Frjáls verslun - 01.02.1996, Síða 73
Hvað geta Gagnaflutnmgar/
Opin Kerfi hf. gert fyrir þig?
Áhersla lögð á búnað sem hentar
við tengingar á:
• Stökum einmenningstölvum
• Útibúa, lítilla og stórra
• Móðurfyrirtækja
Ráðgjöf
• Mat á valkostum við tengingar fyrirtækja
og einstaklinga
• Val á búnaði
• Mat á öryggisþáttum
• Val á hugbúnaði sem hentar Samnetsnotkun
Námskeið fyrir:
• Rekstraraðila tölvuneta
• Hönnuði tölvukerfa
ISDN-TÆKNIN
Heimsþekkt fyrirtæki sem samstarfsaðilar:
• Cisco Systems
• Acsend Communications, Inc.
• Combinet
• Elmeg GmbH Kommunikationstechnik
• Hewlett Packard
Almenna
Y $ T E M S símkerflö
A S C E N
fyrir kostnaði og er því
áríðandi að fyrirtæki viti
þörfina áður en haldið er af
stað. Heimir nefnir dæmi
um tengingu á milli
Reykjavíkur og Akureyrar;
64Kb/s leigulína (föst lína)
kostar um 1.5 milljón kr. á
ári, Háhraðanetið um 600
þús. krónur en samnet-
stenging, opin allan
sólarhringinn, kostar allt
árið um 2.2. milljónir
króna.
„Notkun á Samnetinu er
því bundin við stuttan tengitíma þar sem stuttur tengitími
(innan við 2 sek.) og mikil flutningsgeta nýtast. Slíkt er t.d.
hentugt þegar fyrirtæki eru dreifð og þurfa að veita sínum
útibúum stuttan tengitíma af og til. Einnig er Samnetið
hentugt sem varaleið þegar fyrirtæki eru með t.d.
leigulínu milli staða og vilja tryggja sig fyrir bilunum. í
þriðja lagi má svo nefna að Samnetið getur tekið við
álagspunktum. Fyrirtæki leigir sér fasta línu sem dugar
Búnaöur frá
Gagnaflutningum /Opnum kerfum hf.
allajafna en Samnetið tekur við þegar flutningsgeta línun-
nar verður of lítil. Við vinnum í dag með stórum
fyrirtækjum á þessu sviði og má nefna Olíuverzlun Islands
hf. og Samskip hf,“ segir Heimir.
„Það er grundvallaratriði að hugbúnaður sé skrifaður
fyrir ISDN notkun, annars stendur línan opin og menn
vakna upp við vondan draum þegar reikningurinn fyrir
notkuninni berst. Sem dæmi má nefna að Samnetið hentar
ekki fyrir tengingar staðarneta við Internetið þar sem
virkni Internetsins gerir ráð fyrir sífelldu „spjalli" milli
aðila. Þetta höfum við lagt mikla áherslu á við okkar
viðskiptavini, við erum ekki að selja box, við erum að selja
heildarlausnir,“ segir Heimir að lokum.
1 a HEWLETT PACKARD
Höfóabakka 9, Sími: 567 1000
73