Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 83

Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 83
Ein þeirra, Kröfluvirkjun, var reist á kraumandi eldijalli þrátt fyrír eindregnar viðvaranir jarðfræðinga. Utllutningur tveggja stærstu og orkufrekustu stóriðju- íyrirtækjanna, Álfélagsins og Járnblendifé- lagsins, nam einum tíunda af heildarút- flutningi þjóðarinnar á vörum og þjónustu 1997. Ný stóriðja mun væntanlega auka hlut iðnaðar í heildarútflutningi á næstu árum og draga úr vægi sjávarútvegs að sama skapi. INNGANGAN í EFTA Snemma á viðreisnarárunum var hugs- anleg aðild Islands að Evrópusambandinu, eins og það heitir nú, rædd í alvöru á ríkis- stjórnarvettvangi í eina skiptið í lýðveldis- sögunni. Full aðild heíði útheimt beint veiðigjald í stað hins óbeina veiðigjalds, sem fólst í tollheimtu af innflutningi og meðfylgjandi hágengisstefnu, eins og Bjarni Bragi Jónsson benti á í umræðum um málið 1962. Aðild að Evrópusamband- inu hefði samkvæmt eðU málsins gert okk- ur skylt að afinema innflutningsverndina og þá heíði veiðigjald legið beint við til að tryggja viðunandi sambúð sjávarútvegs við iðnað, verzlun og þjónustu. Af þessu varð þó ekki, heldur var hitt látið duga að ganga með semingi inn í EFTA1970 (Framsókn- arflokkurinn sat hjá í atkvæðagreiðslu um máUð á alþingi), enda höfðu Danir, Norð- menn, Svíar og Finnar þá ekki heldur árætt að ganga alla leið inn í Evrópusambandið. Það er álitamál eftir á að hyggja hvort efni séu til þess að áfellast viðreisnarstjórnina íýrir að búa Islendinga ekki strax undir inngöngu í Evrópusambandið 1973, ásamt Bretum, Dönum og Irum, frekar en að láta aðild að EFTA duga. Inngangan í EFJA var eigi að síður afar mikilvæg, því að án hennar heíðu utanríkisviðskiptin orðið mun daufari, og efnahagslíf landsins heföi þá setið fast í miklu óhagstæðari farvegum en raun varð á. FISKVEIÐILÖGSAGAN 0G KVÓTAKERFIÐ Utfærsla fiskveiðilögsögunnar í 200 sjó- mílur 1976 markaði einnig mikilsverð tímamót. Hún skapaði þjóðinni einstök skilyrði til að auka til muna tekjur sínar af fiskimiðunum umhverfis landið og til að fénýta miðin á miklu hagkvæmari hátt en ella. Samt er skerfur sjávarútvegsins til þjóðarbúsins nú engu meiri hlutfallslega en hann var fýrir útfærsluna 1976, þrátt fyr- ir stórauknar úthafsveiðar undanfarin ár, og skuldir útvegsins hafa aldrei veríð meiri en nú miðað við landsframleiðslu, þótt undarlegt megi virðast eftir allt sem á und- an er gengið. Þrátt fýrir þá miklu framför, sem felst í frjálsum viðskiptum með veiði- heimildir síðan 1990 eigum við enn eftir að gefa markaðsöflunum lausan tauminn í sjávarútvegi með því að taka upp veiðigjald í einhverri mynd og leyfa útvegsmönnum þannig að keppa á jalhræðisgrundvelli um veiðiréttinn á frjálsum og heilbrigðum markaði í stað þess óhagkvæma og rang- láta úthlutunarkerfis, sem enn stendur, bótt allar líkur virðist nú benda til þess að Hæstiréttur muni ryðja því endanlega úr vegi innan tíðar. MENNTABYLTINGIN Utgjöld ríkisins til menntamála hafa aukizt um 150% umfram landsffamleiðslu síðan i stríðslok 1945. Mest var aukningin á 7. áratugnum, en síðan þá hafa mennta- málaútgjöld ríkis og byggða aukizt aðeins lítillega umfram landsframleiðslu. Auknar íjárveitingar til menntamála eftir 1960 héldust í hendur við róttækar skipulags- breytingar svo að til að mynda rannsóknir og þróunarstarf efldust einnig til muna með tímanum. Þessi umskipti-ásamt tvö- földun ríkisútgjalda tíl almannatrygginga og velferðarmála (og einnig til landbúnað- armála!) um svipað leytí-voru tjármögnuð með því að taka sjávarútveginn af beinu ríkisframfæri, enda voru ríkisútgjöld til út- vegsmála skorin niður úr 43% af heildarút- gjöldum ríkisins 1959 í 3% 1961.