Frjáls verslun - 01.02.1996, Side 78
AUGLYSING
▼w LÍFEYRISSJÚÐUR VERZLUNARMANNA
UPPLÝSINGAR UM STARFSEMI Á ÁRINU 1995
HELSTU NIÐURSTÖÐUR REIKNINGA I ÞUSUNDUM KRONA
Yfirlit
yfir breytingar á hreinni eign til greiðsiu lífeyris fyrir árið 1995
Efnahagsreikningur 31.12.1995
1995 1994 1995 1994
Vaxtatekjur + verðbætur 2.824.636 2.449.393 Veltufjármunir:
Endurmat hlutabréfaeignar 164.060 153.522 Bankainnistæður 303.765 247.399
Arður hlutabr. og aðrar tekjur 54.753 37.423 Skammtímakröfur 6.289.757 4.553.461
Reikn. hækkanir v/verðlagsbr. -1.105.322 -570.141 Skammtímaskuldir: -89.890 -80.844
Ávöxtun umfram verðbólgu 1.938.127 2.070.197 Hreint veltufé 6.503.632 4.720.016
Iðgjöld 2.449.407 2.248.933 Fastafjármunir:
Lífeyrir -764.346 -684.119 Skuldabréf21 31.321.023 28.542.101
Umsjónarnefnd eftirlauna 9.145 9.748 Hlutabréf 1.577.007 1.450.869
Rekstrargjöld — rekstrartekjur -54.483 -48.828 Eignarhluti í Húsi versl. 127.931 127.317
Hækkun á hreinni eign án matsbr. 3.577.850 3.595.931 Aðrar eignir 65.439 65.419
Endurmatshækkun rekstrarfjármuna 6.138 3.467 Hrein eign til greiðslu lífeyris 39.595.032 34.905.722
Reikn. hækkanir v/verðlagsbr.’1 1.105.322 570.141
Hækkun á hreinni eign 1995 4.689.310 4.169.539 1. Verðbreytingarfærsia hækkar upp (peningalegar) eignir i samræmi við verð-
Hrein eign frá fyrra ári 34.905.722 30.736.183 bólgustuðul. Utreikningurinn byggist á breytingu vísitöiu byggingarkostnaðar innan ársins.
Hrein eign 31.12.1995 til gr. lífeyris 39.595.032 34.905.722 2. Með áföllnum vöxtum og verðbótum.
Kostnaðarhlutfali: Rekstrarkostnaður, sem hlutfall af eignum ... 0,14% Raunávöxtun: Umfram lánskjaravísitölu 1995 6,8%
Kostnaðarhlutfall: Rekstrarkostnaður, sem hlutfall af iðgjöldum 2,22% Raunávöxtun: Meðalraunávöxtun síðustu 5 ára 6,8%
Lífeyrisgreiðslur: Lífeyrir, sem hlutfall af iðgjöldum 30,80% Starfsmannafjöldi: Slysatryggðar vinnuvikur deilt með 52 15,7
Skipting lánveitinga og hlutabréfakaup 1995 Skipting lífeyrisgreiðslna 1995
1995
1994
Sjóðfélagar 1.005.366 16,1% 1.006.967 16,9%
Húsnæðisstofnun 9.791 0,1% 516.699 8,6%
Húsbréf 2.145.326 34,3% 2.180.223 36,5%
Stofnlánasjóðir og fyrirt. 199.600 3,2% 247.449 4,1%
Markaðsbréf 1.981.819 31,6% 1.502.879 25,2%
Spariskírteini ríkissjóðs 312.753 5,0% 144.515 2,4%
Erlend verðbréf 563.248 9,0% 302.326 5,1%
Hlutabréf 42.553 0,7% 74.503 1,2%
Samtals 6.260.456 100,0% 5.975.561 100,0%
Fjöldi lífeyrisþega 31.12.1995 innan sviga
Verðtr. lífeyrir Skv. reglug.Fjöldi Skv. lög. Fjöldi Samtals
Ellilífeyrir 412.449 (1544) 5.927 (50) 418.376
Örorkulífeyrir 214.596 (737) 214.596
Makalífeyrir 113.519 (585) 3.218 (34) 116.737
Barnalífeyrir 14.637 (228) 14.637
Samtals
755.201 (3094)
9.145 (84)
764.346
Aukning frá 1994 er 284.895 þúsundir eða 4,77%.
Fjárfestingar í millj. kr. frá 1981 á verðlagi 1. jan. 1996.
Fjárhæðir á verðlagi hvers árs eru skyggðar.
Umsjónarnefnd eftirlauna endurgreiddi sjóðnum lífeyri samkv. lögum: 9.145 þús.
Hlutfallsleg skipting lífeyrisgreiðslna 1981-1995.
□ Barnal.
□ Makal.
Q Örorkul.
■ Ellil.
