Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1996, Page 44

Frjáls verslun - 01.11.1996, Page 44
ÁGÚST TEKJUBLAÐ FRJÁLSRAR VERSLUNAR í byrjun ágúst fengu áskrifendur tólf síðna tekjublað Fijálsrar verslunar. Þetta var óvænt aukablað og áskrif- endum að kostnaðarlausu. Samkvæmt úrskurði tölvu- nefndar er fjölnnðlum aðeins leyfilegt að birta upplýsingar úr álagningarskrám á meðan þær liggja frammi hjá skatt- stjórum - sem er í hálfan mánuð í kringum mánaðamótin júk' og ágúst. Eftir það má ekkert birta fyrr en sjálf skatt- skráin er lögð fram sem yfirleitt er í febrúar árið eftir. Þetta aukablað Frjálsrar verslunar var vegna tímaskorts lítið en það mæltist sérlega vel fyrir. SEPTEMBER MEÐALTEKJUR FORSTJÓRA UM 675 ÞÚSUND Á MÁNUÐI í september birti Frjáls verslun meðaltekjur 50 lands- kunnra forstjóra sem unnar voru upp úr tekjukönnun blaðsins. Þær reyndust vera um 675 þúsund krón- ur á mánuði árið 1995. Nær helmingur allra forstjóranna var með tekjur á bilinu frá 500 til 800 þúsund krónur á mánuði. Tekjudreif- ingin var mikil, sá hæsti var með rúmar 1,3 milljónir en sá lægsti með um 238 þúsund á mánuði. Niðurstaðan var í stuttu máli þessi: 75% allra forstjóranna voru ekki með undir hálfri milljón á mánuði í tekjur. FLEIRIBAKDYR Á ÍSLANDIEN ANNARS STAÐAR í stórmerkri grein Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í Frjálsri verslun í september útskýrði hann hve varfæmislega ís- lendingar hefðu gengið til verks í tengslum við Úrúgvæ- samning WTO, Alþjóðaviðskiptastofnunina, arftaka GATT. Grein Gunnlaugs vakti verðskuldaða athygli. Hún varpaði ljósi á að samkvæmt samkomulaginu er tollfrelsi minna hér á landi en hjá öðrum löndum innan OECD sem tengjast samningnum. Sömuleiðis eru bakdyr okkar ís- lendinga fleiri. Við getum hækkað tolla á um 35% af inn- flutningi okkar - samkvæmt Úrúgvæ-samkomulaginu - án þess að spyrja kóng eða prest. Flestar aðrar þjóðir ríg- binda tolla sína í þessu samkomulagi og geta því ekki hækkað tolla eftir því hvernig vindar blása hverju sinni. Það getum við hins vegar á um þriðjungi innflutningsins. Enda nefndist grein Gunnlaugs einfaldlega: íslendingar taki sig á! FJÖLMIÐLA HASARINN ÓLÍKINDASAGA STÖÐVAR 3 Frjáls verslun fjallaði um fjölmiðlahasarinn á árinu 1996 sem einkenndist af mikilli baráttu á milli íjölmiðlanna - dagblaða sem ljósvakamiðla. Þegar eigendur DV settu Dag-Tímann á laggimar með haustinu skerptist sam- keppni dagblaðanna. í september dró svo til tíðinda á Stöð 3 þegar félagið var komið í þrot og gat ekki haldið áfram nema inn kæmi nýtt hlutafé - sem síðan kom inn eftir mikla óvissu seint á haustmánuðum. Það verður að segjast eins og er að saga Stöðvar 3 er með ólíkindum - ekki síst myndlyklamálin. Stöðin gat ekki selt áskrift í rúmlega eitt ár. Engan veginn er víst að hún nái sér á strik gegn Stöð 2 og Sýn sem sýnast hafa unnið a.m.k. fýrstu orrusturnar. Helsti veikleiki Stöðvar 2 er hversu skuldugt félagið er - sem og hluthafamir eftir að þeir keyptu minnihlutann út að óþörfu fyrir rúmu ári á fimaháu verði. Krafan um arðsemi af Stöð 2 er gífurleg og allt að því þrúgandi fyrir eigend- uma. 0KTÓBER BÓKIN100 STÆRSTU K0M ÚT í október kom djásn Frjálsrar verslunar út, hin glæsilega 152 síðna bók um stærstu fyrirtæki landsins; bókin 100 STÆRSTU. Ávallt ríkir mikil eftirvænting í kringum út- komu bókarinnar. Að þessu sinni voru í henni á sjötta hundrað fyrirtæki. Hvergi er á einum stað að finna jafn viðamiklar upplýsingar um fyrirtæki landsins, veltu þeirra, starfsmannafjölda og greidd laun. Allar upplýsingar um fyrirtækin eru komnar frá þeim sjálfum. 44

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.