Frjáls verslun - 01.02.1996, Side 65
á mínútu ef sent er í annað samnetstæki. Líkt og með
símana má einnig nota þessi tæki til samskipta við
hefðbundin faxtæki og þá á venjulegum hraða. Ennþá eru
samnetsfaxtækin mjög dýr en búist er við að verð þeirra
fari lækkandi með örari íjöldaframleiðslu og almennri
eftirspurn.
Sérstök símtæki eru nauðsynleg til þess að nýta sér alla
kosti Samnetsins. Gömlu símtækin er þó enn nothæf, ekki
er nauðsynlegt að skipta þeim út ef notað er samnetsferj-
ald (terminal adaptor). Nýju símtækin bjóða upp á marga
möguleika og þau eru nauðsynleg ef nota á ýmsa
sérþjónustu, svo sem að sjá númer þess sem hringir á
sérstökum glugga og fleira. Símtækin eru enn í dýrari
kantinum en þó kernur á óvart að verðið er ekki mikið
hærra en á fullkomnum símtækjum fyrir eldra kerfi.
Stofnverð og notkunargjald
Stofnverð er 26. 000 krónur (ef núverandi símanúmer er
sett upp í er stofngjaldið 16.000 krónur), fast árs-
fjórðungsgjald er 6.900 krónur (tíu símanúmer möguleg í
gegnum sérþjónustuna, þar af tvö virk í einu) og sérþjón-
ustugjald 190 krónur á ársfjórðungi. (Sjá upplýsingar á
næstu síðu.) Að auki bætist fast gjald, 1.66 krónur við
þegar hringt er á milli samnetstækja, hvort sem svarað er
eður ei. Það verður ekki til þess að þeir, sem nota
hefðbundna síma, þurfi að greiða þessa upphæð þótt þeir
hringi í fýrirtæki sem er samnetstengt. Notkunarkostnað-
ur á talsambandinu er sá sami og nú er. Heildarkostnaður
við notkun er sagður vera lægri vegna þess mikla hraða
sem er á samnetssambandi. Þetta gildir sérstaklega við
flutning á tölvugögnum en síður í talsambandi vegna þess
að við tölum auðvitað ekki hraðar með nýrri tækni!
Sanmetið er forsenda þess að hægt sé
að lialda mvndsímafundi, annaðhvort í
gegnum einmenningstölvu eða sjónvarp
eða sérstalían mvndsíma.
flytja mynd og hljóð með samnetssambandinu. Það er
gagnvirkt sem þýðir að á báðum endum línunnar geta
notendur tekið á móti og sent. Sjónvarp er til dæmis ekki
gagnvirkt eins og allir vita. Samnetsbúnaðinn er hægt að
fá í tölvu eða búnað sem tengdur er
við sjónvarp. Þannig er hægt að sjá
þann sem talað er við á skjánum.
Aðilar á mismunandi stöðum geta
tekið þátt í myndsímafundi. Einnig geta tveir aðilar unnið
í sama skjali. Fáir hafa tekið þessi myndsímatækni í
þjónustu sína hérlendis en seljendur búnaðar búast við
aukinni eftirspurn.
ISDN-TÆKNIN
Fyrir hverja er Samnetið?
Samnetið er ætlað fýrirtækjum og einstaklingum jafnt
og líklega munu fleiri og fleiri sjá kosti því samfara þegar
fram líða stundir. Kostir Samnetsins eru sérstaklega
notadrjúgir hjá fyrirtækjum sem eru dreifð um borg og bí
en þurfa á stöðugu sambandi að halda. Á næstu blaðsíðum
koma fram ýmsir notkunarmöguleikar fýrir síma, tölvur
og myndsíma. Samnetið hentar til dæmis vel til að flytja
myndir á tölvutæku formi. í heilbrigðisgeiranum nýtist
það til að flytja röntgenmynd og jafnvel að vinna gagnvirt
að greiningu á myndinni. Raundæmi úr heilbrigðisgeir-
anum er sending á röntgenmynd, 7,9 Mb, sem send var
óþjöppuð með 128 kb/s grunntengingu. Senditími var um
9,5 mínútur. Kostnaður við sendinguna, ef sent er til
Akureyrar frá Reykjavík á dagtaxta, er 124 krónur.
Sending á myndum og gögnum
innan prentiðnaðarins er annað
dæmi og fleira mætti telja. I litlum
íýrirtækjum eða á heimilum gefur
grunntenging möguleika á sam-
setningu tækja við samnetslínu.
Notandinn getur verið með allt að
átta tæki tengd við línuna en aðeins
tvö tæki geta nýtt hana í einu.
Myndsímafundir
Til er sérstakur búnaður til að
Þráðlaust samband
Með sömu tækni er opið fyrir þráðlaust samband innan
einkasímstöðva. Þráðlausa sambandið kallast DECT eða
Digital European Cordless Telephone. Það þýðir að innan
stórra stofnana og fýrirtækja geta ákveðnir aðilar verið
tengdir við Samnetið með símann í vasanum. Þetta á þó
ekkert skylt við farsíma eða GSM. Innan íyrirtækisins er
komið upp sendistöðvum fýrir þráðlausa símann og
sendistöðvarnar eru tengdar símstöð fýrirtækisins. Innan-
húss er drægni þráðlausu símanna í 50 metra radíus frá
sendistöð. Utanhúss er drægnin allt að 150 metrar í radíus
frá sendistöð. Þráðlausa sambandið hentar í stofnunum og
fyrirtækjum þar sem athafnasvæðin eru dreifð í mörgum
húsum á stórri lóð.
Ileilbrigðiskerfið getur notað
samnetið til að greina sjúkdóma
og ekki er nauðsynlegt að sjúklingur
og læknir séu á sama stað.
65