Tryggingafræðileg athugun
[ janúar 1996 var framkvæmd tryggingafræðileg athugun á framtíðarstöðu sjóðsins sem
miðaðist við árslok 1995. Helstu niðurstöður athugunarinnar, miðað við að 3,5% ávöxtun
náist á eignir sjóðsins umfram hækkun vísitölu neysluverðs næstu áratugina voru, að
höfuðstóll sjóðsins og verðmæti framtíðariðgjalda næmi kr. 958 milljónum umfram skuld-
bindingar.
Reglur um lánveitingar til sjóðfélaga
I. Lánsréttur - lánsupphæð
Til þess að eiga kost á láni hjá sjóðnum verður sjóðfélagi að hafa greitt iðgjöld til
lífeyrissjóðs í a.m.k. 3 ár og greitt síðast til þessa sjóðs. Lánsupphæð er kr.
1.300.000. Fjögur ár þurfa að hafa liðið frá síðustu lántöku.
II. Lánskjör:
Öll lán eru verðtryggð miöað við vísitölu neysluverðs, og bera vexti samkvæmt nánari
ákvörðun stjórnar sjóðsins, þó ekki hærri en hæstu leyfilegu vexti af verðtryggðum
lánum á hverjum tíma. Nú 6,0%. Lánstími er 20 ár. Lántökugjald er 1 %.
III. Tryggingar:
Aðeins er lánað gegn fasteignaveði allt að 50% af brunabótamati, þ.e. lán sjóðsins
og önnur áhvílandi lán mega ekki vera hærri en 50% af brunabótamati. Ef bruna-
bótamat endurspeglar ekki matsverð viðkomandi eignar, er miðað við matsverð sem
löggiltur fasteignasali eða annar sérfróður aðili framkvæmir. Verðtryggðar veðskuldir
eru reiknaðar upp.
Almennar upplýsingar
Iðgjöld 4% launþega og 6% atvinnurekanda á að greiða af öllum launum sjóðfélaga 16
ára og eldri. Þó skal ekki greiða iðgjöld lengur en til 75 ára aldurs, eða þar til taka
ellilífeyris hefst.
Endurgreiðslur iðgjalda eru ekki leyfðar nema við flutning erlendra ríkisborgara utan
Evrópska efnahagssvæðisins úr landi. Hámarksiðgjald var fellt niður í maí 1988.
Tölulegar upplýsingar:
Fjöldi fyrirtækja sem greiddu 1995: 3.789.
Fjöldi sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld 1995: 26.275.
Magnús L. Sveinsson, formaður
Víglundur Þorsteinsson, varaformaður
Guðjón Oddsson
Guðmundur H. Garðarsson
Birgir R. Jónsson
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir
Kolbeinn Kristinsson
Pétur A. Maack
Forstjóri sjóðsins er Þorgeir Eyjólfsson.
Verðtryggður lífeyrisréttur (útdráttur)
Ellilífeyrir er greiddur þeim sem orðnir eru 70 ára. Sjóðfélagar geta flýtt töku ellilífeyris
um allt að 5 ár til 65 ára aldurs og lækkar hann þá um 6% fyrir hvert ár sem töku lífeyris er
flýtt. Einnig geta sjóðfélagar frestað töku lífeyris allt til 75 ára aldurs og hækkar þá
lífeyririnn um 6% fyrir hvert ár.
Örorkulífeyrir er greiddur þeim, sem eru a.m.k. 40% öryrkjar. Er örorkan miðuð við van-
hæfni sjóðfélaga til þess að gegna því starfi, sem þeir hafa gegnt og veitti þeim aðild að
sjóðnum.
Makalífeyrir er greiddur maka látins sjóðfélaga í minnst 24 mánuði og lengur ef eitt af eftir-
farandi skilyrðum er uppfyllt: 1. Makinn er fæddur fyrir 1945. 2. Yngsta barn sjóðfélaga er
22 ára eða yngra og á framfæri maka. 3. Makinn er öryrki.
Barnalífeyrir er greiddur vegna barna ellilífeyrisþega, örorkulífeyrisþega og látinna
sjóðfélaga. Barnalífeyrir er greiddur til 18 ára aldurs. Kjörbörn, fósturbörn og stjúpbörn
eiga sama rétt á barnalífeyri.
Elli-, örorku- og makalífeyrisgreiðslur eru í réttu hlutfalli við iðgjöld þau sem sjóðfélagarnir
greiddu til sjóðsins. Þ.e. hærri iðgjöld gefa hærri lífeyri.
Allar lífeyrisgreiðslur eru fullverðtryggðar og taka breytingum vísitölu neysluverðs.
Með tilliti til þýðingar þess að hinn mikli fjöldi sjóðfélaga fái upplýsingar um helstu atriði í
starfsemi lífeyrissjóðsins ákvað stjórn sjóðsins að birta þessa auglýsingu.
Skrifstofa sjóðsins er í Húsi verslunarinnar, 4. hæð, sími 581-4033, fax 568-5092.
Afgreiðslutími er frá kl. 9.00-17.00. Lífeyrissjóðurinn er með heimasíðu á internetinu þar
sem eru almennar upplýsingar um sjóðinn. Heimasíða: http://www.skima.is/lifver.
í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 1995 voru: