Frjáls verslun - 01.02.1996, Blaðsíða 17
Frá aðalfundi Eimskips á Hótel Sögu
á dögunum. Arðsemi eigin fjár nam
um 12% á síðasta ári.
AFKOMA
MARELS
Hagur hluthafa í Marel
jókst verulega á síðasta
ári. Rekstrartekjur fé-
lagsins voru rúmur 1,1
milljarður króna sem er
um 46% aukning frá ár-
inu áður. Hagnaður af
rekstri eftir skatta var
55,9 milljónir en 14,8
milljónir árið 1994. Arð-
semi eigin fjár var 32,9%
á síðasta ári en um 9,5%
árið áður.
Frá aðalfundi Marels. Frá vinstri: Geir A. Gunn-
laugsson forstjóri og Benedikt Sveinsson formaður
stjórnar.
BESTA
AFKOMA
í TÍU ÁR
Á aðalfundi Eimskips á dögun-
um kom fram að rekstur félags-
ins skilaði 602 milljóna króna
hagnaði á árinu 1995 samanbor-
ið við 557 milljóna króna hagnað
árið áður. Hagnaður var liðlega
6% af veltu. Afkoma félagsins
hefur ekki verið jafngóð síðan ár-
ið 1986. Veltufé frá rekstri nam
1.836 milljónum króna. Eigið fé
var 5.798 milljónir í árslok og
eiginfjárhlutfall 47%. Arðsemi
eigin fjár var 12% en var síðustu
þrjú árin að meðaltali 11%.
TIL ATHYGLI
Elísabet M. Jónasdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Ferðamálaráðs
íslands, hefur verið ráðin til At-
hygli. Hún mun annast útgáfu
bæklinga, blaða og annars kynn-
ingarefnis.
Elísabet lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1978, BA-prófi í frönsku og al-
mennum málvísindum frá Há-
skóla íslands 1982 og prófi frá
Blaðamannaháskólanum í Ósló
1985.
8HR#fea
Þú nærð forskoti
þegar tæknin UA'-
MINOLTA
CS-PRO Ijósritunarvélar
Skrefi á undan inn í framlíðina
CS - PRO tæknin í Ijósritunarvélum er framtíðarlausn
fyrir þá sem vilja bætt afköst í betra umhverfi.
Aukið öryggi í rekstri
Endurupptaka pappírs
Sjálfvirkt eftirlitskerfi
Sjálfvirk endurræsing
Nýr hreinsibúnaður
SlÐUMÚU 14, 108 REYKJAVlK, SlMI 5813022
KJARAN
SKRIFSTOFUBÚNAÐUR
17