Frjáls verslun - 01.02.1996, Page 70
Sambyggður sími og skjár, myndsími. Slíkur sími kostar á bilinu 300-500 þúsund eftir
skjástærð og upplausn.
,JSTýherji-Radíóstofa er fremst í flokki fyrirtækja
hér á landi í að annast tæknibúnað til
ráðstefnuhalds og frágang fundarsala."
Styrkur Nýherja-Radíóstofu liggur í viðamikilli reynslu
starfsmanna og stærð fyrirtækisins. Við teljum okkur
geta boðið alla línuna í fjarskiptabúnaði fyrir fyrirtæki.
Nýherji-Radíóstofa er fremst í flokki fyrirtækja hér á landi
í að annast tæknibúnað til ráðstefnuhalds og frágang fund-
arsala. Við höfum náð afgerandi markaðshlutdeild hér-
lendis í báðum þessum flokkum og nægir að nefna að í
dag erum við eina fyrirtækið sem býður leigu á tæknibún-
aði svo sem túlkakerfum, fjölhljóðnemakerfum, hágæða
tölvumyndvörpum, svo og sérhæföri tækniþjónustu
varðandi þetta allt,“ segja Sveinn Jónsson framkvæmda-
stjóri og Þráinn Hauksson markaðsfulltrúi hjá Nýherja-
Radíóstofu.
Hjá Nýherja starfa um 140 manns, þar af 20 manns hjá
Radíóstofu Nýherja, allt sérhæföir starfsmenn í tæknibún-
aði. Radíóstofa sérhæfir sig lausnum fyrir fyrirtæki hvað
varðar öryggismál, hljóðkerfi, hússtjórnarkerfi og
sýningarkerfi, síma og fjarskiptabúnað.
Fyrirtækið hefur séð um uppsetningu tækja fyrir
fundarsali og má nefna bestu fundaraðstöðu hvað varðar
tæknibúnað á Scandic Hótel, Hótel Sögu, Læknafélags-
salnum og í sal Morgunblaðsins og marga fleiri.
Útflutningur í sjónmáli
„I viðbót við þann markað, sem við þekkjum, er komið
að þreifingum með útflutning á heildarlausnum á búnaði
fyrir fundarsali. Nú eru í gangi nokkur atriði sem hvetja
okkur til að skoða þennan möguleika betur,“ segir Sveinn.
„I fyrsta lagi erum við með samstarfsaðila í Færeyjum,
sem hefur verið að kaupa af okkur rafeindavarpa, og í
athugun er salur, sem þeir hafa á sínum snærum, og verið
er að kanna möguleika á viðskiptum við okkur. í tengslum
við íslensk fyrirtæki, sem starfa að verktöku í Búlgaríu,
hefur komið beiðni og ákveðinn vilji um að við tökum að
okkur frágang á mörgum fundarsölum í stórri hótelbygg-
ingu. Við erum í tengslum við Víetnam í því skyni að
kanna möguleika á viðskiptum með heildarlausnir þar. Og
í ljórða lagi eigum við von á sendimönnum frá Úkraníu en
þeir hafa lýst áhuga á að eiga við okkur viðskipti í sam-
bandi við þeirra verktöku í öðru landi. Þeir hafa sagt að
þetta sé eina fyrirtækið sem hafi svo gott vöruval og verð.“
Sjónvarpið í gagnabanka
í sambandi við Samnetið er spennandi að fylgjast með
öðrum nýjungum og þróun, segja Þráinn og Sveinn.
Radíóstofa er aðili að Evrópuvekefni sem kallast „Amuse“.
Rafeindavarpar eru meðal nýjunga í tengslum við fjarfundi.
Þetta tæki varpar invndinni upp á tjald eða auðan vegg frá tölvu
eða sjónvarpstæki. Hl útskýringa má lílyja þessari tælmi við að
varpa skyggnumynd á vegg.