Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1996, Síða 31

Frjáls verslun - 01.11.1996, Síða 31
■MARKAÐSMAL1 Þessar auglýsingar með bamungum fyrirsætum og trún- aðarsamræðum vinkvenna og yfirkeyrðu öryggi og ofur- gleði hafa verið grínistum landsins frjó uppspretta. Óhætt er að fullyrða að á hverju einasta þorrablóti á landinu síðasta ár hefur verið vikið að „vængjum" í ákveðnum tón og þá hafa allir vitað hvað átt var við. Áramótaskaup og Emir sem setjast, allir gera grín að dömubindum. Auglýsingastofan Hið opinbera sér um auglýsingar fyrir Pennann og það var síðastliðið sumar sem ákveðið var að gera auglýsingar fýrir Leitz möppur og bréfabindi. Leitz er gamalgróið merki sem íslenskir skrifstofumenn og möppudýr hafa þekkt síðan á kreppuárunum. Fyrst í stað var hugmyndavinnan í hefðbundnum farvegi og verið var að stefna á blaðaauglýsingar í hefðbundnum stíl sem sæmdi þessu virðulega vömmerki sem Penninn flytur inn. Það vom síðan starfsmenn Pennans sem útskýrðu fyrir auglýsingamönnunum muninn á möppu og bréfabindi. „Það, sem margir kölluðu áður möppu og er með hörðum kili, gati á kilinum og klemmum mni í er nefnilega bréfa- bindi en þunn mappa með mjúkum spjöldum fyrir laus blöð er lausblaðamappa. Skilurðu? Nú biðja allir um bréfabindi og allir vita við hvað er átt.“ VARÐTILÍGRÍNI „Við vorum síðan að grín- ast með þetta saman og þá kviknaði hugmyndin að því að gera beinlínis skopstælingu. Við fórum að vinna eftir þeim línum og fljótlega varð til skýr mynd. Þetta small saman á stuttum tíma og við fundum marga fleti á þessari út- færslu. Við skrifuðum hug- myndir okkar á blað og tillög- ur að texta og kynntum Pennanum." Yfirmenn Pennans, þeir Kjartan Kjartansson, Styrmir Sigurðsson, kvikmyndagerðarmaður hjá Þröngsýni hf., fram- leiddi auglýsingarnar fyrir auglýsingastofuna Hið opinbera - og leik- stýrði þeim jafnframt. Mynd: Þorkell yfir maður heildsölunnar, 0| Gunnar Dungal forstjóri voru fyrst í stað ekki ginnkeyptii fyrir svona flími og skopi og var ekki laust að þeir leggði kollhúfur. Þeir sáu samt fljótlega ljósið og Gunnar Dunga forstjóri gaf starfsmönnum Hins opinbera lausan tauminn „Hann sýndi kjark og áræði sem mætti sjást víðar.“ Aðalvandinn var að fínpússa textann þannig að ekki fær yfir strikið. Það þurfti að auglýsa það sem þurfti að aug lýsa, orða það þannig að allir skildu hvar fiskur lægi undú steini og síðast en ekki síst var ekki ætlunin að skopast ac konum og þeirra náttúrulegu eiginleikum. Það gengur ekk að grínast með tíðahringinn. Það gera menn ekki. „Þetta mæddi mikið á Halldóri textasmið. Honum tóksi vel að skauta meðfram línunni eins og átti að gera,“ sagð Þorvaldur. Þegar samþykki var fengið og Styrmir kominn um borc TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON „Ég er afskaplega óöruggur með mig.“ „Ég hef fundið lausnina og nú er ég fullkomfega öruggur með mig.“ hófst umfangsmikil leit að leikurum eða eigum við að segja fýrirsætum. „Við vildum fá ákveðnar manngerðir sem gætu leikið en væru samt ekki þekkt andlit eða þekktar týpur.“ HVAR ER MAÐURINN? Leitin barst víða. Starfsmenn Hins opinbera héldu morgunfundi á Kaffivagninum og fleiri kaffihúsum og skim- uðu haukfránir á alla viðskiptavini. Þeir snuðruðu á um- boðsskrifstofum og flettu í möppum, kíktu á Intemetið og gláptu á ókunnuga hvar sem þeir komu. Margir fóru í prufutökur en loks vora þeir félagar ánægðir. Stjömumar fundust hér og þar. Jón Páll Þorbergsson er flugvirki, Ingólfur Guðmundsson er fyrrverandi flugvélstjóri og Sindri Kjartansson er sviðsmaður í Þjóðleikhúsinu. Að sögn Þorvaldar tók svo hugmyndin þeim breytingum að í stað þess að auglýsa sérstaklega ákveðna tegund snúast þær um að skemmta fólki, lyfta gömlu og virðulegu vörumerki á stall og gefa Pennanum skemmtilega ímynd. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Penninn þorir að gera svolítið óvenjulegar auglýsingar því margir muna eftir aug- lýsingum sem börn léku aðalhlutverkin í og voru sýndar árum saman. 31

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.