Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1996, Síða 54

Frjáls verslun - 01.11.1996, Síða 54
Ólöf Árnadóttir P&Ó Ólöf Ámadóttir hjá Auglýsingastofu P&Ó segir að árið, sem nú er að líða, hafi verið mjög gott. „Ég get meira að segja tekið það djúpt í árinni að segja að árið hafi verið alveg einstakt. Frá því snemma í vor hefur verið mikið að gera og sumarið var til að mynda mun annasamara en það hefur lengi verið.“ Kynning á nýju leiðakerfi SVR nefnir Ólöf á meðal kærustu verkefna ársins 1996. „Markmiðið með her- ferðinni var að upplýsa alla landsmenn um að að Strætó væri að taka upp nýtt leiðakerfi. Og ég held að það hafi ekki farið fram hjá neinum í þessu landi. Eitt það skemmtilegasta við þessa herferð var að vinna með viðskipta- vininum, því hann kunni svo sannar- lega til verka. Ég hef sjaldan upplifað eins skemmtilega og faglega vinnu og við þetta verkefni. Fagleg vinna frá upphafi skilar sér yfirleitt mjög vel.“ Ástþór Jóhannsson, Góðu fólki ,Árið sem nú er að líða er ár þreifinga frekar en breytinga," segir Ástþór Jó- hannsson hjá auglýsingastofunni Gott fólk. „Menn eru famir að vinna á ann- an hátt, skipulegar og meira fram í tímann en áður. Mun meiri áhersla er lögð á að staðsetja fyrirtækin á mark- aðnum og menn velta fyrir sér þeirri spumingu hvar þeir vilji að fyrirtækið standi eftir einhvem ákveðinn tíma og vinnan tekur mið af því.“ Ástþór segir að erfitt sé að nefna eitthvert eitt verkefni sem þykir kær- ara en annað. „Öll verkefni, sem þarf að leysa, em manni kær á þann hátt að maður vill að þau spjari sig vel í þeim miðlum, sem þau birtast í, og gagnist þeim sem borgar fyrir fram- kvæmdina. En við hjá Góðu fólki er- um það heppin að hafa fengið nokkuð frjálsar hendur með útfærslur á kynn- ingarefni fyrir viðskiptavini okkar og einna vænst þykir mér um þau verk- TEXTI: ÞORSTEINN G. GUNNARSSON 54 MARKAÐSMAL efni sem á einn eða annan hátt breyta eða bæta samfélagið. Á árinu vann ég einmitt við verkefni, sem vonandi bætir samfélag okkar, en það er um- ferðarátak VÍS þar sem höfðað er til unga fólksins, mesta áhættuhópsins í umferðinni. Þetta var skemmtilegt, umfangsmikið og krefjandi verkefni." Leópold Sveinsson, AUK Leópold Sveinsson hjá AUK segir aðrar áherslur í verkefnabeiðnum viðskiptavinanna í ár en síðustu ár. „Mér finnst sem fýrirtækin fjárfesti meira í hönnun nú en verið hefur, hlutum sem hafa af einhveijum ástæðum verið látnir sitja á hakanum, svo sem hönnun umbúða og endur- skoðun á ímynd fyrirtækja og gerð ímyndarauglýsinga. “ Leópold segir að vinnubrögð stof- unnar og viðskiptavina hennar hafi einnig breyst töluvert á liðnum miss- erum. „Við höfum lagt áherslu á reglubundna markaðsfundi með við- skiptavinum okkar, burtséð frá því hvort verið sé að vinna einhver ákveðin verk fyrir þá. Þessir fundir skila sér í mun markvissara auglýs- inga og markaðsstarfi." Leópold átti í erfiðleikum með að nefna eitt verkefni sem væri honum kærara en annað. En á endanum nefndi hann tvö, ímyndarauglýsingu fyrir Sjóvá-Almennar tryggingar hf., sem hann sagði einhverja viðamestu sjónvarpsauglýsingu sem gerð hefði verið, og hönnun nýrra mjólkurum- búða. „Efnt var til samkeppni milli þriggja auglýsingastofa um þá hönn- un, keppni sem við hjá AUK unnum.“ Hjörvar Harðarson, Fíton Auglýsingastofumar Atómstöðin og Grafi't sameinuðust á árinu undir nafn- inu Fíton. Hjörvar Harðarson hjá Fít- on segir sameininguna það sem helst hafi einkennt árið hjá honum. „Verk- efnin breyttust á árinu. Mun meiri áhersla var lögð á ímyndarauglýsing- ar sem ég tel vera ótvíræðan fylgifisk góðæris." Það er einmitt ímyndarverkefni sem Hjörvar nefnir á meðal kærustu verkefna ársins, verkefni fyrir Sam- tök iðnaðarins. „Við þá vinnu fengum við meira listrænt frelsi en oftast áður og lékum okkur með nýjar leiðir í myndatöku. Hugmyndin grundvallast á sterkri sjálfsímynd íslendinga sem við gerum létt grín að um leið og við hömpum því sem íslenskt er. Ég má líka til með að nefna herferð sem við unnum fyrir B&L sem gekk út á endurreisn Land Rover og Range Rover jeppanna hér á landi. Sú her- ferð gekk óðafinnanlega, enda við- skiptavinurinn opinn og víðsýnn. Við lékum okkur með ímynd og klassískar uppstillingar bflaauglýsinga en náðum að auka athyglisgfldi auglýsinganna með skemmtilegum, djörfum og tví- ræðum fyrirsögnum." Hilmar Sigurðsson, Argus-Örkin Á Argus-Örkinni ríkir sama bjartsýn- in og á öðrum auglýsingastofum sem blaðið leitaði til. Hilmar Sigurðsson segir það vera sitt mat að viðskiptalíf- ið sé enn að fjarlægjast margum- ræddan öldudal. „Þetta má sjá í betri afkomu margra fyrirtækja og við tengjumst einmitt nokkrum greinum viðskiptalífsins þar sem jákvæðar breytingar hafa orðið. Ég nefni stór- aukinn innflutning á nýjum bflum, sjálfsafgreiðslustöðvar með ódýrasta bensínið á markaðnum og ný lög um lyfjaverslanir.“ Hilmar getur h'tið tjáð sig um það verkefni ársins sem honum þykir kærast því ekki er farið að þirta þær auglýsingar. En um er að ræða nýja auglýsingaherferð fyrir Egils Kristal og Bergvatn sem hefst í byrjun ársins 1997. „Gosdrykkjamarkaðurinn hér á landi er mjög stór og við bindum mikl- ar vonir við að þeir, sem eru að glíma við aukakflóin, og allir þeir, sem hugsa um heilsuna, dýrmætustu eign okkar, tileinki sér neyslu á „besta vatni í heimi“, léttkolsýrðu með mis- munandi bragðefnum."

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.