Frjáls verslun - 01.02.1996, Síða 58
ORYGGISMAL
SAMANBURÐUR VIÐ ÚTLÖND
Þeir bankamenn, sem Frjáls verslun ræddi við, voru spurðir um samanburð á
öryggisráðstöfunum hér og erlendis. Sögðu þeir íslendinga standa ágætlega að
vígi, t.d. miðað við hin Norðurlöndin. En fyrirkomulag öryggismála væri hins vegar
með ýmsum hætti erlendis og ekki alls staðar til fyrirmyndar þrátt fyrir háa
glæpatíðni.
þeir leggi sig í hættu. Þeir eiga ein-
ungis að kalla til lögreglu og tengiliði
sem eru á skrá hjá V-24. „Menn vilja
gjarnan rugla saman öryggisvörðum
ogeftirlitsmönnum. Súþjónusta, sem
veitt er hér á landi í þessum efnum,
felst eingöngu í eftirliti og eftirlits-
menn eiga ekki að gera annað en fylgj-
ast með og kalla til lögreglu ef þörf er
á. Öryggisvörður er hins vegar aðili
sem hefur kylfu eða byssu og getur
tekist á við afbrotamenn á sama hátt
og lögreglan. Þessu má ekki rugla
saman,“ segir Haraldur. Hann bendir
auk þess á þann kost sem felst í notk-
un eftirlitskerfa og leigubíla en þá sé
engin hætta á að innbrotsþjófar geti
kortlagt umferð merktra eftirlitsbíla.
VESTURGÖTUMÁLIÐ HRISTIUPP í
MÖNNUM
En hvað segja talsmenn fyrirtækja
og stofnana um öryggismálin? Hvað
hafa þeir gert í sínum málum og
standast aðgerðir þeirra samanburð
við ráðstafanir erlendis?
„Menn eru alltaf að læra af reynsl-
unni og reyna að viðurkenna fyrir
sjálfum sér við hverju megi búast.
Á MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI
Við kerfin má tengja fleiri skynjara, símhringingabúnað, reykskynjara og fleira.
KERFIN ERU ÞRÁÐLAUS
og því mjög ódýr og auðveld í uppsetningu. Veitum tæknilega ráðgjöf.
MSgS Eínar
Mmg Farestveit & Co. hff.
Borgartúni 28 “S 562 2901 og 562 2900
ÞJÓFAVARNARKERFI
fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir
Vandamál, sem snúa að okkur, hafa
færst til. Einu sinni voru það ávísana-
mál en þau heyra nánast sögunni til.
Nú gengur yfir innbrotafaraldur og
rán sem reynt er að sporna við með
fælandi aðgerðum. Aðalatriðið er að
minnka freistinguna," sagði Ólafur
Jónsson hjá Skeljungi og bætti við að
þar á bæ vildu menn helst ekki ræða
þessi mál opinberlega.
Hjá Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis er verið að ljúka við uppsetn-
ingu myndavéla í öllum útibúum.
Ólafur Haraldsson aðstoðarspari-
sjóðsstjóri segir það lið í öryggismál-
um sparisjóðsins.
„Það er komin reynsla á myndavél-
ar í bönkum og víðar og þarf ekki að
leita langt til að sjá kostina við þær.
Annars hefur öryggi alltaf verið ofar-
lega á dagskrá í bankakerfinu og ekki
síst nú eins og þjóðfélagið virðist orð-
ið. Menn eru að átta sig á að heimur-
inn er ekki svo saklaus lengur,“ segir
Ólafur og bætir við að regluleg örygg-
isfræðsla eigi sér stað í sparisjóðnum.
Þeir bankamenn, sem Frjáls versl-
un ræddi við, voru spurðir um saman-
burð á öryggisráðstöfunum hér og er-
lendis. Sögðu þeir íslendinga standa
ágætlega að vígi, t.d. miðað við hin
Norðurlöndin. En fyrirkomulag ör-
yggismála væri hins vegar með ýms-
um hætti erlendis og ekki alls staðar
til fyrirmyndar þrátt fyrir háa glæpa-
tíðni.
Unnar Jónsson, eignaumsýslu-
stjóri hjá Búnaðarbankanum, segir að
ránið á Vesturgötunni hafi óneitan-
lega hrist upp í mönnum þótt öryggis-
mál hafi alltaf verið ofarlega á blaði.
Mikið væri unnið í öryggismálum
bankans og þegar verið gerðar við-
eigandi ráðstafanir í mörgum útibú-
um.
„Við höfum aðgang að sérfræðing-
um í öryggisgæslu og erum með
fræðslu í gangi. Við búum ekki í jafn
58