Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1996, Page 41

Frjáls verslun - 01.11.1996, Page 41
FÓLK VILDIEKKIDAVÍÐ í FORSETAFRAMBOÐ Þar sem umræðan um forsetakosningamar snerist ein- göngu um það í mars hvort Davíð færi fram eða ekki, en hann dró mjög lengi að slá umræðuna af um þær vanga- veltur, ákvað Frjáls verslun að spyija beint út hvort fólk vildi að hann gæfi kost á sér í framboð. Mikill meuihluti vildi ekki að hann færi fram. Ekki var spurt um ástæðuna en engu að síður höfðu margir á orði að þeir vildu hafa hann áfram sem forsætisráðherra og hann ætti að einbeita sér að því starfi. FORSETAFORMÚLA FRJÁLSRAR VERSLUNAR Fijáls verslun bað Bjama Guðmarsson sagnfræðing um að skrifa grein um fyrri forsetakosningar á íslandi. Þetta var sérlega athyglisverð grein sem fékk mikla umfjöllun íþjóð- félaginu. Bjami rakti hvaða þættir hefðu í fyrri kosninga- baráttum hjálpað forseta- frambjóðenum til að sigra og hvað hefði unnið á móti þeim. í ljósi reynslunnar var reynt að kortleggja komandi forseta. Búin var til eins konar „forsetaformúla" Fijálsrar verslunar. Margt gekk upp varðandi Ólaf Ragnar í formúlunni en það vó samt mjög á móti honum hversu óvæginn og óvinsæll stjómmálamaður hann hafði verið. Það var talið koma í veg fyrir kjör hans. RUBINSTEIN Undir lok marsmánaðar hélt Fijáls verslun námskeið með þekktum erlendum fyrirlesara, Dr. Moshe Rubinstein, prófessor við Kalifomíuháskóla, UCLA. Yfirskrift nám- skeiðsins var: „Skapandi stjómun og lausn vandamála". Þetta var í fyrsta sinn sem erlendur fyrirlesari hafði komið til landsins á vegum Frjálsrar verslunar. Á því verður örugglega framhald, svo góðar vom undirtektimar. APRIL GÝSUPPÚRHJÁKÓK í byijun apríl gaus upp umræða í jölmiðlum um tíðan flótta stjómenda frá Vífilfelli, framleiðanda Coca-Cola á íslandi, í kjölfar þess að átta yfirmenn hættu þar á fyrstu mánuðum ársins. Frá árinu 1991 hafa ótrúlega margir stjómendur hætt hjá fyrirtækinu. Frjáls verslun kafaði ofan í málið og fjallaði um það í ítarlegri fréttaskýringu. Mannleg samskipti hafa ráðið mestu um að fólk hætti hjá fyrirtækinu. Það athyglisverða við stjóm- endaflótta síðustu ára er að á sama tíma hefur fyrirtækinu sjaldan gengið eins vel í framleiðslu og sölu. Raunar sýnir það hve Coca-Cola er fimasterkt vörumerki. Engin fyrir- tæki rekast þó af sjálfu sér! BÍLASPÁ FRJÁLSRAR VERSLUNAR í apríl birti Frjáls verslun skoðanakönnun sem sýndi að 11,2% svarendaætluðuaðkaupanýjanbíláárinu. Ágrunni þessara upplýsinga spáði blaðið því að 10.900 nýir fólksbíl- ar yrðu fluttir inn á árinu. Þegar þetta er skrifað um miðjan desember stefnir í að tæplega 10 þúsund nýir og notaðir fólksbflar verði fluttir inn til landsins og að heildarinnflutn- ingur bfla, þar með taldir sendi- og vömbflar, verði tæp- lega 11 þúsund bflar. DRAUMABÍLLINN Jafnframt birti Fijáls verslun könnun sína á draumabfl landsmanna. Spurt var: „Hvemig bfl myndir þú kaupa ef peningar væm ekkert vandamál?" Toyota Land Cmiser fékk flest atkvæði. Þessi vinsæli forstjórajeppi reyndist vera draumabfll landsmanna árið 1996. Benz var í öðm sæti. MAI FYLGIÓLAFS RAGNARS DALAR Þegar nær dró forsetakosningunum ákvað Fijáls verslun að birta skoðanakannanir sínar um kosningamar daginn eftir að þær væru gerðar og birta þær í fjölmiðlum - og gera þeim síðar ítarlegri skil í blaðinu. Þannig varð Fijáls TRÚNAÐARBRESTURINN í byijun mars varð ennfremur mikil umræða í viðskiptalíf- inu um afsögn þeirra Gunnars Jóhannssonar og Jóns Pálmasonar í Hofi úr stjóm Samskipa. Gunnar var þar formaður. í stórri frétt á baksíðu Morgunblaðsins sagði hann ástæðuna vera trúnaðarbrest. Hann gaf ekki frekari skýringu á því. í ítarlegri fréttaskýringu Frjálsrar verslun- ar var ástæðan rakin. Hún var sú að Gunnar var stjómar- formaður að nafninu til en í reynd var hann valdalaus. Það voru fyrst og fremst forstjóri félagsins, Ólafur Ólafsson, og Landsbankinn sem öllu réðu, enda með meirihluta hlutafjárins á bak við sig. Gunnar og Jón töldu sig hafa verið blekkta þegar sóst var eftir fyrirtækjum þeirra inn í Samskip. Ekki síst í ljósi þess að því var útvarpað rækilega að komnir væm inn nýir eigendur og að eignaraðild væri dreifð í félaginu. ÁSTÓRU 41

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.