Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1996, Qupperneq 49

Frjáls verslun - 01.11.1996, Qupperneq 49
rækjuveiðum. Vegna lélegrar reynslu af veiðum í Smugunni á þessu ári má búast við að dragi úr sókn þangað með tilheyrandi tekjumissi fyrir þjóð- arbúið. Samið hefur verið um veiðar á úthafskarfa á Reykjaneshrygg en uggvænlegt er að Rússar hafa ekki samþykkt samninginn og óljóst er hvemig eigi að haga eftirliti með veið- um þjóða sem ekki standa að þessum samningi. Þær geta því stundað óheftar veiðar og þar með stefnt stofninum í hættu og yfirfyllt markað- inn sem leiðir til verðhruns. Frumvarp, sem liggur fyrir Alþingi um skerðingu á framsali veiðiheim- ilda, boðar óhagræðingu fyrir grein- ina. Frumvarp, um úthafsveiðar þar sem útgerðum er gert skylt að skila varanlegum aflaheimildum innan lög- sögu fyrir þann rétt sem þær hafa áunnið þjóðinni, mun draga úr áhuga manna á frumkvæði til að reyna nýja möguleika. Gott útlit er fyrir loðnu- og sfldar- flotann, enda hafa menn ijárfest drjúgt þar. Ætla má að fleiri verði til að reyna fyrir sér með þárfestingum erlendis þar sem möguleikar virðast frekar liggja þar en hér heima. Yfirvofandi verkföll í þjóðfélaginu, hætta á verðbólgu og ofmetnar aukn- ar þjóðartekjur valda því að ég óttast að afkoma verði erfiðari á árinu 1997 heldur en árinu sem er að líða.“ Flutningar: HÖRÐUR SIGURGESTSSON, EIMSKIP já Eimskip var þetta ár mikilla breytinga en 1996 kom nýtt siglingakerfi til ffamkvæmda og ný skip hófu sigiingar. Mikil og ör þróun var í starfsemi félagsins innan- lands á árinu og tekur þjónusta Eimskips nú til fleiri þátta í flutninga- ferlinu en nokkru sinni fyrr. Þetta er í samræmi við þá þróun sem átt hefur sér stað á markaðnum síðustu miss- Hörður Sigurgestsson. eri; viðskiptavinir okkar gera kröfu um alhliða flutningaþjónustu. A árinu mátti einnig merkja vaxandi sókn ís- lenskra fyrirtækja á erlenda markaði og átti það ekki síst við um fyrirtæki í flutningaþjónustu. Samkeppni var hörð á árinu 1996 en flutningar þó nokkuð meiri en árið á undan.“ 1997 2. „Ég er nokkuð bjartsýnn á árið, sem nú fer í hönd, og á von á áfram- haldandi hagvexti og jákvæðri þróun á ýmsum sviðum. Samningar eru lausir nú um áramót og vona ég að við ber- um gæfu til að ná samstöðu fljótlega og forðast erfiðar vinnudeilur. Það er mikilvægt að nota góðærið til að styrkja stöðu þjóðarbúsins og greiða niður erlendar skuldir. Það hlýtur að vera helsta verkefni stjómvalda að viðhalda jafnvægi og stöðugleika og fyrirtækja að tryggja viðunandi arð- semi af rekstri." Ferðaþjónusta: HELGI JÓHANNSSON, SAMVINNUFERÐUM LANDSÝN amkvæmt könnun, sem við gerðum í byijun árs, voru ís- lendingar mjög með hugann við ferðalög og við sáum þá spá ræt- ast vel árið 1996. Þó að tölur liggi ekki endanlega fyrir þá sýnist mér að ís- lendingar hafi sett met í ferðum til útlanda árið 1996. Fjölbreytni í ferða- möguleikum íslendinga var meiri en nokkru sinni áður og þeir tóku vel við sér. Ég get því ekki verið annað en ánægður með árið, bæði fyrir hönd greinarinnar í heild sem og fyrir hönd Samvinnuferða-Landsýnar. Fólk mitt stóð sig frábærlega vel. Á innanlandsmarkaði gerðu kuldar í Evrópu ferðaþjónustunni smá skrá- veifu. Þátttaka í skipulegum ferðum hingað frá Evrópu varð minni en ætl- að var og skilaði minni tekjum en reiknað var með. Þannig varð árið í heild lakara í greininni í heild hér inn- anlands en áætlanir gerðu ráð fyrir. Væntingar voru að vísu miklar. 1997 2. „Ég spái því að árið 1997 verði mjög gott ár fyrir íslenska ferðaþjón- ustu og greinin muni skila meiri tekj- um í þjóðarbúið en nokkru sinni fyrr. Helgi Jóhannsson. Þær vísbendingar sem við sjáum um ferðalög íslendinga á árinu 1997 eru á margan hátt athyglisverðar. Enn ríkir mikil bjartsýni. Á meðal ungs fólks sýnist samt ríkja nokkur ótti við átök á vinnumarkaði og afleið- 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.