* Þessum breytingum fylgdi þó ekki sýnilegur áhugi, hvorki af hálfu almennings né yfirvalda, á að hlúa að einkaframtaki og markaðslausn- Þessi nánast óvelkomni innflutning- ur á verkþekkingu reyndist þjóðinni, þegar upp var staðið, trúlega meira virði en allur stríðsgróðinn. Útgjöld ríkisins til menntamála hafa aukist um 150% umfram landsfram- leiðsu síðan í stríðslok 1945. Máttur frjálsra millilandaviðskipta er ekki bundinn við vörur, þjónustu, fólk og fé. Fyrirtæki geta leitað réttar síns fyrir Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-dómstólnum. 6 Q//Y/afmæli um í menntamálum. Eigi að síður var með þessu átaki lagður grunnur að nýrri fram- sókn fræða og vísinda á Islandi, sem ekki sér enn íýrir endann á. Þetta varðar verzl- unarsöguna, því að meiri og betri menntun og rannsóknir eru ávísun á aukin viðskiptí við umheiminn og öfugt. VAXTAFRELSIÐ 0G FJÁRMÁLABYLTINGIN Verðbólguhrinan á 8. og 9. áratugnum varð til þess að stjórnvöld sannfærðust loksins um nauðsyn þess að sleppa hend- inni af vaxtaákvörðunum viðskiptabank- anna. Vextír voru gefnir frjálsir 1986. Þetta varð til þess að raunvextir og almenn verð- trygging komust á svo að Islendingar hafa átt þess kost æ síðan að ávaxta sparifé sitt með eðlilegum hætti. Með þessu var að miklu leytí tekið fyrir möguleika stjórn- málamanna á að hleypa verðbólgunni aftur upp með gamla laginu tíl að flytja fé frá spariíjáreigendum tii vel séðra skuldara og ýmissa útvalinna óreiðumanna. Þá var um leið lagður grunnur undir erlend viðskiptí með innlend verðbréf. Hagur af frjálsum viðskiptum er ekki bundinn við vörur og þjónustu því að frjáls ijármagnsviðskiptí geta einnig skilað drjúgri búbót, þótt þau geti einnig leitt til sveillugangs á gjaldeyr- ismörkuðum, einkum í smáríkjum. Nokkru áður en vextirnir voru gefnir frjálsir gerðist annað sem átti eftir að ger- breyta landslaginu á fjármálamarkaði. Ný fjánnálafyriilæki, þar á meðal Fjárfesting- arfélagið og Kaupþing, hófu göngu sína á íýrri hluta 9. áratugarins og miðluðu lánsfé til einstaklinga og lýrirtækja sem áttu ekki aðgang að ríkisbönkum og sjóðum. Þessi uppreisn gegn ríkisbankakerfinu áttí ef- laust nokkurn þátt í því að vaxtafirelsið fékkt. Nýju einkaflármálafýrirtækin riðu á vaðið með hverja nýjungina á fætur annarri, öðrum þræði í óþökk ríkisvaldsins og bankanna. Þau byggðu til dæmis upp öíluga hlutabréfasjóði og hafa haldið þessu frumkvæði æ síðan, enda þótt bankar og sparisjóðir hafi smám saman hafið svipaða starfsemi á eigin vegum. Þannig hefur fólkið í landinu öðlazt kost á beinni, virkri þátttöku í atvinnulífinu síðustu ár og þá um leið betri skilning á samhenginu milli góðr- ar afkomu fyrirtækja og góðra lífskjara um landið. EES-SAMNINGURINN Byltíngin á ljármálamarkaði var síðan innsigluð með aðild Islands að samningn- Þetta er ekki prentvilla. Sjá Hagskinnu, bls. 759. 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.