Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1998, Page 42

Frjáls verslun - 01.05.1998, Page 42
Með helstxi stjórnendum Byko. Frá vinstri: Pétur Andrésson, firkstj. innkaupa- og flutningasviðs, Hallgrímur Ingólfsson, frkstj. verslanasviðs, Jón Helgi Guðmundsson forstjóri, Sigurður E. Ragnarsson, irkstj. timburdeilda, og Brynja Halldórsdóttir fjármálastjóri. að fást við þann rekstur sem þegar hefur verið fjallað um, en nú síðast tóku forstjóri Byko og samstarfsmenn upp á því að opna stórverslun með raftæki í Smáranum í Kópavogi. Félag sem er að fullu í eigu Byko var stofnað um rekstur Elko risans. Þótt ýmsum hafi þótt rekstrinum þar ýtt úr vör eins og hendi væri veifað þá var búið að undirbúa jarðveginn í talsverðan tíma, eða um fiögur ár, áður en sprengjunni var varpað, keppinautum til lítillar ánægju. Jón Helgi segist lengi hafa fylgst með raftækjamarkaðnum áður en hann skarst í leikinn. Hann heimsótti dóttur sína við nám í Boston og sá hvernig raftækjamark- aðurinn var þar. I Evrópu, annars staðar en á íslandi, hafi svipaður háttur verið hafður á. Breyting var orðin á uppbyggingu raf- tækjamarkaðarins. Akvörðun um að láta til skarar skriða var tekin fyrir um einu og hálfu ári og nei, nei, hann segir ekki hafa verið erfitt að þegja yfir áformunum. FIMM MILUARÐA MARKAÐUR FYRIR UTANVSK „Hér á íslandi hafði þessi markaður ekkert þróast. Eg held að þetta hafi ekki verið spurning um hvort, heldur bara hvenær og hver færi í svona dæmi.” Grein- arhöfúndur nefnir að tæpast geti allir sam- þykkt orð hans um að ekkert hafi breyst á íslenskum raftækjamarkaði árum saman. Tilboð séu til dæmis algengari en áður, svo eitthvað sé nefnt. „Vissulega er það. Vafa- laust hafa menn gert tilraunir til breytinga. Eg held því nú samt fram að með tilkomu Elko hafi orðið veruleg breyting á raftækja- markaðnum. Það þarf slagkraft til að geta gert þetta. Framkvæmdin krefst tölu- verðra fjármuna og sfyrks. Tugi milljóna þarf til. Húsið, sem þarf að innrétta, er stórt og með mikinn lager. Fjármagna þarf reksturinn, söluna og svo framvegis.” Jón Helgi er ósáttur við þá umræðu sem verið hefur í fjölmiðlum í tengslum við útþenslu á raftækjamarkaðnum. Honum finnst lítið gert úr landsmönnum. „Viðtöl hafa verið við sálfræðinga, skáld og alls konar fólk þar sem reynt er að skilgreina hvað hrærist í hugum íslendinga þegar þeir hlaupa til eins og þegar við opnuðum og þegar BT tölvur opnuðu, þótt það hafi verið aðeins annars eðlis. Menn hafa spurt hvort ekki hafi verið til raftæki í landinu og hvort Islendingar hafi tapað glórunni. Eg held að fólk hafi skynjað að þarna var breyting og raunveruleg tilboð. Islenski raftækjamarkaðurinn, fyrir utan virðis- aukaskatt, nemur fimm til sex milljörðum króna og það er fyrir utan allt sem fólk hef- ur flutt sjálft inn í landið. Það þarf ekki miklar sviptingar á markaðnum til að röð verði í einni verslun.” Jón Helgi telur enga skynsamlega umræðu hafa átt sér stað um þá breytingu sem er að verða heldur hafi verið reynt að gera lítið úr mönnum. „Eg held að íslendingar séu mjög vel að sér og fljótir að skynja hlutina. Þess vegna höfum við kannski átt þessari velgengni að fagna. Það var tímabært að koma svona markaði hér á fót. Við erum komnir til að vera, með Elko. Það er ekki tímabundið að boðið sé upp á lágt verð. Við ætlum að vera með samkeppnisfært verð á okkar vöru og alls ekki lakara vöruverð en í sams konar mörkuðum í löndunum í kringum okkur.” ELKO AÐ NORSKRIFYRIRMYND Elko fær ákveðna uppsetningu og þjón- ustu frá Elkjöb, stóru fyrirtæki í Noregi, fyrir tilstilli viðskiptasamnings. Jón Helgi segir Norðmenn hafa varað við þeirri umræðu sem orðið hafi, þvi þeir þekktu hana af eigin raun. „Norðmenn hafa nú seint talist miklir æsingamenn en svona taka þeir því líka þegar eitthvað bitastætt er í boði. Við megum alls ekki gera lítið úr fólki. Frekar ættu menn að átta sig á að fólk gerir sér grein fyrir því ef því býðst eitthvað áhugavert. Bónusversl- anirnar byggðust í raun upp á þessu. Þær brutu blað og breyttu uppbyggingu mark- aðarins. Við höfum einnig verið að gera það.” Mun smærri verslunum þá ekki fækka verulega? ,Auðvitað má búast við að þeim fækki eitthvað en það fer einnig eftir því hvaða þjónustu menn veita. Við höfum til dæmis ekkert verið á þessum stofnana- markaði með eldavélar eða því um líkt.” Var erfitt að anna eftirspurn í fyrstu? Já, það var erfitt því við renndum mjög blint í sjóinn. Við gátum ekki vitað hvaða móttökur við fengjum. Þær voru vonum BYKO OPNAR ELKO „Ég vona að íslendingar kaupi núna raftæki í meira mæli hérlendis. Þetta er gjör- breyttur markaður - með lágt vöruverð. Það ætti að heyra sögunni til að sjá fólk burðast með sjónvarpstæki, sem það stendur varla undir, í gegnum tollinn.” TIMBURVINNSLAN í LETTLANDI Byko rekur umfangsmikla timburvinnslu í Lettlandi, Byko-lat, og selur umtalsvert magn timburs til Hollands, Belgíu, Bretlands og Danmerkur - auk íslands. Fyrirtækið er að tvöfalda afkastagetuna. Stefnumörkun Byko er skýr; frekari framsókn verður fyrst og fremst erlendis. 42

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.