Frjáls verslun - 01.02.1996, Side 59
VAKNA TIL VITUNDAR
Menn virðast annars almennt að vakna til vitundar um mikiivægi öryggismála. Það
hefur orðið gerbreyting þar á síðastliðin 10-15 ár. Áður var litið á þessi mál sem
hálfgert grín og þau höfð í flimtingum en sá tími er liðinn. Það gera sér allir grein
fyrir því. Við lifum í hörðum heimi í dag.
saklausum heimi og áður var talið og
verðum að taka mið af því,“ sagði
Unnar.
RÉÐU ATVINNUMENN í
PENINGAFLUTNINGA
Þórólfur Arnason, framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Olíufélagsins,
segir öryggisgæslu ætíð hafa verið
fastan lið í starfsemi fyrirtækisins.
„En ránið í Stóragerði herti mjög á
öllum öryggisreglum. Nú eru alltaf
tveir menn á hverri stöð og ýmsar
verklagsreglur hafa verið hertar til
muna. Vesturgöturánið hafði ekki
mikið að segja fyrir okkur, þá höfðum
við þegar gert verulegar ráðstafanir.
En Skeljungsránið varð hins vegar til
þess að við réðum utanaðkomandi að-
ila í peningaflutninga. Við töldum
alveg nauðsynlegt að fela atvinnu-
mönnum það verkefni. Annars er
magn peninga í umferð alltaf að
minnka eftir tilkomu greiðslukort-
anna. Því er ekki eftir eins miklu að
slægjast og áður,“ segir Þórólfur.
Hann hefur kynnt sér hvernig stað-
ið sé að öryggismálum á bensínstöðv-
um erlendis og segir þau mál með
ýmsum hætti. „Á mörgum bensín-
stöðvum er einungis einn maður á
vakt en meira af myndavélum. Þar
eru miklir peningar hins vegar aldrei
látnir liggja í skúffu heldur stungið í
jarðfast öryggishólf. Ég verð að við-
urkenna að mér fannst óryggisgæsla
sums staðar ótrúlega lítil. En þegar á
heildina er litið erum við ágætlega
settir. Hér á landi eru neyðarhnapp-
ar, myndavélar og ýmis önnur úrræði
í notkun. Rán og gripdeildir hafa vakið
starfsmenn til umhugsunar og þeir
fylgjast náið með öllu sem kann að
teljast óeðlilegt.“
Starfsmenn ÁTVR hafa ekki farið
varhluta af viðskiptum við ræningja
eins og yfirlitið hér að framan sýnir
glöggt. Þór Oddgeirsson segir að
þegar rán verði séu öryggismál
Áfengisverslunarinnar alltaf skoðuð.
Hann segir ýmsar ráðstafanir í með-
ferð peninga hafa verið gerðar síðast-
liðin ár, ekki síst varðandi ferðir í
næturhólf. Samráð sé haft við banka
og starfsfólk fái fræðslu en mikilvægt
sé að tryggja öryggi þess.
„Menn virðast annars almennt að
vakna til vitundar um mikilvægi ör-
yggismála. Það hefur orðið gerbreyt-
ing þar á síðastliðin 10-15 ár. Áður var
litið á þessi mál sem hálfgert grín og
þau höfð í flimtingum en sá tími er
liðinn. Það gera sér allir grein fyrir
því. Við lifum í hörðum heimi í dag,“
segir Þór.
Því er við þetta að bæta að tals-
menn allra fyrirtækja og stofnana,
sem Frjáls verslun ræddi við, lögðu
áherslu á að þótt verðmæti væru var-
in með öllum ráðum væri öryggi
starfsmanna alltaf efst á blaði. Á það
væri lögð rík áhersla í fræðslu og öðr-
um ráðstöfunum.
ÖRYGGISBÚNAÐUR FYRIR
FYRIRTÆKI OG HEIMILI
ÖRYGGIS-
ÞJÓNUSTAN hif
Innbrotaviðvörunarkerfi
Brunaviðvörunarkerfi
Myndavélakerfi
Reykskynjarar
Slökkvitæki ofl.
Stjórnstöð opin
allan sólarhringinn
ORYGGIS-
ÞJÓNUSTANnf
Malarhöfða 2 112 Reykjavík
Sími 587 2280 Fax 567 3888
59