Frjáls verslun - 01.02.1996, Síða 44
NÆRMYND
ÓHRÆDDUR VIÐ NÝJUNGAR
Kolbeinn er greindur og forvitinn og óhræddur við að leita uppi nýjungar og prófa
þær. Hann hefur góða kímnigáfu en flaggar henni ekki við hvern sem er en
gálgahúmor og kaldhæðni eru einkenni hennar.
eins og búseta og lög gerðu ráð fyrir
en þaðan fór hann í Vogaskóla og það-
an norður að Laugum í Þingeyjarsýslu
þar sem hann var einn vetur.
Ástæðan fyrir Laugadvölinni var sú
að Kolbeinn átti marga vini á þessum
slóðum en hann var nokkur sumur í
sveit í Árteigi í Köldukinn hjá Jóni
Jónssyni og Hildi Eiðsdóttur en þang-
að fór hann vegna þess að vinskapur
var milli móður hans og Hildar frá
fomu fari auk þess sem Kolbeinn er
Þingeyingur í föðurætt og á fjölda
skyldfólks norðan heiða. Herbergis-
félagi hans á Laugum var blúsarinn
Pétur Tyrfingsson. Þaðan lá leiðin í
Austurbæjarskólann þaðan sem Kol-
beinn lauk gagnfræðaprófi. Síðan tók
hann inntökupróf í Verslunarskólann
þaðan sem hann lauk stúdentsprófi og
síðar sat í viðskiptafræðideild Háskól-
ans þar sem hann fékkst við nám einn
vetur. Kolbeinn sýndi skólanámi
aldrei neinn sérstakan eða brennandi
áhuga en gerði sér ljóst að standast
þurfti öll próf og gerði það jafnan.
Kolbeinn er kvæntur Margréti
Guðbjörgu Waage, dóttur Sigurðar
Waage og Guðrúnar Hjálmarsdóttur.
Þau búa við Eskiholt í Garðabæ og
eiga saman þijár dætur, Guðrún
Kristín er fædd 1976, Magndís Anna
1978 og Kristín Kolbrún 1987.
BARÁTTUMAÐUR í KÖRFUBOLTANUM
Kolbeinn er ákaflega starfsamur og
vinnur langan vinnudag en auk vinn-
unnar hefur hann tekið þátt í félagslífi
viðskiptalífsins með setu í fram-
kvæmdastjórn Vinnuveitendasam-
bandsins og í stjóm Lífeyrissjóðs
verslunarmanna. Kolbeinn gefur sér
þó dák'tinn tíma til þess að fylgjast
með aðaláhugamáli sínu sem er körfu-
bolti en Kolbeinn var einkar liðtækur
leikmaður á sínum yngri árum og lék
með ÍR og síðar árum saman með
íslenska landsliðinu. Kolbeinn fylgist
því vel með íþróttinni hér heima og
einnig í Ameríku og hefur þrisvar
sinnum farið til Ameríku á All-Star
Weekend og verið gestur á fjölda
leikja þess utan. Hann er að einhverju
leyti ábyrgur fyrir því körfuboltaæði
sem undanfarin ár hefur geisað meðal
yngri kynslóðarinnar á íslandi en hann
beitti sér mjög fyrir sýningum á NBA
körfuboltanum í sjónvarpi og Myllan
hefur alltaf verið bakhjarl og auglýs-
andi þeirra útsendinga.
Kolbeinn tekur ekki þátt í starfi
hefðbundinna líknarfélaga eða karla-
klúbba lengur en fyrir nokkrum árum
var hann í Rótarýklúbbi. Hvað varðar
hans persónulegu iðkun þá hlaut hann
margvísleg íþróttameiðsli eins og títt
er um kappsama íþróttamenn en spil-
aði samt körfubolta þar til fyrir tveim-
ur árum að krossbönd í hné gáfu sig
og þá lagði hann boltann á hilluna. í
staðinn hefur hann stundað tennis og
golf og þykir nokkuð harður í horn að
taka en Kolbeinn er mikill keppnis-
maður og vill helst bera sigurorð af
andstæðingi sínum. Hann er allajafna
dagfarsprúður og kurteis og oftast
grunnt á brosinu en inni á íþróttavelli
skiptir hann um ham og eirir engu.
„Menn skyldu ekki láta það villa sér
sýn þótt Kolbeinn sýnist strákslegur
og saklaus en ókunnugir telja hann
iðulega vera tíu árum yngri en raun
ber vitni. Hann er metnaðargjarn og
harður í horn að taka, getur verið
ýmist ljúfur eða grimmur eftir því sem
við á. Ég er sannfærður um að hann
mun kappkosta að ná árangri í starfi
fyrir Verslunarráðið," sagði Sverrir
Bernhöft í samtali við blaðið en þeir
félagar hafa unnið saman í Verslunar-
ráðinu og átt skemmtilegar stundir
saman erlendis á ferðalögum og fund-
um.
FRÆGUR POPPARI í MODS
Kolbeinn er töluvert músíkalskur
og lagði stund á nám í tónlist á ungl-
ingsárum. Hann lærði að blása í fagott
sem er fremur fágætt hljóðfæri og
ekki sérlega popparalegt. Kolbeinn á
til tónlistarfólks að telja í móðurætt
og Jón Pétur, afi hans, var tónlistar-
maður og kórstjóri, stjómaði m.a.
Strandakórnum og Ari Jónsson
söngvari og Jón Pétur Jónsson, sem
skipuðu framlínuna í Roof Tops hér á
árum áður, eru systkinabörn við Kol-
bein. Hið virðulega fagott hindraði
Kolbein ekki í því að verða poppari en
hann naut nokkurrar frægðar sem gít-
arleikari og söngvari unglingahljóm-
sveitarinnar Mods á árunum 1967-’69
þótt fáum sögum fari af fagottsólóum
en hann mun geta gripið í píanó líka.
Mods var mikið Bítlaband og með
Kolbeini voru t.d. Sigurjón Sighvats-
son bassaleikari, sem síðan hefur
gert garðinn frægan á öðrum víg-
stöðvum, Sveinn Larsson trommari,
sem varð þekktur í poppinu, og fleiri.
Ekki hefur Kolbeinn alveg lagt hljóð-
færaleik á hilluna því nýlega lék hann
ásamt félögum sínum fyrir dansi í að
minnsta kosti tveimur fertugsafmæl-
um. Með honum í þeim hljómsveitum
voru m.a. Óttar Felix Hauksson erki-
poppari og Þorsteinn Guðnason,
rekstrarhagfræðingur og skipasali í
UNS hf., en Kolbeinn og Þorsteinn
eru miklir vinir og hafa þekkst í 30 ár.
Þessi tvö fertugsafmæli, þar sem þeir
SÖNGVARI í MODS
Hið virðulega fagott hindraði Kolbein ekki í því að verða poppari en hann naut
nokkurrar frægðar sem söngvari hljómsveitarinnar Mods.
44