Frjáls verslun - 01.02.1996, Blaðsíða 32
STJORNUN
SKYNDILEGA VILDISVERRIR EKKI SEUA
Á sama stjórnarfundi var kynnt bréf frá Landsbankanum þar sem sagt var að
bankinn væri á móti því að selja öðrum hluthöfum hlut sinn í Samskipum. Menn
urðu undrandi á því. Hvers vegna hafði Sverri Hermannssyni bankastjóra snúist
hugur um sölu bréfanna? Hvers vegna leit bankinn skyndilega svo á að það væri
hlutverk sitt að eiga í fyrirtækinu þrátt fyrir yfirlýsingar um annað nokkrum
mánuðumáður?
að ræða. Málið gengi út að finna einhverja utanaðkomandi
aðila til að kaupa.
FRESTUR TIL10. FEBRÚAR
Eftir þennan fund munu þeir hafa verið búnir að fá sig
fullsadda. Þeim skilaboðum var komið áleiðis að frestur
væri veittur til 10. febrúar til að ganga frá sölunni ella væri
viðræðum hætt endanlega og þeir Jón og Gunnar myndu
segja sig úr stjórninni. Fresturinn rann út án þess að tilboð
kæmi. Jón skrifaði þá Gunnari stjómarformanni bréf og
sagði sig úr stjórninni. Gunnar dró það sjálfur í nokkra
daga.
Nokkmm dögum eftir að fresturinn rann út kom Sigur-
mar K. Albertsson lögfræðingur með skriflegt tilboð til
þeirra um kaup á bréfunum á genginu 1,3. Sagt var að það
væri frá ákveðnum aðilum sem ekki væri hægt að greina
frá hverjir væru að svo stöddu. Litið var á þetta tilboð sem
grín, sömuleiðis hvaðan það kæmi, og hefur því ekki verið
svarað.
Eins og Frjáls verslun metur stöðuna núna eru hræring-
arnar í Samskipum yfirstaðnar. G. Jóhannsson hf. og Skip
hf. munu bara eiga sín hlutabréf áfram og bíða eftir góðu
landslagi til að selja þau. Eitt virðist þó á hreinu að svo
mikil gjá er á milli manna, eftir það sem á undan er gengið,
að bréfin verða varla seld núverandi hluthöfum þótt um
forkaupsrétt þeirra sé að ræða. Hægt er að fara í kringum
slíka hluti. Það er gert með því að selja fyrirtækin í heild
sinni. Aðrir hluthafar eiga ekki forkaupsrétt á fyrirtækjun-
um þótt þeir eigi forkaupsrétt á bréfunum.
Þegar skipað var í fyrstu stjórn Samskipa eftir endur-
reisn félagsins um mitt ár 1994 fengu G. Jóhannsson hf.,
Samherji hf. og Skip hf. þrjá menn af fimm í stjóm með
hjásetu Landsbankans og samkomulagi annarra. Bruno
Biscoff gekk ekki eftir því að eiga aðalmann heldur sætti
sig við að eiga varamann. Guðjón Ármann Jónsson, fulltrúi
Eignarhaldsfélags Alþýðubankans, situr í varastjóm en
hefur í reynd setið flestalla stjómarfundi.
í upphafi var rætt um að „rótera“ mönnum í stjórn.
Þannig að annar maður frá öðrum hópi kæmi inn og var
rætt um í því sambandi að Þorsteinn Már Baldvinsson og
Guðjón Ármann Jónsson skiptust á að sitja í stjórn. Það
varð hins vegar aldrei neitt úr því á aðalfundinum árið
1995.
HLUTHAFAR í SAMSKIPUM
Förum yfir hluthafana í Samskipum. Stærsti eigandinn
er Nordatlantic Transport GmbH með hlutafé upp á 262
milljónir króna (29%). Það fyrirtæki er til helminga í eigu
Kjalar hf. (fyrirtækis Ólafs) og Bruno Biscoff.
Reginn (Landsbankinn) er annar stærsti eigandinn með
165 milljóna króna hlut (18%). Mastur hf. (Olíufélagið,
Samvinnulífeyrissjóðurinn og íslenskar sjávarafurðir) er
með 110 milljóna hlut (12%).
G. Jóhannsson hf. 100 milljónir (11%). Samherji 60 millj-
ónir (7%). Eignarhaldsfélag Alþýðubankans á 50 milljónir
(6%). Flutningar hf. (YÍS) á 50 milljónir (6%). Skip hf.
(Hof sf.) á 40 milljónir (4%) og Mundull hf. (nokkrir starfs-
menn Samskipa) er með um 25 miUjóna hlut (3%).
HÖRÐ SAMKEPPNIH0FS 0G OLÍUFÉLAGSINS
Þótt hér sé búið að fara í löngu og ítarlegu máli yfir
leiksviðið í Samskipum og þær hræringar, sem þar hafa
gengið í kringum forstjórann og á meðal hluthafa, er ljóst
að hluthafar koma af ólíku sauðahúsi. Þeir eru nú í mun
harðari samkeppni á öðrum vígstöðvum en sumarið 1994
þegar eignarhaldsbreytingamar í Samskipum vom gerð-
ar.
Olíufélagið stofnaði á síðasta ári matvælainnakaupafyr-
irtækið Búr með nokkrum kaupfélögum og Nóatúni. Búr
er tekið til starfa. Og viti menn, Samskip annast birgða-
hald og vömdreifingu fyrir þetta fyrirtæki sem er í beinni
samkeppni við Baug sem Hagkaup og Bónus eiga. Stjórn-
arformaður Búr er Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri
Kaupfélags Árnesinga á Selfossi.
Birgðahald og vörudreifing Samskipa fyrir Búr er í stóru
húsnæði í Holtagörðum, húsnæði sem Hof (Hagkaup) og
Bónus höfðu áður reynt að fá leigt undir Baug. En því
höfnuðu Samskip algerlega og sögðust þurfa á húsnæðinu
að halda. Búr fór síðan inn í þetta húsnæði að stærstum
hluta.
Hof og Bónus stofnuðu á síðasta ári olíufélagið Orkuna
ásamt Skeljungi. Orkan er í harðri samkeppni við Olíufé-
lagið, Olís, og raunar Skeljung líka. Af þessu má ráða að
Hof og Olíufélagið eiga litla samleið.
Þá má geta þess að Hof stóð fyrir endurreisn Hafiiar-
Þríhyrnings á Selfossi og fékk til liðs við sig harðasta
keppinaut Samskipa, Eimskip, í þeirri endurreisn. Þess
má geta að Fóðurblandan átti fyrir í fyrirtækinu. Höfn-
Þríhyrningur er helsti andstæðingur Kaupfélags Ámes-
inga í verslun.
Af þessu sést að landslagið hefur breyst mikið á síðast-
liðnum tveimur árum og hluti stjórnarmanna í Samskipum
tekst nú víðar á í viðskiptum en þegar hluthafahópurinn í
Samskipum var myndaður sumarið 1994.
32