Frjáls verslun - 01.02.1996, Side 64
erlendis, svo sem í Þýskalandi og
Bandaríkjunum, hafi tæknin verið í
notkun í nokkur ár.
Af hálfu Pósts og síma hefur því
verið svarað til að tvennt hafi ráðið
því að stofnunin tók sér þennan tíma;
í tyrsta lagi hafi áætlun um að gera
allt íslenska símkerfið stafrænt verið
fylgt eftir vegna þess að ISDN tæknin
sé stafræn. I öðru lagi hafi stofnunin
beðið eftir Evrópustaðli á tækjabún-
aði sem auðveldi alla framkvæmd á
tengingum. Þar sem Evrópustaðall er
nú fyrir hendi þarf ekki að tegunda-
prófa búnað hér á landi áður en hann
er settur í sölu. Búnaður, sem merk-
tur er CE, hefur þá fengið Evrópu-
vottun og því tengjanlegur hér á
landi. Evrópustaðallinn þýðir líka að
símtæki er hægt að flytja á milli landa
og nota hvar sem er innan Evrópu.
Frá því Samnet símans var formlega opnað, þann 14.
febrúar síðastliðinn, hafa á annað hundrað notendur
verið tengdir. Stærstu fyrirtæki landsins hafa riðið á vaðið
með uppsetningu á nýjum samnetssímstöðvum eða
uppfærslu á eldri stöðvum. Flest fyrirtæki eru - enn sem
komið er - að nota samnetssímtöðvarnar sem hefðbundið
skiptiborð en möguleikar stöðvanna eru ekki fullnýttir.
Spáð er að notendum muni fjölga jafiit og þétt út þetta ár
og þeir, sem til þekkja, segja að Samnetið sé framtíðin í
flarskiptamálum. En hvað er Samnetið og hveijir eru
kostir þess umfram hefðbundið símkerfi?
Samnet er íslenska heitið á erlenda nafninu ISDN
(Intergrated Services Digital Network) og ennþá tala
menn um Samnet og ISDN á víxl. Þegar Póstur og sími
opnaði fyrir samnetstenginguna varð heitið Samnet til.
Það er að hluta til aðeins víðara hugtak en ISDN vegna
þess að það felur í sér Evrópustaðal, það er Euro ISDN.
Hér á landi hafa ýmsir bent á að Póstur og sími hafi
verið lengi að koma þessari tækni á miðað við að víða
Prentiðnaðurinn er
tlæmi um starfsgrein
sem getur haft mikið
gagn af Sainnetinu til að
flytja texta og myndir
milli staða.
Marfaldað nofagildi
Samnetið margfaldar notagildið á símalínunum sem
liggja inn í hvert hús og gerir kleift að flytja margfalt meira
af tölvugögnum Með samnetstækninni er venjulegri
símalínu skipt upp í rásir sem fleiri en eitt tæki geta
tengst, t.d. sími, fax og tölva. Með samnetstengingu er
hægt að tengja fleiri en eitt tæki við hveija línu. I grunn-
tengingu er hægt að hafa tvö sambönd í gangi í einu,
annað t.d. fyrir síma og hitt fyrir tölvusamskipti. Með
hverri samnetstengingu er sérstök merkjarás sem notuð
er fyrir valmerki og til þess að flytja upplýsingar um eðli
sambandsins og númer þess sem hringir. Þetta gerir það
að verkum að t.d. fax eða tölva tengjast ekki símtæki líkt
og gerist nú ef maður hringir úr síma í faxsímanúmer.
Stafræn tækni
Samnetið er stafrænt og þarf því ekki mótald til að hafa
samskipti milli tölva. Þess í stað eru sett sérstök samnets-
kort í einmenningstölvur. Samnetið getur verið hagkvæm-
ur kostur fyrir fyrirtæki til að tengja saman tölvunet á
tveimur eða fleiri stöðum. Stór fyrirtæki eða stofnanir,
sem eiga samnetseinkasímstöð, geta notað símstöðina til
að stýra gagnaflutningi innanhúss og frá fyrirtækinu.
Sérstök faxtæki og símtæki
Sérstök faxtæki fyrir Samnetið geta sent allt að 40 síður
64