Frjáls verslun - 01.02.1996, Blaðsíða 61
Bilí Gates er um f
““wæsaaewsassatt...........—.
•/innar elskar tækni en
OG BUFFETT
Bill Gates og Warren Buffett, vinir. Hér segir frá kynnum þeirra ogfundum
byggja árangur sinn á að allir starfs-
menn séu framúrskarandi. Annað at-
riði, að hans mati, er að góðir starfs-
menn dugi ekki ef grunnstoðir fyrir-
tækisins í rekstri séu lélegar og þegar
góðir stjómendur komi að fyrirtæki,
þar sem þetta atriði er ekki sem
skyldi, sé það orðstír fyrirtækisins
sem standi eftir óbreyttur en ekki
orðstír stjómendanna. Buffett ræður
sterka einstaklinga á sínu sviði til að
stýra fyrirtækjum með eignaraðild
hans og lætur hann þeim eftir stjóm-
un þeirra.
Undir stjóm Buffetts hefur hluta-
bréfaverð í eignarhaldsfélaginu
Berkshire Hathaway hækkað úr 7,60
dollurum í 30.000 dollara á 33 árum.
„í návist Warrens getur þú séð
hversu mjög hann unnir starfi sínu og
það kemur fram með ýmsum hætti,“
segir Gates. Buffett er skemmtilegur
og hógvær, að mati Gates, auk þess
sem hann útskýrir hlutina á einfaldan
og áhugavekjandi hátt en þar nýtir
hann sér spaugsemina til að sýna fram
á hversu augljós niðurstaðan er. Gat-
es telur að samræður þeirra séu
skemmtilegastar þegar þeir taki
gögn, sem allir hafa aðgang að, og
uppgötvi ný sjónarhorn á þau sem
bæði virðast frumleg og á vissan hátt
augljós. „Báðir reynum við þetta öll-
um stundum í fyrirtækjum okkar en
það er sérstaklega ánægjulegt og
hvetjandi að ræða þessa innsýn hvor
við annan,“ er haft eftir Gates.
„Við Warren eigum sameiginleg
lífsgildi og teljum okkur heppna að
hafa verið uppi á þeim tíma, þar sem
hæfileikar okkar hafa reynst svo arð-
bærir, því ef við hefðum lifað á öðru
tímabili er ekki víst að þeir hefðu haft
mikið gildi. Við ætlum okkur ekki að
eyða miklu af því, sem við höfum afl-
að, og þess vegna getum við tryggt
að þjóðfélagið hagnist á auði okkar. Á
vissan hátt erum við í góðgerðarstarf-
semi,“ segir Gates. Erfingjar þeirra
munu aðeins fá lítinn hluta auðsöfnun-
arinnar vegna þess að sameiginlega
telja þeir að það sé ekki hagur bam-
anna eða þjóðfélagsins að ánafna þeim
svo miklum auði.
61