Frjáls verslun - 01.05.1998, Síða 21
FORSIÐUGREIN
Auglýsingaverö erlendis
merkjunum að ísland væri landið sem
ættí óvenjumarga stórmeistara í skák.
Kristján Jóhannsson söngvari er orðinn
þekktur víða í Evrópu og Bandaríkjun-
um hjá áhugafólki um óperur. Höfuð-
borgin Reykjavík komst í sviðsljósið er-
lendis haustíð 1986 þegar toppfundur
Reagans Bandaríkjaforseta og Gorba-
tsjovs, leiðtoga Sovétrikjanna, var hald-
inn hér. Reykjavík er þekkt nafn hjá ná-
grannaþjóðum okkar. Svona mætti
áfram telja. Vart verður þó á neinn hall-
að þótt fullyrt sé að Björk haldi nafni Is-
lands oftast á loftí í erlendum fjölmiðl-
um og hafi öðlast mesta almenna frægð
allra íslendinga frá upphafi - hversu lengi sem sá ljómi kann að
lýsa því frægðin er fallvölt.
NATÓ-STÖÐIN ÞEKKT
Útgáfufyrirtæki Fijálsrar verslunar, Talnakönnun hf., gerði íyr-
ir tólf árum afar yfirgripsmikla og vandaða könnun á meðal tæp-
lega 300 erlendra fjölmiðlamanna er sóttu leiðtogafundinn - en alls
var áætlað að á milli 1.200 tíl 1.500 blaðamenn hafi sótt fundinn.
Spurt var bæði við komuna og brottför. Könnunin er einstaklega
mikil í sniðum og spannar yfir hundrað blaðsíður. Þótt liðin séu tólf
ár frá því að könnunin var gerð - og mikið vatn hafi runnið tíl sjáv-
ar síðan - er fróðlegt að glugga í hana. Ein margra spurninga í
henni var svona: Hver eftirtalinna atriða tengirðu við ísland? Talin
voru upp 22 atriði sem flest voru þess eðlis að ætla mættí að ein-
hverjir, eða jafnvel flestír, tengdu landi og þjóð. Flestír tengdu Nató-
stöðina á Keflavíkurflugvelli við ísland - þetta voru stjórnmála-
fréttamenn - en þar á eftír ullarvörur,
fiskútflutning, kalt loftslag og ómengað
loft, lýðræði og fagurt landslag. Margir
skiptu um skoðun á meðan á dvölinni
stóð. Þannig fannst mörgum loftslag
mildara en þeir áttu von á. Aberandi var
hvað blaðamenn frá Norðurlöndunum
þekktu mun betur til en aðrir hér á landi.
í könnuninni var einnig spurt: Hver
af eftírtöldum nöfnum þekkir þú? Talin
voru upp 22 nöfn og menn beðnir að
merkja við þau sem þeir könnuðust við.
Björk var ekki orðin fræg fyrir tólf árum
og því var hún ekki á listanum. Hvað um
það; Reykjavík var það nafn sem flestir
þekktu áður en þeir komu tíl landsins
(kannski ekki óeðlilegt; þeir voru jú á
leið þangað). Þekktustu nöfnin voru
annars þessi: Reykjavík, Flugleiðir, Vig-
dís Finnbogadóttur, Geysir, Leifur
heppni Eiríksson og Magnús Magnús-
son, sjónvarpsmaður í Bretlandi.
I ljósi þess hve Island hefur í raun
mikla sérstöðu i hugum útlendinga -
hvað þeir tengja landið við margt ólíkt,
eins og höfuðborgina, bókmenntir, nátt-
úru og söngkonu, er mikilvægt að gæta
að samhljómnum við kynningu íslands.
Sjónvarpsauglýsingar
á góðum tíma
Bandaríkin: 30 sek. augl. á um 6 milljðnir króna.
Bretland: 30 sek. augl. á um 8 milljónir króna.
Blaðaauglýsingar
Bandaríkin: Heilsíða í New York Times á um 6 milljónir króna.
Bretland: Heilsíða í Sun á um 4,5 milljónir króna.
Auglýsingar erlendis eru dýrar. Ef kaupa hefði þurft
kynningu Bjarkar á nafninu Islandi á undanförnum
fimm árum með dýrum auglýsingum væri dæmið
reiknað í milljörðum.
Láta alla strengi vinna sam-
an. Um leið hringir bjalla;
hvernig á að kynna landið?
Hvað á að leggja áherslu á?
Fyrir utan einstaka menn-
ingu, litlu stórborgina
Reykjavík með góðu hótel-
in, næturlífið og úrvals mat-
argerð, hallast flestír að því
að fyrst og fremst eigi að
kynna óvenjulega náttúru
landsins - enda segjast flest-
ir erlendir ferðamenn koma
hingað tíl að skoða náttúr-
una. Friðsældin og frelsið
skiptír ekki síður máli. Þeir, sem ferðast tíl erlendra stórborga,
hafa gaman af að koma þangað. En þeir skynja líka að þær geta
verið yfirþyrmandi; þær einkennast margar af sírenuvæli, mikilli
umferð, mannmergð og hávaða. ísland er í raun alger andstaða.
Hér geta ferðamenn andað að sér fersku loftí, ferðast um víðáttur,
notíð frelsis, gengið um náttúruna, farið niður á strendur og skoð-
að sig um án þess að vera sífellt að rekast á skilti um að bannað sé
að ferðast því um einkaland sé að ræða.
VARAN ER ÞEKKT
Um leið og möguleikarnir eru margvíslegir við að laða að fólk
til landsins er mikilvægt að hafa alla anga útí til að koma þeim
skilaboðum á framfæri. ísland hefur orðið ímynd, fólk hefur heyrt
minnst á landið og veit jafiivel hvar það er. Það skiptír auðvitað höf-
uðmáli þegar íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu eru að selja sína
vöru; landið. Þökk sé Björk. S5
SHARP
Umhverfísvænar
Ijósritunarvélar
k • Uppfylla alþjóðlega ISO umhverfi:
f gæðasta&la.
Framleiddar úr endurvinnan-
legum efnum.
Framköllunarefni innihalda |
hvorki ofnæmisvaldandi
né önnur skaSleg efni.
Ljósrita ó endurunninn
pappír.
Sparneytnar og hljóSlótar.
VjMHVfn.
w
^SVANUP^
Norræni svanurinn
- tákn um umlmerfisvæna framkiðslu
1922-1997
traust þjónusta i sjötíu ogfimm ár
21