Frjáls verslun - 01.05.1998, Síða 22
STJÓRNMÁL
SAMEINAÐIR JAFNAÐARMENN UNNU
Dnýafstöðnum kosningum gerðist það helst að nýtt stjórn-
málaafl varð til á landsvísu, - sameinaðir jafhaðarmenn. í
öðru lagi vann Reykjavíkurlistinn undir forystu Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur glæsilegan kosningasigur í höfuð-
borginni. I þriðja lagi varð Davíð Oddsson fýrir alvarlegra póli-
tísku áfalli en hann hefur áður kynnst. Viðbrögð hans við úrslit-
unum einkenndust af ójafnvægi og ég leyfi mér að kalla það
smæð. Hann kunni bersýnilega ekki að tapa en verður vonandi
í betri þjálfun næst.
I fyrsta skipti á þessari öld tókst viðtæk samstaða í flestum
sveitarfélögum landsins um framboð með þátttöku þeirra sem
vilja starfa saman á grundvelli jafnaðar, kvenfrelsis og félags-
hyggju. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði ekki bara í Reykjavík,
heldur fékk hann víða minna fýlgi en vænta hefði mátt í ljósi
skoðanakannana - og nýtt afl er að vaxa andspænis honum.
Staðreyndin er sú að Sjálfstæðisflokkurinn er með innan við
42% atkvæða, sameinuðu framboðin eru með um 37% og Fram-
sóknarflokkurinn rekur lestina með um 21% atkvæða.
Þetta þýðir að stjórnmálastrúktúrinn
hefur breyst. Til er orðið nýtt afl jafnaðar-
manna sem þegar í byrjun er tekið að
ógna Sjálfstæðisflokknum.
í ljósi þessa eru heiftarleg viðbrögð
Davíðs Oddssonar ögn skiljanlegri heldur
en útfrá (Hannesar og) hans eigin túlkun
um að Sjálfstæðisflokkurinn væri hinn
mikli sigurvegari sveitarstjórnarkosning-
anna, sameiginlegu framboðin væru
flopp, kjósendur vitlausir og borgarstjór-
inn vondur. Svoleiðis einkunnir og við-
brögð voru auðvitað ekki sæmandi manni
á landsföðurstóli. Að undanförnu hafa
menn getað átt von á hverju sem er frá
Sjálfstæðisflokknum; ófrægingarherferð-
um og ofsóknum. Og verð ég nú að biðja
lesendur afsökunar á hrekkleysi mínu í
síðasta pistli þar sem ég lýsti þáverandi
oddvita D-lista í Reykjavík sem blíðlyndri
dúfu, því sú dúfa átti eftir að umturnast í
grimman gamm með klær og gogg þegar
nær dró kosningum. En ég hef mér það til
afsökunar að það eru fleiri en ég sem
spyija hvað hafi orðið um virðingu og
sjálfsvirðingu þeirrar stjórnmálahreyfing-
ar sem sjentilmenn eins og dr. Gunnar
Thoroddsen og Geir Hallgrímsson leiddu
áður?
Þeir Hannes Hólmsteinn og Davíð
gáfu tóninn í fjölmiðlunum um það hvernig túlka bæri úrslit
kosninganna. Hannes er orðinn einsog gróinn inní „sjónvarps-
settið” á Stöð 2 og þar verður hann að fá að yfirgnæfa alla aðra
alltaf og ævinlega þegar stjórnmál eru annars vegar. Og þegar
loks honum gafst tóm til að pústa heima hjá sér yfir sérrílögg-
inni eftir að hafa gefið linuna allt kosningakvöldið og fram á
nótt, þá var Ríkissjónvarpið líka komið að heiðra herrann í
formi viðtals Elínar Hirst. Línuvörðurinn varð að geta talað til
þjóðarinnar líka í gegnum Ríkissjónvarpið svo það væri nú al-
veg klárt að enginn færi á mis við túlkun dagsins.
Og mitt í fúkyrðaflaumnum frá hinum virðulega forsætis-
ráðherra þá var hamrað á sömu línunni - að sjálfsögðu í þeirri
viðleitni hins einráða foringja að hræða fréttastofurnar til
hlýðni í trausti þess að svo mikið væri enn eftir af bananalýð-
veldinu sem hefur verið að þróast undir stjórn Davíðs Odds-
sonar að undanförnu. Upp ífá þessu átti að geirnegla sögu-
skoðun þeirra Davíðs og Hannesar í gegnum alla helstu fjöl-
miðla landsins: Sjálfstæðisflokkurinn væri hinn mikli sigurveg-
ari kosninganna! En þannig er það bara
ekki; ekkert í veröldinni fær því breytt að
mesti taparinn er Davíð Oddsson, sem bar
höfuðábyrgð á ósigri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík fyrir fjórum árum og aftur nú með
afskiptum sínum af framboði flokksins í
borginni. Fjölmargir sjálfstæðismenn voru
afar ósáttir við vinnubrögð flokks síns í kosn-
ingabaráttunni og ffamgöngu leiðtoga sinna
- þeir eru væntanlega með óbragð í munnin-
um. Það er ómögulegt að segja fýrir um það
á þessu stigi hvaða afleiðingar einmitt þetta
muni hafa fýrir hinn mikla flokk í framtiðinni.
En sameiningin hefur byr, góðan byr, og
um mánaðamótin verður tekin formleg
ákvörðun um framhaldið á fundum Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks. í okkar góða
samfélagi hefur að undanförnu verið „ítalskt
ástand” - stjórnmálakerfið einsog það hefur
verið lungann af öldinni riðar til falls. Uppúr
þvi er m.a. þegar að rísa nýtt stjórnmálaafl -
sameinaðir jafnaðarmenn. Það er líka svo
komið að maður getur ekki lengur verið viss
um að þeir flokkar sem prýtt hafa hægri
vænginn á þessari öld verði til í framtíðinni, -
a.m.k. í því formi sem við þekkjum. Hvaða
flokkur leysir Sjálfstæðisflokk Davíðs Odds-
sonar og Hannesar Hólmsteins Gissurarson-
arafhólmi? SD
STJÓRNMÁLAKERFIÐ RIÐAR TIL FALLS
„Stjórnmálakerfiö eins og þaö hefur veriö lungann af öldinni riöar til falls. Uppúr því er m.a. þegar aö rísa
nýtt stjórnmálaafl - sameinaöir jafnaöarmenn. Þaö er líka svo komið aö maöur getur ekki lengur veriö viss um aö þeir flokkar sem
prýtt hafa hægri vænginn á þessari öld verði til í framtíðinni.”
22