskjördæmi og
á norðausturhominu. Nafna hennar
Pétursdóttir hefur mjög jafndreift
fylgi, minnst 17%.
Ólafur Ragnar hef-
ur einna minnst fylgi í
sínu eigin kjördæmi,
Reykjaneskjördæmi,
en þar fær hann
aðeins liðlega 8% en
annars er fylgi hans
dreift um landið. Séra
Pálmi hefur fremur
lítið fylgi í Reykjavík
og er þar jafn Davíð
Oddssyni með 6% en
annars staðar er fylgi
hans að meðaltali um
14%.
ÓLAFUR RAGNAR MEÐ MEIRA
FORSETAFYLGIEN DAVÍÐ
HJÁ SJÁLFSTÆÐISMÖNNUM
Guðrún Pétursdóttir naut mests
fylgis fólks í öllum flokkum, minnst
rúmlega 17% frá stuðningsmönnum
Sjálfstæðisflokks en mest um 34% frá
stuðningsmönnum Kvennalista. Ólaf-
ur Ragnar hafði minnst fylgi Alþýðu-
flokksfólks eða 6% en náði rúmlega
15% stuðningi sjálfstæðismanna þar
sem hann var í öðru sæti með um
tvöfalt meira fýlgi en forsætisráð-
herrann.
Athygli vekur að meðal Alþýðu-
bandalagsfólks lendir Ólafur í þriðja
sæti á eftir Guðrúnunum tveimur en
örlítið á undan séra Pálma. Séra Pálmi
fær mest fylgi hjá framsóknarmönn-
um, eða rúmlega 14%, og um 9% frá
Alþýðubandalagsfólki. Stuðnings-
menn Davíðs koma
einkum úr Sjálf-
stæðisflokki en þó
segjast aðeins 8%
flokksmanna styðja
hann.
FYLGIEFTIR ALDRI
SVARENDA
Ef loks er litið á
fylgi eftir aldri að-
spurðra kemur í ljós
að Davíð fær mest
fylgi hjá fólki undir
þrítugu eða um
10%, en aðeins um
3% í öðrum aldurs-
hópum. Guðrún
Agnarsdóttir hefur
minnst fylgi meðal
HVERN EFT1RTALINNA VILTU SJÁ SEM FORSETA?
% af þeim
Nafn % alls sem tóku afstöðu
Davíð Oddsson 5% 7%
Ellert Schram 4% 5%
Guðrún Agnarsdóttir 13% 19%
Guðrún Pétursdóttir 21% 31%
Ólafur Ragnar Grímsson 13% 20%
Pálmi Matthíasson 10% 15%
Guðmundur Rafn Geirdal 1% 1%
Steingrímur Hermannsson 1% 2%
Afstöðu tóku 68%
Neita að svara 9%
Óviss 20%
Engan 2%
Aðra 1%